maí 2004

You are currently browsing the monthly archive for maí 2004.

Já það var heldur betur tekið á því í morgun þegar ég ætlaði að fara með Stefáni frænda að hlaupa upp í Hlíðarfjall. Hann sagðist ætla frekar að hlaupa út í Þelamörk og fara í sund þar með familíunni, þannig að ég dreif mig bara á hjólinu upp eftir. Þetta var alveg í líkingu við það að fara upp Kirkjutröppurnar alveg á fullu, nema hvað að ég held að ég hafi verið enn þá móðari. Ég hef einu sinni hjólað sömu leið en fór þá bara upp að grindahliðinu og ætlaði að sjá hvort ég næði gamla tímanum…það gekk ekki en ég kastaði mæðinni í smá stund og hélt svo áfram alla leið upp í hótel. Þetta tók 36mín með 5 mínútna stoppi hjá grindahliðinu og var það því alveg ásætanlegur árangur miðað við að ég er að byrja hreyfa mig. Það tók aftur á móti ekki nema svona 7 mín að hjóla niður og GPS-inn mældi mig á 63km/klst þó ég hafi bara látið mig renna. Eftir þetta er ég svo búinn að borða grillaðan silung sem bræður mínir veiddu, slá garðinn og fá mér ís með Braga og Möggu. Held ég taki því bara rólega núna fram á kvöldið, Kolla fer að vinn klukkan 18, mamma og pabbi eru í Grásteini (sumarbústaðnum) og bræður mínir og Stefán frændi eru á suðurleið. Ég fer því í kjúlla til ömmu…ekki slæmt það

Tags: , ,

Já það var mikið að gera í dag þar sem sólin lét loksins sjá sig eftir þó nokkra bið. Það gekk allt vel og við selldum alveg fullt. Ég er að fara að vinna aftur á morgun frá 10-14 og fer svo í stúdentsveislu til Árnýar sem var að útskrifast af handmenntabraut úr VMA. Það er aldeilis glæsilegt hjá henni og óska ég henni til hamingju með það. Annars er lítið að frétta engar strætó sögur til að segja frá, maður hjólar alltaf í vinnuna eða tekur Kó-rolluna ef að enginn er á henni. Ég vona að þið njótið kvöldsins, held ég verði bara rólegur.

Tags:

Jámm maður er ekki búinn að blogga lengi, netið í HörpuSjöfn er ekki í lagi þannig að maður getur ekkert skrifað hér þegar það er ekkert að gera. Þeir fyrir sunnan sögðu að það væri bara frosið í leiðslunum hjá okkur, en það hlýtur að fara að þiðna þar sem það er búið að vera ágætis veður hérna. Það sem hefur drifið á mína daga síðan er að við Kolla fórum og fengum okkur rosalega hamborgara með Brynju mömmu hennar Kollu á American Style, skruppum svo aðeins í kringluna til að drepa tímann og flugum svo norður. Þetta var rosa flugferð, glampandi sól tók á móti þegar við komum inn í Eyjafjörðinn og fengum við smá útsýnisflug því flugstjórinn flaug út fjörðinn og lennti svo í suður átt. Það hafði víst ekki sést til sólar í nokkrar vikur þannig að hún hefur látið sjá sig af þessu tilefni. Ég fór svo að vinna klukkan 8 á fimmtudaginn og vann síðan föstudag og laugardag líka. Í dag er maður búinn að vera á fullu að vinna í garðinum með mömmu, ömmu og síðan þvoðum við Kolla gluggana á húsinu. Síðan fór ég til Trausta, þar sem pabbi var að vinna ásamt Val og Magnúsi. Ég og Valur fórum og henntum tveimur kerrum af rusli, ásamt afa sem stjórnaði þessu öllu saman og síðan fórum við upp á hauga með átta ruslapoka af garðúrgangi.

Í gær fórum við Kolla í Eurovison-partý til Fanneyar og Arnórs. Þetta var ágætis skemmtun og fannst mér Úkraína bara með nokkuð gott atriði. Jónsi stóð sig vel en þetta lag gekk ekki núna, því það voru hressu og fjörugu lögin sem stóðu upp úr. Ég held ég fái mér smá kríu fyrir matinn, það á að grilla…amma og afi koma í mat. Ekkert betra en maturinn hérna í Espilundi 13 Vonandi hafið þið sunnlendingar það jafn gott og ég…maður finnur hvernig slakknar á manni að komast hingað norður stress og annar pirringur flýgur út í hafsauga þegar maður andar hreinu og tæru norðleska loftinu að sér.

