Djöfulsins andskotans …!!

Maður er náttúrulega alveg að drepast úr leti, nennir ekki einu sinni að rugla eitthvað hérna á blogginu. En það kemur vor eftir veturinn eins og skáldið sagði og þá léttist nú heldur betur brúnin á manni. Nú er bara stefnan á að klára skólann svona um miðjan maí og halda þá til Akureyrar og fara að vinna í HörpuSjöfn. Stefnt er á að leigja sér íbúð og vera næsta árið.

Það sem mér dettur nú ekki mikið í hug núna, þá læt ég þetta bara gott heita að sinni.

Ég er jú að fara að keppa við íþróttakennara-nemana frá Laugarvatni í kvöld og verðum við að gjöra svo vel og vinna á okkar heimavelli. Landsfrægir dómarar munu dæma leikinn og vonum við að það eigi eftir að fullkomna leik okkar, en það eru Kári Garðars og Binni.

Upplifði alveg rosalega lífsreynslu í gær en þá fór ég til læknis að láta kíkja á fæðingarblett sem er á belgnum á mér…bara svona til að vera viss um að allt sé í gúddý. En svona húðsjúkdómalæknar svífast greinilega einskins…ég var sprautaður í blettinn með einhverju deifilyfi sem var greinilega ekki að virka því þegar læknirinn ætlaði að taka vefjasýni úr mér með einhverri magnaðri grægju við fyrstu sýn var hún greinilega ekki að virka heldur því hún ætlaði að ná að smella smá bút úr blettinum en það tókst ekki. Ég kvartaði aðeins og sagði henni að deifingin væri sennilega ekki að virka. En læknirinn var ekki að hlusta neitt á mig því hún tók sér töng í aðra höndina og skæri í hina og klippti bara smá bút úr blettinum. Maður reyndi náttúrulega að halda andlitinu en djöfull var þetta vont….helvítis andskotans læknar!!

En yfir og út meira seinna……..

Tags: ,