Það er allt í rólegheitunum hér í Spító, ég er búinn að vera að læra og ákvað að taka smá pásu. Ekki margt að frétta svo sem, nema að það er farið að rigna eins og ég veit ekki hvað hérna fyrir norðan. Núna fer að styttast í suðurferð hjá mér, legg í’ann á sunnudaginn og verð alveg í viku í verklegri erfðafræði hjá Prokaria…hver veit nema að við finnum einhver spennandi gen eða klónum mann
Ég fór í skólann um hálfeitt í dag…þar sem verkleg líftæknileg örverufræði fór fram. Það er svo sem ekki frásögu færandi nema hvað að við vorum að sjúga hveraörverurnar sem við söfnuðum í Mývatnssveitinni um daginn upp úr flöskum. Til þess þarf maður að nota sprautur og nálar…það vildi ekki betur til en svo að ein stelpan stakk nálinni í gegnum puttann á sér Við vorum náttúrulega dauðskelkaðir, ég, Frímann og Steinar kennari en stelpan sem heitir Rut var alveg ótrúlega hraust. Maður hefði náttúrulega ælt og látið líða yfir sig ef þetta hefði komið fyrir mann en hún fékk bara bréf og smá spritt. Hún var með blóð sitthvoru megin á puttanum og þá er ég ekkert að tala um rétt í gegnum skinnið…nei nei nálin fór í gegnum miðjan puttann, sennilega rétt undir beinið. Ég var líka smá klaufi í þessum sama tíma því að þegar ég var búinn að ná hveraörverum úr flöskunni þá var nálin svo helvíti föst í að ég náði að stinga mig á henni, loksins þegar ég náði henni út. Nálin hjá Rut var þó dauðhreinsuð! Ég býst því alveg eins við því að ég fái nýja sótt sem verður kölluð hverasýki á íslensku og Basilus thermophilus egilus á latínu. Hún mun lýsa sér með miklum vindgangi með hveralykt og ljótum kýlum sem springa og krauma á líkamanum líkt og leirhverirnir sem örverurnar lifa í.
Jámm útlitið er því ekki gott og ef ég skrifa ekki hérna á næstunni þá gæti verið að ég sé í rannsókn á FSA, njótið lífsins ég ætla að fá mér C-vítamín og fara að hvíla mig.