Tags: , ,

Já nú er þetta alveg að verða búið, bara eitt próf eftir klukkan 13:30-16:30 og síðan flug heim klukkan 19:00. Það verður magnað að komast norður í vinnuna. Maður verður svo að fara að kaupa sér kort í ræktina strax og fara að taka á því. Ég og Kolla kláruðum að pakka í dag og sendum allt draslið með FMN…þannig að það verður sofið á dýnum í Vesturberginu í nótt en það verður þó eitthvað lítið því að ég þarf að læra fram á nótt. Núna tekur maður á honum stóra sínum og ekkert múður. Ég og bræður mínir fórum í klippingu í gær til Kristínar og var hún ekki lengi að laga okkur til. Við Áki erum nú stutthærðir en Bragi aðeins minni lubbi. Það er allt annað að sjá Thoroddsenana núna og hafa fjöldinn allur af fyrirsætustörfum borist til okkar en það er verið að fara yfir tilboðin í þessum töluðu orðum. Eitt hljómaði mjög vel, þar eigum við að sitja fyrir á lendarskýlum í eina viku í Frakklandi, þetta er náttúrulega ekki slæmt tilboð þar sem við fjölskyldan erum að fagna 50 ára afmæli móður minnar á sama tíma og hver veit nema að við sláum til. Jæja best að fara að læra meira, mér lýst ekkert á blikuna hjá Valsmönnum…þeir eru langt undir og stutt til leiksloka.

Tags: ,

Nú eru bara tveir dagar eftir að læra og svo próf á miðvikudaginn. Ætla að vera duglegur til að verða fimm, þá förum við Bragi bróðir í klippingu. Eru að spá í að vera í stíl í þetta skiptið, taka bara allt af en halda síddinni í hnakkanum. Sítt að aftan er alveg að gera sig í dag og ætlum við því að taka þetta alvarlega og safna í stert Það var ekki margt sem að ég gerði um helgina, þurfti að vinna í gær og síðan horfði ég á Haukana taka Valsmenn nokkuð létt í handboltanum í sjónvarpinu. Valur verður að fara að taka sig á svo að skoðannakönnun síðunnar muni koma með rétt úrslit. Allir sem hafa tekið þátt í henni hafa spáð Val sigri, það vona ég líka að þeir geri…en betur má ef duga skal! Ég og flugmaðurinn fórum í golf um daginn í elliðaárdalnum, fundum fínt svæði með gríni, sadngrifju og fínni brekku til að slá niður. Ég var eitthvað hægri sinnaður í sveiflunni því boltarnir fóru flestir í fallegu sveig lengst til hægri. Flugmaðurinn örvhennti var ekkert að hika við þetta og sló allar kúlurnar sínar svona líka mörghundruð metra. Held að hann sé kominn í rétta sportið…getur líka verið að öll þessi prófaþreyta hafi hjálpað honum og hann hafi séð höfuð kennara sinna í stað boltanna og bara látið vaða í þá. Jamm það var fínnt í golfinu en ég verð greinilega að fara að æfa mig betur ef ég ætla að halda í Tiger 2. Best að fara að læra núna, ég verð að skipuleggja tímann vel á lokasprettinum svo að hægt sé að brasa eitthvað í fluttningum með prófalestrinum.

Tags: , , ,

Jæja nú eru 3 próf af 4 búin…og það besta eftir. Mér hefur allavega fundist skemmtilegast í þessu fagi, lífefnafræði í vetur. Það er hægt að enda þetta ár með stæl og setja í svona 8-9 í þessu prófi…það er stefnan a.m.k. en maður veit svo aldrei hvernig gengur í prófinu. Þar ræður dagsformið öllu, ekki hvað maður er búinn að vera ofvirkur að spurja í tímum og mæta vel og gera allar skýrslurnar með stæl. Ég er meira fyrir svona vetrareinkunn eins er hjá Kollu, mörg verkefni sem gilda og þá þarf maður ekki að treysta á 3 klukkutima próf til að fá fína einkunn. Svona vilja þessir kennarar hafa þetta og það þýðir lítið fyrir mig að vera að væla út af því. Ég sé að skyldmennin eru eitthvað farin að hripa á þessa síðu, ég get ekki sagt annað en orðaforði Sigurlaugar Ránar sé farinn að líkjast ískyggilega föður hennar. En sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Best að fara að sletta aðeins úr klaufunum núna og safna orku fyrir síðasta prófið…

Tags:

Jæja nú er búið að panta flug og förum við Kolla heim í heiða dalinn kl. 19 þann 12. maí. Ég ætla að mæta í vinnu daginn eftir og Kolla ætlar að fara í MA og í atvinnuviðtöl. Er að læra með Kollu upp í VRII núna og verðum við þar eitthvað fram á kvöld.

Það er smá pása í prófunum frá 6. -12. en þá er síðasta prófið mitt…hver veit nema að maður pakki aðeins þarna en síðan klárar Kolla það því hún er búin 10. maí. Takk fyrir kveðjurnar í síðasta bloggi Thelma og Sigurlaug Rán! Ég þarf að hringja í þig Thelma við tækifæri, ertu komin með aðra blogg síðu? Sigurlaugu Rán og fjölskyldu verð ég svo að hitta á milli prófanna.

Tags: ,

Já nú er eitt próf búið, gekk ekki alveg eins og skyldi en það var svo sem ekkert sem kom mér á óvart…ákvað samt að mæta í prófið til að fá smá skell. Þá leggur maður harðar af sér í næstu próf. Ég þarf að læra í allan dag og fram á kvöld því ég er að fara að vinna í fjóra tíma á morgun…það lítur allt út fyrir það að ég komist ekki á KA-leikinn en ég sendi þeim strauma í gegnum sjónvarpið eða eitthvað. Jæja best að halda áfram að lesa örverufræðina…kveð að sinni.

Tags: ,