11. nóvember 2004

You are currently browsing the daily archive for 11. nóvember 2004.

snóar og snjóar…

Það er kominn þessi líka fína snjókoma og er búin að vera síðan í morgun og jörðin orðin hvít aftur. Mér lýst betur á þetta, veðrið var farið að minna meira á apríl eða maí heldur en nóvember. Ég var svo lánsamur að fá far úr skólanum, Hannes og Una sáu um það…þau voru með þessa fínu hjólagrind á bílnum. Ég er sjálfur kominn með bíl til afnota næstu 11 daga því mamma er á leið til Frakklands og pabbi þarf ekki báða bílana á meðan…nema að hann leggi bara krúsanum, hann er nefnilega búinn að láta setja upp þessa líka svakalegu bílskúrshurð og hver veit nema að geymi djásnið bara inn í skúr á meðan mamma er úti.

Annars er allt gott að frétta af mér, var bara í verkefnavinnu í dag í skólanum og síðan er massa föstudagur á morgun, þ.e. erfðafræði og fiskalífeðlisfræði frá 10-18. Ég læt svo hendur standa fram úr ermum um helgina því að ég þarf að byrja á ritgerð sem gildir 30% og fleiri verkefnum. Maður bíður með að djamma með Döllunum og vinunum sem eru fyrir sunnan þar til að þeir koma norður um jólin. Hef enga trú á öðru en að það verði djammað þá líka. Gaman hefði verið að skreppa suður yfir heiðar en þá hefði ég heldur ekki gert neitt í lærdómnum sem ég verð að gera ef ég ætla mér að ná þessum blessuðum prófum.

Eyrún Gígja og Elmar Dan eru búin að eignast litla stelpu og óska ég þeim innilega til hamingju með það. Ég er núna að rústa Kollu í þessum keppnum um kyn á börnum, 2-0 (sagði að Þóra eignaðist strák og Eyrún stelpu en Kolla sagði öfugt við mig), þannig að ég tel mig nokkuð glöggann á þetta og ef þið eruð í vafa og viljið vita svona lagað þá hafið þið bara samband

Jæja ég er kominn með svaðalega strengi í axlirnar og get ekki pikkað mikið lengur….skemmtið ykkur vel um helgina!

Tags: ,

Ég fæ hrós dagsins, fyrir að hjóla í skólann með 20kg af töskum, gera verkefni til að verða 6, hjóla þá í ræktina og taka á því með Hannesi og hjóla svo heim í brjálaðri sunnan átt og komast hvorki lönd né strönd.

Ég var að tala við Thoroddsen-inn í miðið og myndarann og lá vel á þeim við vínsmökkun í Barmahlíðinni. Þeir sögðust vera búnir að smakka hvern einasta millilíter úr 3 flöskum og söðgu að árgangurinn væri góður

Þeir voru að peppa í mig upp í það að koma suður í Dalvíkurfesteval í Reykjavík þar sem margt stórmennið mun koma. Maður er náttúrulega í verkefnavinnu upp fyrir haus og staðann ekki beint þannig að maður hafi efni á pakkanum hvað varðar peninga og lærdóm. Það á samt að vera búið að plögga far fram og til baka og mat ofan í litla labba kútinn. Þannig að þetta er mjög freistandi boð…en við skulum bara sjá hvernig staðan verður á morgun, því þá á ég að gefa lokasvar

Best að fara að skríða í koju og hvíla kjötfjöllin sem eru að safnast utan á skrokknum.

Tags: ,