Þetta er nú að verða dáltið þreytt að tapa hverjum leiknum á fætur öðrum í handboltanum. Við í Þreyttum 3 spiluðum við HR í Laugardalshöllinni og biðum lægri hlut eftir að hafa verið undir allan leikinn…það vantaði allan kraft í liðið og menn flestir að spila illa. Það stendur til að spila við Laugarvatn næsta mánudag á Laugarvatni og hvetjum við alla stuðningsmenn sem af einhverjum ástæðum sá sér ekki fært að mæta og fylla höllina í gærkvöldi að mæta líka í útileikina því ekki veitir af hvatningu. Stefnan er að spila leikinn klukkan 20:00 á Laugarvatni á mánudaginn n.k.
You are currently browsing the monthly archive for febrúar 2004.
Tags: Þreyttir3
Í kvöld kl.22:00 munu lið Þreytts og HR etja kappi í sjálfri Laugardalshöllinni. Heyrst hefur að stuðningsmenn beggja liða muni fylla meiri hluta áhorfendastúkkunnar en þó verða örugglega einhver sæti laus fyrir þá sem nenna ekki að mæta mörgum tímum fyrir leik til að tryggja sér sæti. Lið Þreytts hefur fjárfest í nýjum varnarmanni og skyttu fyrir leikinn og mun hann án vafa vera mikið í sviðsljósinu í kvöld.
En meira um úrslit og gang leiksins á morgun…..
Tags: Þreyttir3
Þjóðverjar voru að leggja heimamenn í Slóveníu af velli. Þeir áttu þetta bara skilið, voru miklu betri í leiknum, nýttu færin sín og svona. Er búinn að horfa á Evrópumótið í allan dag, Rússland vs. Frakkland, Danmörku vs. Króatía og loks Þýskaland vs. Slóvenía. Er því búinn að horfa á sjónvarp fyrir vikuna og ætla því að reyna breyta kassaaugunum sem eru komin á mig næstu daga og horfa bara á námsbækur.
Kolbrún mín er að fara í fyrsta ökutímann sinn á morgun þannig að ég legg til að allir haldi sig innan dyra : )
Neinei hún á eftir að fara létt með þetta eins og allt sem hún tekur sér fyrir hendur
Tags: Handbolti


