Fínt að skreppa aðeins norður…

Kom í gær heim í Vesturbergið eftir að hafa verið fyrir norðan um helgina. Þetta var ágætis ferð, allt of stutt reyndar þar sem við komum frekar seint á föstudaginn til Akureyrar og lögðum frekar snemma af stað á sunnudaginn heim aftur.

En þetta var alveg helvíti góður laugardagur, ótrúlega afslappandi að koma til Akureyrar. Ef maður þarf að gera eitthvað tekur það minni tíma að framkvæma það heldur en bara að hugsa hvernig í fjandanum manni eigi að takast það hérna fyrir sunnan. Alltaf eitthvað bras, hvort maður hafi bílinn og hvenær maður þurfi að vera búinn að skila honum og ég tala nú ekki um ef maður ætlar að taka strætó þá er það nú bara vika í skipulagningu ;)

Ég held að bolludagurinn í ár hafi verið með þeim betri í mörg ár…eða er maður bara svona fljótur að gleyma? Þetta er reyndar enginn bolludagur, því þetta er bolluhelgi hjá mér og minni fjölskyldu. Amma dældi alveg í mig gómsætust bollum sem ég hef smakkað lengi…örugglega í svona ár eða eitthvað :=) Síðan var dagurinn í dag góður líka því Kolla bakaði ágætis bollur sem við settum karmelubúðing, rjóma og súkkulaðikrem á og Brynja tengdó kom með bollur úr vinnunni.

Jæja nóg í bili…hvernig voru bollurnar ykkar?

Tags: ,