janúar 2004

You are currently browsing the monthly archive for janúar 2004.

Já maður er alltaf á fullu, er að fara að vinna laugardag og sunnudag í HörpuSjöfn. Síðan er mér boðið í partý í kvöld og afmæli á morgun. Síðan er leikur hjá Þreyttum 3 á morgun kl. 19.

Sem sagt það verður ekki lært neitt að viti þessa helgi…en það verður tekið á því í næstu viku. Þá fer ég í fullt af verklegum tímum og verð bara í skólanum og geri lítið annað.

Tags: ,

Jæja þá er komið út úr öllum prófunum og hvað haldið þið…gamli segi náði öllu. Greinilegt er að í sumum fögum er hægt að læra próf utan að og lesa ekkert allan veturinn…það gekk allavega hjá mér í grasafræði og dýrafræði. Reyndar voru einkunnir í þeim fögum ekki upp á marga fiska en það var aldrei stefnt á annað en að ná og það tókst!

Nú er að taka samt aðeins á því á seinni önninni svo maður hækki nú aðeins meðaleinkunnina.

Tags:

Óveður á landinu!!

Það er alveg bandbrjálað veður á mest öllu landinu, fyrir norðan hefur ekki snjóað eins mikið á jafn stuttum tíma lengi lengi…og er víst ófært í þessum töluðu orðum upp í Hlíðarfjall og ruslahauga. Hérna fyrir sunnan er agalega hvasst, maður verður að fara varlega því það getur verið ansi erfitt að fóta sig í svona miklum vindi og hálku.

Ég er búinn að vera að reyna breyta útlitinu á blogginu mínu…hefur ekki gengið nógu vel, er að hugsa um að halda mig bara við þetta þar til ég er búinn læra almennilega á heimasíðu forrit og Photoshop, jæja ekkert meira í fréttum

—yfir og út—

Tags:

Ég er að vona að þetta helvítis blogg fari nú að lagast, þessir íslensku stafir eru alltaf til vandræða.

prufa…..æ ö þ ó í ú á é

Tags:

Jafntefli hjá KA!

Ég fór og keppti með KA-mönnum aftur í dag í 2.fl. og gerðum við jafntefli við Fram í afar slökum leik. Þetta var þriðji leikurinn á þremur dögum og því var mannskapurinn eitthvað lúinn. Þetta var samt góð ferð suður hjá þeim því að þeir náðu 5 stigum af 6. En þeir spiluðu á laugardaginn við FH og unnu auðveldlega með 9 mörkum. Þá var ég bara að vinna eins og ég er reyndar að gera núna og missti því af þeirri viðureign. Þreyttir 3 voru líka að keppa í gær en þeir töpuðu fyrir Fylki.

Ég hef það ekki lengra að þessu sinni, lítið í fréttum…klára að vinna eftir klukkutíma og fer þá í mat hjá Bjarna og Hrefnu…það verður helvíti fínt eins og alltaf…yfir og út.

Tags: ,

Sigur KA-manna!

Það gekk vel hjá KA í 2.fl. í gær við (því ég var með) spiluðum við Víkinga í Víkinni og höfðum betur í æsispennandi leik. Það Víkingur sem var yfir mest allan fyrri hálfleikinn en síðan tókum við okkur á eftir leikhlé þegar um 8 mín voru eftir.

Ég kom inn á í vörnina og spilaði mest allan leikinn. Það var ekki leiðinlegt að fara aftur í KA treyju merkta 23.

Ég er núna að skrópa á leik Þreytts 3 sem eru að spila við Fylki í Fylkishöllinni. Ég sendi þeim góða strauma héðan úr HörpuSjöfn þar sem ég er að hala inn peningum fyrir að sitja og búa til heimasíðu…ekki slæmt það.

Það er víst laugardagur = nammidagur í dag, ég er reyndar ekki búinn að fá mér neitt í dag en það verður örugglega í kvöld. Hef enn haldið nýársheitin sem ég setti mér og mér sýnist ég ekkert á leiðinni að falla á þeim.

Er að reyna gera bloggið flottara, gera gestabók og spjallsíðu…gengur nokkuð vel en það gæti verið að síðan verði eitthvað brengluð næstu daga.

Tags: ,

Það verður allt brjálað að gera næstu daga, er að fara að vinna um helgina og síðan að keppa í handbolta. Norðanmenn hafa beðið um liðsstyrk og að sjálfsögðu reynir maður að gera allt fyrir sitt gamla og góða félag.

Hérna er planið:

Fimmtudagur (í dag): æfing með Þreyttum 3 kl. 22:20

Föstudagur: leikur með KA í 2.fl á móti Víkingi kl. 21:00

Laugardagur: Vinna frá kl. 10-17 í HörpuSjöfn í Skeifunni (missi af leik hjá Þreyttum 3) og var líka beðinn um að spila með KA, en kemst í hvorugan leikinn ;(

Sunnudagur: leikur með KA 2.fl á móti Fram kl. 11:00 og síðan vinna kl. 13-17

Þetta verður svakapuð fyrir mann sem er ekki alveg búinn að æfa nógu vel í vetur.

En þetta er góð prófraun og gaman að sjá hvernig þetta fer allt saman.

Að lokum er búinn að fá út úr þremur prófum í háskólanum, búinn að ná öllu alveg ótrúlegt en satt. Með hæst í stærðfræði af öllum fögum, það hefur nú ekki gerst síðan ég var í Gagganum eða lengra síðan. Og síðan þarf ég aldrei að fara aftur í Dýrafræði A því ég náði og gott betur, fékk 6.5 sem bjartsýnustu menn hefðu aldrei þorað að spá fyrir um.

Jæja ætla að lesa frumulíffræði til svona fjögur gangi mér vel

Tags: , , ,

Jæja nú eru tveir dagar síðan ég strengdi formlega áramótaheit og þrátt fyrir margar freystingar hef ég enn haldið þau.

Mikið hefur reynt á mig andlega og ekki vitað hvað taugarnar halda lengi.

Nú er ég búinn að fara í skólann aftur og er ég byrjaður í nýja húsinu Náttúru sem er hin glæsilegasta bygging, húsið er reyndar ekki full klárað en það er vel hægt að flytja þar fyrirlestra.

Það sem er fleira í fréttum er það að Þreyttir 3 eru að fara að spila næsta laugardag, ég kemst því miður ekki þar sem ég er að vinna í HörpuSjöfn frá 10-17. Það verður víst að ganga fyrir að hala inn peningum heldur en að vera að spila handbolta þó að það sé nú ekki eins skemmtilegt.

Ætla að fara að lesa frumulíffræði núna….byrja vorönnina með krafti, það þýðir ekkert annað.

Tags:

Jæja þá er að strengja áramótaheit, hef aldrei gert mikið af því svo nú ætla ég að prófa og sjá hvernig gengur.

1. Bara borða nammi á laugardögum og hátíðisdögum

2. Taka mig á í skólanum (úffff þetta verður erfitt)

3. Vera duglegur að hreyfa mig

4. Nota tannþráð á hverjum degi

Þetta dugar í bili, sjáum hvernig gengur með þetta

Tags:

Newer entries »