Já hvað haldið þið að hafi gerst í dag…ég mældist 2cm stærri en ég hef áður mælst…189cm og aldrei áður mælst jafn þungur heldur 83kg. Maður er greinilega að blása út eins og skriðjökull með kraumandi eldgos undir sér…eða eitthvað í þá veru.
Nú getur maður ekki beðið eftir næstu mælingu sem ég ætla að gera í sumar þegar maður fer að standa meira upp á endann og hættur að sitja hokinn yfir skólabókum. Ég hlýt að ná 190cm áður en yfir líkur Annars get ég svo sem ekki kvartað yfir þessu…það er alltaf 2cm skekkja í þessum mælingum (nokkuð viss ) svo og ég tel að hún sé mér í óhag þannig að í raun er ég 191cm og orðinn stærri en pabbi. Æjji best að sætta sig við það…er stubburinn í minni fjölskyldu, pabbi 190, Bragi 192 (held ég) og Áki 195…þannig að ég verð að vinna þá á öðrum sviðum en þessu.
Pabbi kom í mat áðan og fékk pítsu hér í Spító…það var nokkuð vel lukkað að öðru leyti en því að ég hef aldrei eldað tvær pítsur og franskar í einu. Ofninn var ekki alveg að höndla það að baka þetta allt í einu….þetta er svona rauðglóandi teinn efst í ofninum sem hitar allt inn í honum (ekki blástur eða neinar stillingar) svo að efsta pítsan var tilbúin lang fyrst. Ég var eitthvað að hræra til í þessu og rak náttúrulega efstu pítsuna í teininn með þeim afleiðingum að bökunarpappírinn varð samstundis alelda (myndi líkja þessu við bálið sem var í Hringrás í Reykjavík í gær, kannski örlítið minna ) ég hélt náttúrulega ró minni allan tíman og dró pítsuna eldsnöggt út úr ofninum og þandi brjóstkassann og blés á bálið sem slokknaði um leið (sjáið þetta ekki fyrir ykkur :haha síðan skellti ég bara pítsunni aftur inn eins og ekkert hefði í skorist
Þetta var sem sagt merkis dagur og pítsurnar alveg ágætar og ég orðinn svona helv. stór.
