Já og ég sko búinn að borða mikið af saltkjöti og baunum. Reyndar grunar mig að þetta hafi verið aðeins of salt því ég held ég sé búinn með ein 4-5 stór vatnsglös núna nokkrum tímum síðar. Gott var það alla vega þó það sé ekki alveg það hollasta en ætli það drepi mann að borða þetta örfáu sinnum á ári, nei held ekki.
Ég fór í ræktina eftir skóla í dag eins og ég gerði reyndar líka í gær og var tekið heldur betur á því. Í dag var bekkpressu dagur og því tekið hraustlega á því, maður er svo sem ekki kominn með neinar rosalegar þyngdir strax en það á eftir að koma fljótlega með þessu áfram haldi. Svona átök voru gamlar konur á eftirlaunum greinilega hrifnar af því þær gjörsamlega góndu á mig þegar ég var hér um bil farinn að öskra í sumum tækjunum. Var sem sagt bara nokkuð sáttur með daginn í ræktinni og þyngdist um nokkur kíló af sjálfsáliti þó svo að vigtin inn í klefa sýndi svipaða tölu og síðast…hún mælir hins vegar bara líkamsþyngd en ekki sjálfsálitið sem sveif í kring um mig eftit að hafa sett pinnan neðar í þyngri lóð í öllum tækjunum sem ég fór í í dag. Hvort það var vegna þess að gömlu konurnar í salnum voru flestar háaldraðar og bara í upphitunarþyngdunum eða ég að bæta mig veit ég ekki…en það var alla vega góð tilfining!
Gaman væri nú að taka sig almennilega á og komast í gott form áður en sumarið kemur, því það er nú ekk mjög líklegt að maður nenni að hanga inni og lyfta þá. Þar sem veturinn er búinn að vera mjög snjósamur eða a.m.k. á köflum, þá ætla ég að gerast svo djarfur að spá góðu veðri í sumar og munum við sjá mikið af berjum í ágúst.


No comments
Comments feed for this article
Trackback link: http://www.egillthor.net/2004/02/sprengidagur/trackback/