júní 2004

You are currently browsing the monthly archive for júní 2004.

Mögnuð helgi

Já þetta var fín helgi ég skemmti mér mjög vel. Ég mætti með Kollu í Grástein þar sem við borðuðum grillað lambalæri…það var svo gott veður að við borðuðum úti. Síðan héldum við Kolla heim og ég fór til Jóns Víðis í partý en Kolla var bara heima enda þurfi hún að vakna og vinna bæði á FSA og á Gallup. Partýið var eins og þau gerast best…við fengum að kynnast góðum vini Jóns og Rúnars sem þeir kölluðu Ásthildi Helgadóttur…hún var úr 36mm breiðri slöngu ca. hálfur metri að legnd. Á öðrum endanum var síðan trekt sem hafði verið teypuð við slönguendann. Síðan voru hálfslíters bjórflöskur og dósir tæmdar ofan í Ásthildi…síðan fóru menn á hnéin og settu hinn endann við munninn og gáfu merki er þeir voru tilbúnir, þá lyfti Rúnar Ásthildi upp í hér um bil lóðrétta stöðu og þá rann ölið með miklum látum út úr henni og ofan í þann sem var á hnjánum. Mér þykir bjór nú ekkert sérstakur og er enginn þambari en þarna gekk áfengið út úr Ásthildi ofan í mig og svona 7 sekúndum ekki meira…venjulega er ég svona hálftíma með einn bjór þannig að þetta var alveg rosalegt. Eftir að flestir höfðu reynt við Ásthildi, löggan búin að droppa við þá var farið í Sjallann á Jet Black Joe. Það var nú ekki mjög fjölmennt en það var alveg gríðarlegt stuð í félögunum og klukkan allt í einu orðin hálf fimm. Ég skreið síðan á koddan svona um fimm leytið eftir að hafa fengið mér göngu heim. Nú man ég afhverju ég djammaði svona sjaldan fyrir sunnan, þar er sko ekki hægt að rölta heim af djamminu í rólegheitunum. Þar kosta kvöldið a.m.k. 2000 kalli meira bara út af því að maður neiðist til að taka taxa. Sunnudagurinn var síðan mjög einfaldur, ég vaknaði nokkuð aumur í hausnum ég hef greinilega rekið hausinn í svefni eða þá að hún Ásthildur er ekki öll þar sem hún er séð Eftir að hafa skriðið á fætur um þrjú leytið horfði ég á fótbolta og formúluna þangað til að enn ein veislan var haldin hér í Espilundi. Áki og Anna eru komin norður því þau er 10 ára stúdentar frá MA. Það var því allir mættir nema Stefán og kó en við hittum þau nú fljótlega því það styttist í Frakklandsferðina. Við förum út á Laugardaginn næsta og ég var að kaupa miða handa henni Kollu minni í dag þannig að það mæta allir þangað. Í dag tók ég ágætis æfingu, fór í sund og synnti 1 km. Ætlaði að vera 20 mín en formið var greinilega ekki alveg komið, var 23 mín…það er líka miklu flottari tala. Ef því eitthvað að stefna að…þarf að fara undir 20 mínúturnar í lauginni og undir 30 mínúturnar upp í Hlíðarfjall. Jæja skrifa meira að sinni…það verður bekkjapartý á morgun á Dagverðareyri hjá 4.U og síðan hjá Önnu Guðrúnu 16. júní þannig að það er stíft programm framundan.

Tags: , , , ,

Já ég dró Steinþór frænda með mér út í kvöld og við tókum nokkur æfingahögg á golfvellinum á Þverá. Við reyndar vissum ekki alveg hvar völlurinn væri og vorum búnir að keyra dágóðan spöl inn í Eyjafjörðinn. Keyrðum inn að Hrafnagili, fórum yfir brúnna og héldum áfram inn fjörðinn. Þetta hefðum við náttúrulega ekki átt að gera en maður er vitur eftir á og nú vitum við nákæmlega hvar þetta er. Sían fengum við það staðfest að bændur eru byrjaðir á fullu í heyskap og engin lygi að allt sé miklu fyrr á ferðinni heldur en í venjulegu ári. Golfið gekk ágætlega hjá Steinþóri en ekki alveg nógu vel hjá mér. Við hittum samt helvíti fínana kall sem var að sjá um golfvöllinn þarna og saðgði okkur að þeir væru að fara að halda námskeið þarna á næstunni og það er því aldrei að vita nema að maður slái til með það. Verð nú að kunna undirstöðu atríðin svo ég sé nú að æfa mig rétt. Annars er ekki margt að frétta…það var allt á afturfótunum í vinnunni í dag, litavélin bilaði…einhver helvítis dæla gaf sig og við þuftum að skipta um hana og á meðan lak helvítis litarefnið út um allt. Þetta hafðist þó fyrir rest enda einstaklega laghenntir menn sem vinna þarna Ég er orðinn frekar lúinn núna…ætla að fara að leggja mig.

