Góða kvöldið hér…

Jæja eru ekki allir að missa sig í drykkju og vitleysisskap í þessum töluðu orðum…? Jú alveg örugglega! Ég er þó undantekning á því að ég tók hraustlega á því um síðustu helgi og var að vinna frá 8-20 í dag. Ég var í fyrsta sinn að landa afla upp úr togara og var það hreint mögnuð lífsreynnsla. Ég er ekki frá því að puttarnir á mér séu bólgnir í fingurgómunum því að við vorum að lyfta einum 200 tonnum af fiskimjöli upp úr togaranum Kiel. Fyrir þá sem ekki þekkja til er þetta alveg hrykalega stórt skip sem veiðir og framleiðir fiskimjöl í 70 daga túrum og er skip dótturfyrirtækis Samherja hf, sem heitir Doutchefishfang union (held að það sé skrifað svona ) Þetta voru 35kg og 50kg pokar og var því þrautin þyngri að halda á þessu…en maður beit á jaxlinn og móaðist við.

Núna er ég hins vegar búinn að fá mér 140g nautaborgara frá þeim á Götugrillið (nýr staður beint á móti BSO) og bragðaðist hann alveg abragðs vel. Ég kíkti aðeins á ömmu og afa í Mýrarveginum og horfði á mynd með ömmu (afi horfði með öðru auganu inn í rúmi )

Kolla er að skemmta sér með vinkonum sínum og er vísta að fara í bekkjarpartý líka þannig að ég á ekki von á henni fyrr en um seint og um síðar meir. Ætli maður fari bara ekki að sofa ef það er ekkert meira í sjónvarpinu, ég er farinn að finna fyrir þessum svaðalegu strengjum strax…þannig að það er best að fara að hvíla lúin bein. Vonandi að þið njótið kvöldsins…góða nótt!

Tags: ,