3. júní 2004

You are currently browsing the daily archive for 3. júní 2004.

Ég er búinn að vera alveg arfa slakur að skrifa á þessa bloggsíðu síðustu daga og eiginlega alveg síðan ég kom norður. Maður er bara alltaf að brasa eitthvað og er lítið í tölvunni svona á sumrin. Það er alltaf einhver ritstífla í mér þegar ég ætla að fara að skrifa hérna þannig að ég hætti yfirleitt við. Það er samt fínt að sjá að einhverjir nenna að kommenta á þetta í rugl í manni, þó maður nenni ekkert að skrifa á móti. Ég komst þó að einu í vinnunni um daginn að það var ekki mjög merkilegur árangur að hjóla upp í Hlíðarfjall á 36 mín, þó að klukkan hafi gengið í 5 mínútna pásunni, því að metið þarna upp eftir á víst einhver gönguskíðadrjóli sem er 23 mín. Þannig að nú verð ég aldeilis að fara að spýta í lófanna og hjóla nokkrum sinnum þarna upp og athuga hvort tíminn lagist ekki eitthvað. Annars er púnterað á hjólinu núna svo maður hjólar ekki mikið. Verð að gera við það á morgun. Önnur stórmerkileg frétt er að maður þarf að ná 5.5 í meðaleinkun í fimm hæstu áföngunum í Háskólanum til að komast á milli ára í líffræðinni. Þetta er bara gott mál því ég er búinn að ná því og er því heimilt að hefja annað ár í líffræðinni þegar þar að kemur. Ætla nú samt að taka nokkur próf aftur því það eru algjörar sultu einkunnir í sumum fögunum og ekkert gaman að hafa þær á einkunnaspjaldinu…maður náði þessu þó í bili, fegra svo einkunnaspjaldið síðar.

Já svo eru það Ýdalir á morgun, veit ekki alveg hvort ég fer…það kemur í ljós á morgun. Maður er orðinn svo gamall að maður passar ekki inn í þetta, eða hvað…ætla allir að mæta?

Ætla að fara að halla mér…sofið þið vel!

Tags: , ,