Árshátíð í kvöld

Það verður glatt á hjalla í kvöld, fer á árshátíð líffræðiskorarinnar sem verður haldin í Versölum við Hallvarðarstíg…hvar sem hann er nú staddur?? Þetta verður vonandi fínt kvöld, við á 1. árinu byrjum á því að fara í partý til hennar Guðbjargar sem á heima í Garðabæ og síðan mun rúta sækja okkur þangað og keyra okkur í Versali. Það verður þriggja rétta máltíð og tónlist með matnum og ég veit ekki hvað og hvað. Maður er búinn að spara sig og peningabudduna lengi og engu eytt í djamm og fyllerí en það gæti eitthvað breyst í kvöld :) Heilsan er reyndar ekki alveg upp á það besta eins og er, en vonandi að maður komist í gegnum helgina án þess að þurfa að leggjast í veikindi. Þarf helst að mæta í vinnu á morgun líka og síðan get ég safnað kröftum fyrir komandi viku í skólanum. En ég segi bara eins og Birkir félagi GÆS (get ætla skal) og þá hlýtur maður að standa uppi fullur (a.m.k. í kvöld ;) ) af orku á mánudaginn og fer að taka sig á í skólanum. Það er orðið allt of stutt í prófin og maður ekki almennilega byrjaður að lesa.

Þreyttir voru að spila síðasta fimmtudag við Víking 2. Við svöruðum fyrir okkur á heimavelli og unnum þá tiltölulega létt. Kallinn setti 7 slummur og hefur ekki skorað svona mikið í mörg ár örugglega og voru þau í öllum regnbogans litum og ekki furða þó maður sé kallaður kamelljónið á síðu Þreyttara.

Ég er að lesa efnafræði með öðru auganu hérna á milli þess sem ég sel viðskiptavinum magnaða liti á húsin þeirra. Ætla að halda aðeins áfram, á bara klukkutíma eftir af þessum vinnudegi. Yfir og út………

Tags: ,