Tags: ,

Jámm ekki var vanþörf á því að taka hjólgarminn í gegn. Ég er búinn að vera á Borgardekkjum síðan ég var fyrir sunnan því þar hjólaði maður bara eftir hjólastígum á öðru hundraðinu. Nú er ég kominn með “off-road” dekin undir því maður þarf að fara að gera sér ferð í stígana í Kjarnaskógi og líka upp i Fálkafell. Það sem kom mér af stað í þetta var að það var sprungið á aftur dekinu og ég ákvað bara að taka það alveg í gegn. Núna er ég búinn að taka bæði skermana og bögglaberana af hjólinu líka því þeir munu bara flækjast fyrir í þessu ferðum. Bragi bróðir er hérna fyrir norðan núna, hann mætti bara á staðinn og kom Möggu heldur betur á óvart. Hann er búinn að redda mér nokkrum forritum og nú fer ég að reyna að læra á þau þegar Kolla er í vinnunni og ég ekki í hjólaferðum. Hann fjárfesti líka í bók sem fjallar um heimasíðugerð og hver veit nema að maður gluggi aðeins í hana og mæti svo með ferska síðu seinna í sumar En nú er ég búinn að vera allt of lengi í tölvunni í og verð að fara að hætta…meira seinna.

Tags: ,

Mættur í vinnu..

Já maður er mættur til vinnu þrátt fyrir að vera léttur á því í Ýdölum í gær. Við gerum ágætis ferð þangað, fór með Birki, Kollu og Fanneyju. Birkir keyrði því hann var mættur til að ná myndum af íslensku sveitaballi og fór fimlega með nýju myndavélina. Held hann hafi náð nokkrum góðum skorumyndum fyrir séð og heyrt…hann var samt hvergi sjáanlegur þegar roslegur ástaleikur átti sér stað við hliðina á okkur Kollu og vinum hennar. Einn gæji var gjörsamlega að borða eina stúlkuna og mér sýndist hann hafa misst eitthvða ofan í buxurnar hennar því hann var að þreifa eftir einhverju þar. Við vorum annars komin heim um hálf fjögur og var farið beint að sofa, eftir að maður hafði sent fötin með þessari líka reykingastibbu í sótthví. Það ætti að vera stranglega bannað að reykja á svona skemmtistöðum! Vona að lög um það komi sem fyrst þegar menn eru búnir að fá nóg af fjölmiðlafrumvarpinu. Jæja dagurinn er að verða búinn hérna HörpuSjöfn best að fara að loka þessari búð og halda heim á leið.

Tags: ,

Ég er búinn að vera alveg arfa slakur að skrifa á þessa bloggsíðu síðustu daga og eiginlega alveg síðan ég kom norður. Maður er bara alltaf að brasa eitthvað og er lítið í tölvunni svona á sumrin. Það er alltaf einhver ritstífla í mér þegar ég ætla að fara að skrifa hérna þannig að ég hætti yfirleitt við. Það er samt fínt að sjá að einhverjir nenna að kommenta á þetta í rugl í manni, þó maður nenni ekkert að skrifa á móti. Ég komst þó að einu í vinnunni um daginn að það var ekki mjög merkilegur árangur að hjóla upp í Hlíðarfjall á 36 mín, þó að klukkan hafi gengið í 5 mínútna pásunni, því að metið þarna upp eftir á víst einhver gönguskíðadrjóli sem er 23 mín. Þannig að nú verð ég aldeilis að fara að spýta í lófanna og hjóla nokkrum sinnum þarna upp og athuga hvort tíminn lagist ekki eitthvað. Annars er púnterað á hjólinu núna svo maður hjólar ekki mikið. Verð að gera við það á morgun. Önnur stórmerkileg frétt er að maður þarf að ná 5.5 í meðaleinkun í fimm hæstu áföngunum í Háskólanum til að komast á milli ára í líffræðinni. Þetta er bara gott mál því ég er búinn að ná því og er því heimilt að hefja annað ár í líffræðinni þegar þar að kemur. Ætla nú samt að taka nokkur próf aftur því það eru algjörar sultu einkunnir í sumum fögunum og ekkert gaman að hafa þær á einkunnaspjaldinu…maður náði þessu þó í bili, fegra svo einkunnaspjaldið síðar.

Já svo eru það Ýdalir á morgun, veit ekki alveg hvort ég fer…það kemur í ljós á morgun. Maður er orðinn svo gamall að maður passar ekki inn í þetta, eða hvað…ætla allir að mæta?

Ætla að fara að halla mér…sofið þið vel!

Tags: , ,