Ég, Birkir og Björgvin fórum á helvíti netta tónleika í gær á Gauknum en þar voru 200.000 naglbítar að spila. Þeir voru bara djöfulli góðir að mínu mati í afbragðs formi þessa dagana. Þeir eru að fara að spila á Samfés í kvöld og vonandi gengur þeim eins vel þar og í gærkvöldi.
Dagurinn í dag hjá mér byrjar annars bara nokkuð rólega, ég ætla að fara í frumulíffræði kl. 9:30 og fara svo í ræktina. Síðan þegar ég er búinn að taka rosalega á því þar þá ætla ég að klára örverufræðiskýrslur og lífefnafræðiskýrslur. Kvöldið verður svo rólegt að ég held…horft á American idol og eitthvað.
Á morgun er svo vinna fram að bikarleiknum þar sem KA spilar við FRAM. Gaman verður að sjá Arnar Þór klást við gömlu félagana á línunni og vonandi eigum við eftir að sjá fjörugan leik þar sem engu verður til sparað. Nú nú…ekki var það mikið fleira í fréttum að sinni, ég vona að þið eigið góðan dag og ljúfa helgi.
ps. þeir sem að vita ekkert um Naglbítana ættu að kíkja á síðuna þeirra, smella hér til þess og ég lofa ykkur að þið finnið eitthvað áhugavert! Þó það væri ekki nema flott föt sem hægt er að panta á síðunni þeirra á vægu verði.
