september 8th, 2009
Haustið er komið, það veit ég því að leikskólinn er kominn á fullt eftir sumarfrí, Kolla er byrjuð í skólanum og púsluspil hversdagsins er hafið.
Í sumar gerðum við margt skemmtilegt og aldrei að vita nema að maður setji inn einhverjar myndir af því. Annars eru nú flestir hættir að lesa blogg síður og láta sér nægja að lesa annarra manna slúður í gegnum facebook.
Ég ætla nú samt að þrjóskast við og reyna að halda þessari síðu eitthvað gangandi. Það styttist alltaf í það að ég klári MS-rigerðina og þá get ég kannski lappað eitthvað upp á þessa síðu.
Þessi póstur var aðallega til brjóa þann þykka ís sem hefur legið á þessari síðu. Sjáum svo til hvernig gengur!
Posted in Blog | No Comments »
mars 8th, 2009
Þetta er búið að vera ansi strembin helgi, ég er búinn að vera duglegur í tölfræðinni enda stutt þangað til ég þarf að skila ritgerðinni. Ég er búinn að vera mikið að læra upp í skóla í SPSS. Annars er allt gott að frétta og allir frískir. Vinna á morgun svo ég verð nú ekki eins lengi að í kvöld og síðustu kvöld.
Posted in MS-nám | No Comments »
febrúar 20th, 2009
Ég var að koma úr blóðbankanum, það er alltaf fínt að fara og láta taka úr sér smá slurk. Ég er búinn að gefa 11 sinnum núna, ef ég gef fjórum sinnum á ári þá verð kominn í 100 skipti eftir 22ár og 3mánuði. Þá verð ég 47 ára og árið 2031 og ef ég hef farið akkúrat á 3mánuða fresti og engin töf orðið þá verður maí svo kannski verður þetta á afmælisdaginn minn, svo kannski verð ég 48 ára.
Hvað sem þessum skemmtilegu pælingum líður hvet ég alla til að gefa blóð ef menn mega það á annað borð. Maður veit aldrei nema að maður þurfi að nota þetta blóð sjálfur einn daginn eða einhver nákominn.

Blóðfjölskyldan
Tags: blóðgjöf
Posted in Blog | No Comments »
febrúar 18th, 2009
Tags: Sumarbústaður
Posted in Blog, Fjölskyldan | Sláðu inn aðgangsorð til þess að skoða athugasemdir
febrúar 16th, 2009
Já það er búið að vera umhleypingasamt síðustu daga. Allur snjórinn farinn og bleyta og drulla á öllum götum. Ég fór og þvoði bílinn áðan svona til að taka mestu tjöruna af. Það var hvorki meira né minna en 10°C á hitamælinum og greinilega ruglað einhverja í ríminu, a.m.k. fluguna sem flýgur hérna um lesstofuna og heldur að það sé komið vor
Ég er alveg að verða búinn í fæðingarorlofinu og byrja að vinna á mánudaginn, stefnan er því að læra slatta í þessari viku. Stefnan er að klára ritgerðina fyrir páska svo ég geti notið þeyrra að mestu stresslaus. Ég ætla bara eiga eitthvað smotterí eftir þegar ég kem úr páskafríinu. Nú er bara að standa við stóru orðin.
Miðvikudagur fyrir skírdag er 8. APRÍL 2009. Nú er bara að hafa hann sem viðmiðunardag.
Posted in MS-nám, Veður | No Comments »
febrúar 9th, 2009
Ég er að leika mér við að setja upp þessa síðu, þetta útlit er nú ekki endanlegt en mér fannst það dáltið svalt.
Ég er að vinna í því að búa til myndasíðu og laga þetta allt til í rólegheitunum. Helgi Hrafn æskuvinur minn er búinn að hjálpa mér mikið og kann ég honum mestu þakkir fyrir. Hann er galdramaður í öllu sem tengist tölvum og tækni svo það er ekki slæmt að þekkja svoleiðis fólk.
Ég keypti mér egillthor.net fyrir nokkru síðan en hef ekkert getað prófað mig áfram fyrr en núna. Nú er bara að sjá hversu langur tími það verður að gera þessa síðu almennilega.
Tags: Ný síða
Posted in Blog | No Comments »
maí 15th, 2008
Jæja loksins er það komið á hreint að ég er að fara til Finnlands í sumar. Ég var svo heppinn að fá þrjá styrki í dag, einn frá rannsóknarnámssjóði, einn frá Hjartaheill og einn frá Félagi íslenskra lífeðlisfræðinga. Ég næ að dekka allan kostnað með þessum styrkjum og get því leyft mér að fara.
Ég mun flytja erindi um verkefnið mitt á Norrænu hjartaendurhæfingar ráðstefnunni sem fer fram í Hämeenlinna sem er 100km frá Helsingi. Ráðstefnan er 12-14. júní og ég ætla mér bara að vera í þrjár nætur í Finnlandi því ég þarf að drífa mig norður á Akureyri að fagna 5 ára reunion frá MA með bekkjarfélögum mínum
Það er óvissuferð 15. júní og síðan er 16. júní með öllum afmælisárgöngunum í íþróttahöllinni.
Hjólað í vinnuna átakið er enn í gangi og verður út næstu viku, ég ætla að reyna að halda sama dampi og klára þetta átak með stæl.
Tags: Finnland, Hjól, MA, ráðstefna
Posted in Hjól, MS-nám | No Comments »
maí 10th, 2008
Hjólaði 15,5km og svo 13,okm = 28,5km í dag
Samtals eru þá komnir 81,6km síðustu þrjá daga.
Ég bætti tímann í kvöld og var á 27:01 (Elliðaárdalur/Fossvogur/Nauthólsvík/heim)
Vakna eftir 5tíma best að fara að hvíla lúin bein
Tags: Hjól, hjólafréttir
Posted in Hjól | No Comments »
maí 9th, 2008
Ég hef verið að pína mig að vera með í þessu hreyfinarátaki og gengið bærilega. Þar sem ég er að vinna upp í Grafarholti á kvöldvöktum er þetta ágætis áskorun.
Hér koma því km sem ég hef hjólað síðustu daga:
Mánudagur: 12,9km og 13,0km
Þriðjudagur: 14,2km og 13,0km
- Hjólaði á 28:50mín og meðalhraðinn 26.4km/klst
- Hjólaði auk þess í sund fyrr um daginn sem telst ekki með í keppninni sem voru um 4,6km
Miðvikudagur: (Í dag hjóla ég líklega 14,2 og 13,0)
Að öðru, Kolla er búin í prófum og við mæðgin eru mjög fegin að fá hana aftur. Þær mæðgur skelltu sér á Laugarvatn í gær í afmælisveislu.
Meira síðar, best að fara að læra svo ég klári þessa ritgerð einhverntíman…
Tags: Hjólað í vinnuna
Posted in Hjól | No Comments »
maí 5th, 2008
Keypti mér egillthor.net áðan svo bíðið þið bara spennt
Tags: egillthor.net, Lén
Posted in Blog | No Comments »