Já nú er ballið að byrja, Lífmælingar eru á morgun kl. 9:00. Ég er búinn að reyna að læra eitthvað undir þetta og geri mér vonir um að ná…það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn. Held að þetta verði samt frekar langur dagur og mikið pælt í fervikagreiningu og öðrum gullmolum sem þeir ætlast til þess að maður kunni. Síðan er bara að vona KA-mönnum gangi allt í haginn á heimavelli í kvöld. Áfram KA!! Ég held að þessi pása sé orðin fín, búinn að taka bloggsíðu rúntinn, skoða mogann og KA-síðuna. Þannig að maður er klár í að halda áfram að lesa.
You are currently browsing the monthly archive for apríl 2004.
Góðan daginn, gaman að sjá að sumarið er á næsta leyti og skólinn styttist óðum. En til að ljúka skólaárinu þarf maður víst að taka próf og er það miður…því ég hef nú aldrei verið talinn vera mikill prófamaður, á það til að misskilja spurnigar og svara því sem mig langar til að svara…frekar en að svara því sem spurt er um Það má víst ekki, ekki gefur það hátt á prófi að rugla bara um daginn og veginn án þess að vita nokkurn skapaðann hlut hvað maður er að tala um. Þetta dugði reyndar í síðustu prófum en nú verður maður að einbeita sér og taka síðustu þrjár vikurnar með trompi og gefast ekki upp þó það blási á móti. Helgin var svona ágætt bara, ég fór í vinnuna báða dagana, en gat þó lært eitthvað báða dagana…hefði getað gert meira en maður býr alltaf til þessa djöfulsins pressu svo maður þarf að lesa í belg og biðu með adrenalín flæði í nokkra tíma. Les bara best undir pressu en ég á soltið mikið eftir núna svo að ekki þýðir að bíða fram á siðasta sólahring með þetta eins og oft hefur gerst í menntaskólanum. Það kemur að því að maður les eins og á að gera, allan veturinn og glósar með því. Ég og Birkir fórum og hittum félaga okkar í Þreyttum (utnadeildarliðinu okkar í handbolta) það var gaman að hitta strákana og fá sér 1-2 öllara. Birkir var á bíl að þessu sinni og nýtti ég mér það…hefur venjulega verið öfugt þannig að maður fær nú ekki mikið samviskubit yfir því Ég fór út að skokka áðan og tók nokkrar armbeygjur og magaæfingar…formið greinilega horfið, þetta litla sem var fyrir. Helvíti gott samt að fara í Elliðaárdalinn og fá smá frískt loft í lungun. Yfir og út…
Já nú er páskafríið búið og alltaf styttist í prófin…maður er bara búinn að borða, vinna og sofa. Gott líf en ekki vænlegt til árangurs í skólanum…Ég og Kolla sáum myndina Just maried í gær, hún var bara helv.. góð.
Veðrið í gær var ekta Reykjavíkurveður, fyrst skein sólin í morgunsárið síðan kom þessi svaka snjókoma og jörðin varð hvít á svipstundu. Klukkutíma síðar var allur snjórinn farinn og sólin farin að skína. Stoppaði samt stutt því það kom rigning í smátíma og fór að hvessa aðeins. Alveg ótrúlegt þetta veður fyrir sunnan.
Núna í dag er sól og soltill vindur…veit ekki hvað verður þannig lengi.
Jæja ætla að halda áfram að læra…ekkert meira í fréttum að sinni.
Í dag er páskadagur, ég er búinn að opna páskaeggið mitt og þakka ég Kollu minn kærlega fyrir það. Nóa síríus eggin klikka ekki, mitt var númer 4…málshátturinn var “þeim er búið fall sem byrgir sín augu”.
Vona að þið hafið það jafn gott og ég er búinn að hafa það. Við fengum lambahrygg í gær hérna í Vesturberginu og fáum nautasnitsel í kvöld
Verkefni dagsins er að gefa köttunum Sóloni og Nökkva að borða…þeir verða að fá páskamatinn sinn á meðan eins og við. Er eitthvað að reyna að læra á efnafræðiforrit svo ég verði fljótari að henda inn efnafræðiglósunum mínum í tölvuna. Þetta er alveg magnað forrit sem Jóhann Sigurjónsson efnafræðikennari í MA lét mig fá fyrir mörgum árum og ég hef aldrei skoðað almennilega fyrr en núna.
