Jæja þá eru allir íslensku stafirnir komnir inn ;)

Ákvað að segja ykkur frá því að íslensku stafirnir eru komnir inn ÆÍÖÓÉÚÁÞ Frábært þá er ég búinn að setja tölvuna upp og ætla að setja batteríið á sinn stað og hlaða hann þangað til á morgun. Það liggur við að maður sé jafn fljótur að pikka á hana og gömlu lifebook…en það verður nú ekki alveg strax. Það er einn galli sem ég sé strax við lyklaborðið og það er að það er enginn delete takki bara backaspace…en það gæti verið verra vandamál. Best að fara að undirbúa prófið sem ég er að fara í á mánudaginn – fiskalífeðlisfræði.

Tags: ,