janúar 2004

You are currently browsing the monthly archive for janúar 2004.

Birkir Bald á afmæli í dag, orðinn 21 árs kallinn…megir þú eiga góðan dag vinur!!

Tags:

Já nú verður sko mætt á æfingu hjá Þreyttum 3 og tekið á því…ekki veitir af, ef við ætlum að gera einhverja hluti á í næstu leikjum þá verður maður að fara að geta eitthvað. Síðasti leikur var algjört klúður en við hljótum að læra af honum.

Fór í askoti skemmtilega ferð í skólanum í lífmælingum, til stóð að fara upp í Elliðarárdal og mæla tré hátt og látt, nálægt ánni og svo langt frá henni. Við áttum sem sagt að meta hvað hefði áhrif á vöxt trjáa veður og raki. Var nú bara nokkuð spenntur fyrir þessu….en allt kom fyrir ekki við fórum út úr nýja náttúrufræðihúsinu og fórum að telja njóla og endur. Það var reyndar ágætt að sjá endurnar og gæsirnar sem voru ekki langt frá en þetta verður vonandi fyrsta og síðasta skipti sem ég tel njóla í brjáluðum gaddi.

Tags: ,

Ég og Birkir háður mikla og drengilega keppni á Bjargi áðan, staðið hefur undirbúningur síðast liðinn mánuðinn, aðallega með því að lesa okkur til í bókum. Ég í lífeðlisfræði og sjá hvernig líkaminn tekur á því og Birkir gluggað í verkfræðibækur, pælt í burðarþoli og eðlisfræði hvernig á að vippa stönginni upp. Það mátti ekki miklu muna í þessari keppni. Reglur voru þær að mismunur á kílófjölda í bekkpressu og mismunur í fituprósentu margfaldað með tveimur var borið saman. Hér koma tölurnar:

Bekkpressa: Birkir 100kg og Egill 75kg –> mismunur 100-75 = 25

Fituprósenta Birkir 19,2% og Egill 7,4% –> 2 x mismunur 2 x (19,2-7,4) = 2 x 11,8 = 23,6

Þetta endaði því 25 vs. 23,6 Birki í hag og er hann vel að sigrinum kominn. Það máti þó ekki miklu muna, ég var næstum með 80kg og þá hefði munurinn bara verið 20 í bekknum og ég hefði unnið en Birkir lyfit líka 115kg í nóvember þegar við hittumst síðast í upphitun fyrir þessa keppni og því hefði þetta líka getað verið rúst hjá honum. Það var allavega gaman að þessu og ætti að gera að hefð um hver jól eins og Birkir komst að orði. Spurning hvort við keppum í sömu grein næstu jól eða finnum upp á einhverju nýju?

Tags: ,

Nú er bara búið að taka og raskella okkur 3 leiki í röð í Evrópukeppninni og við megum bara gjöra svo vel að halda heim og fara að æfa aðeins betur…ef við ætlum ekki að detta strax út á Ólympíuleikunum í Aþenu.

Maður er alveg ónýtur eftir þessa útreið á landsliðinu og hefur tapað öllu stolti yfir því að vera handboltamaður. Best að snúa sér bara að náminu…þetta er alveg vonlaust.

Tags:

Tap gegn Ungverjum!

Það var ákaflega erfitt að sjá íslenska landsliðið tapa svona gegn Ungverjum…en við verðum bara að bíta á jaxlinn og taka Tékkana á sunnudaginn annars verðum við bara sendir heim með næsta flugi. Við hljótum nú að taka þá í svona pressuleik…en þetta kemur bara ljós.

Tags:

Jæja nú verðum við taka á því á móti Ungverjunum svo að við förum bara ekki heim með sárt ennið. Ég legg til að menn verði skynsamir í sókninni og spili aðeins lengur sín á milli þegar við erum færri…En hvað finnst ykkur?

Tags:

Við töpuðum fyrir Fylki í gær í alveg eitur mögnuðum leik, við komumst í 9:0 og vorum yfir allan leikinn þar til að það voru nokkrar mínútur eftir, en þá komust Fylkismenn yfir og unnu okkur í restina. Þetta er svona í boltanum sigrar og töp og maður verður bara að taka því.

Ég var að horfa á íslenska landsliðið áðan en þeir misstu leikinn úr höndunum í miðjum seinni hálfleik. Þeir gera bara betur á morgun en þá spila þeir á móti Ungverjum sem unnu Tékka sem við spilum við á sunnudaginn.

Nóg af handboltanum að sinni ætla að enda þetta með fyrstu myndinni á blogginu sem er af Ólafi Stefáns sem á eftir að standa sig vel á EM.

Tags:

Jæja það er enginn smá leikur á morgun, við í Þreyttum 3 erum að fara að spila í Fylkisheimilinu sem er einmitt heimavöllur beggja liða. Þetta verður erfitt því að við töpuðum síðasta leik gegn þeim. En ég er að fara að læra…..eða hætta alla vega í tölvunni.

Tags:

Já þrátt fyrir einn slakasta leik sem ég hef tekið þátt í handknattleik, þá bárum við í Þreyttum 3 sigur úr bítum er við spiluðum gegn SÁ (Stíflulosun Ásgeirs). Við vorum að reyna að rífa okkur í gang og taka á því en það tókst einhvern veginn aldrei, þrátt fyrir það þá unnum við með 8 mörkum og segir það kannski meira um getu hins liðsins ekki hversu góðir við vorum.

Er í HörpuSjöfn að hala inn peningum…fór í bíó í gær með Kollu á myndina “Uptown Girls” hún var bara góð.

Tags: , ,

Eftir að ég, Kolla og Björgvin höfðum lokið við að borða dýrindis kjúkling sem hún Kolla sá um að matreiða, var hlammað sér fyrir framan sjónvarpið og horft á idol strjörnur.

Anna Katrín var dísæt að vanda og gekk bara nokkuð vel þrátt fyrir að röddin hafi aðeins verið að stríða henni.

Jón Sig var flottur að vanda og sýndi bestu frammistöðu sína til þessa að mínu mati.

Kalli Bjarni tók ekkert feilspor frekar en fyrri daginn og vann þetta með yfirburðum, átti það skilið var búinn að vera með yfirburði eftir að röddin í henni Önnu fór að bresta.

Sit í vinnunni og það er ekkert að gera…ætla kannski að kíkja aðeins í námsbækurnar, það verður samt örugglega ekki mikið.

Tags: ,

« Older entries