Kveð að sinni……
Tags: Málsháttur, Páskar, Sólon og Nökkvi
Það er þetta fína veður úti í núna og ætla ég að fara út á eftir og njóta þess. Það er reyndar frekar kalt en það gerir svo sem ekkert til maður klæðir sig bara í eitthvað hlýtt. Ég og Kolla fórum að sjá Sugar Babes í gær, en Styrmir og félagar í Skyttunum voru einmitt að hitta upp með Önnu Katrínu með sér. Kolla vann miða í Visa svart leik á netinu þannig að við sluppum nokkuð ódýrt út úr þessu. Þetta var bara ágætis skemmtun og gaman að horfa á. Meðalaldurinn þarna inni var frekar lítill en mest var um gelgjur úr 7-10. bekk. Þó voru einstaka fólk sem við þekktum eins og Jón Víðir, Baldvin og Heimi Árna. Ég hef það ekki meira að sinni, ætla í bíó í kvöld eftir mat hjá Bjarna og Hrefnu.
Tags: Sugar Babes, Veður
Ég er kominn í páskafrí…ííííhhhaaaa Ég er nú samt mættur í bókhlöðuna og er að klára efnafræðiskýrslu og sitthvað fleira. Ég og Kolla verðum að vinna slatta í þessu fríi og er það bara gott mál að vinna og læra á milli þess sem maður úðar í sig páskaeggjum. Ég held við verðum að vinna eitthvað heima líka því nú er verið að taka baðið í gegn og mölva allar flísarnar niður. Brynja ætlar að senda mig í HörpuSjöfn á eftir og ég á að kaupa spartl, kítti, málingu, sandpappír og ef til vill eitthvað fleira. Við vorum vinsamlegast beðin um að gera eitthvað í málunum því það lekur meðfram glugganum og niður á næstu hæð inn í einhverja geymslu þegar við erum í sturtu. Það verður því eitthvað lítið sturtað sig heima á næstunni…það er enn hægt að fara í bað en þeir sem eru um einn og nítíu á hæð skilja þegar ég segi að það er ekki þægilegt að liggja ofan í venjulegri stærð af baðkari. Annað hvort standa lappirnar upp úr eða allur efri hlutinn…þannig að ég kýs frekar heita pottinn í sundlaugunum heldur en baðkarið heima. Ætla að halda áfram með efnafræðina…hafið það sem best í dag!
Tags: HarpaSjöfn, Páskafrí
Nú verða ekki meiri skrif hérna fyrr en það hellist yfir mig sköpunargleði og áhugi til að læra meira í Html…ég held að það verði í fyrsta lagi einhvern tíman í sumar.
Ef þið viljið vita hvað ég er brasa þá verðið þið að skoða nýju síðuna .
Tags: Ný síða
Jæja nú er að taka á honum stóra sínum um helgina og lesa myrkrana á milli í vefjafræðinni…var ekki alveg nógu duglegur í dag en er samt kominn á ágætis ról með þetta.
Ég fór í smá hjólatúr, kanna óhættar leiðir hérna í Breiðholtinu svo við Kolla getum hjólað saman áhyggjulaus…þær eru sko ekki á hverju strái
Tók að sjálfsögðu tímann með nýja hraðamælinum var bara með þokkalegasta meðalhraða á þessum annars ágæta hring…það er vissulega ekki fyrir alla að fara mínar hjólaleiðir þannig að ég verð kannski að endurskoða hann áður en nýji gripurinn hennar Kollu verður prófaður í fyrsta sinn.
Ekki var það meira að sinni…yfir og út
Tags: Hjólatúr, Vefjafræði
Skólinn er alveg á útopnu núna á að skila gríðarlega mörgum verkefnum fyrir páska og því verður lært dag og nótt fram á þriðjudag en þá fer ég í páskafrí. Eftir það verður farið að læra enn meira alveg fram að prófum…
Ætla að halda áfram að læra og hætta að skrifa, nýja síðan er alveg að virka, gaman að því
Tags: Skólinn
