Já nú er ballið að byrja, Lífmælingar eru á morgun kl. 9:00. Ég er búinn að reyna að læra eitthvað undir þetta og geri mér vonir um að ná…það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn. Held að þetta verði samt frekar langur dagur og mikið pælt í fervikagreiningu og öðrum gullmolum sem þeir ætlast til þess að maður kunni. Síðan er bara að vona KA-mönnum gangi allt í haginn á heimavelli í kvöld. Áfram KA!! Ég held að þessi pása sé orðin fín, búinn að taka bloggsíðu rúntinn, skoða mogann og KA-síðuna. Þannig að maður er klár í að halda áfram að lesa.

No comments
Comments feed for this article
Trackback link: http://www.egillthor.net/2004/04/fyrsta-profið-er-a-morgun/trackback/