Daginn!!

Allt fínnt að frétta af mér, er í prófum og elska það!! Eða nei held ekki…

Er búinn með eitt próf sem var í gær, dýrafræði A…gekk ekki alveg eins og ætlunin var en hvenær hefur maður verið að væla út af lélegri próftöku, er bara ekki alveg þessi próftýpa með risa stóran límheila og man heilu bækurnar fram og aftur. Síðan hjálpar það líka alltaf þegar maður hefur smá vott af áhuga á efninu og sér tilganginn.

Ég gerði það ekki alveg í dýrafræðinni þar sem menn eru einungis að lýsa þróun gagnaugabeina og fósturfræði…það hefði verið skemmtilegra ef þetta hefði verið David Attenboro líffræðin sem er svo gaman að læra. En þetta er víst grunnurinn og maður verður bara að sætta sig við þetta…veit reyndar heldur ekki hvort ég eigi eftir að halda áfram í þessu en ég ætla alla vegana að klára hin þrjú prófin sem eru stærðfræði 16. des, grasafræði 17. des og loks efnafræðin 20. des og síðan klára ég næstu önn líka.

Síðan ætla ég til Akureyrar vinna og hver veit hvort ég kíki á kúrsa í HA næsta haust á meðan Kolla klárar MA.

En nú er ég búinn að bulla nóg, ætla að fara að lesa grasafræðina á fullu fram að mat.

ps. er næstum búinn með allar jólagjafinar og er þetta nýtt met því það er bara 12. des

Blesss í bili nú fer ég að reyna að skrifa oftar ekki á margra mánuða fresti.

Tags: ,