desember 2004

You are currently browsing the monthly archive for desember 2004.

Lokaspretturinn..

Lærdómur á föstudagskvöldi klukkan hálf tíu…þýðir ekkert annað á lokasprettinum, fer í próf mánudag, þriðjudag og miðvikudag og svo er komið jólafrí. Best að harka þetta af sér og fara svo í vilt jólaskap

Njótið kvöldsins, þeir sem þurfa ekki að liggja yfir námsbókum! Ég er nú samt með nóg af lakkrís og súkkulaði sem ég ætla að gæða mér á þannig að þetta er ekki sem verst þó maður sé ekki að horfa á video heldur skólabækurnar….jæja nóg af leti…yfir og út!

Tags:

Ákvað að segja ykkur frá því að íslensku stafirnir eru komnir inn ÆÍÖÓÉÚÁÞ Frábært þá er ég búinn að setja tölvuna upp og ætla að setja batteríið á sinn stað og hlaða hann þangað til á morgun. Það liggur við að maður sé jafn fljótur að pikka á hana og gömlu lifebook…en það verður nú ekki alveg strax. Það er einn galli sem ég sé strax við lyklaborðið og það er að það er enginn delete takki bara backaspace…en það gæti verið verra vandamál. Best að fara að undirbúa prófið sem ég er að fara í á mánudaginn – fiskalífeðlisfræði.

Tags: ,

Daginn

Er ad skrifa mitt fyrsta blogg a nýja makkanum minum, er ekki buinn ad setja upp islensku stafina enn ta…tarf ad finna ut ur tvi vid taekifaeri. For i prof i dag og tad gekk bara vel…skrifadi 13bls. og held ad tad se met hja mer i profi. Jaeja best ad monta sig Kolla er ad koma heim

Tags:

Jæja eitt próf búið og gekk bara vel í haf- og veðurfræðinni, enda getur maður ekki verið þekktur fyrir að vita ekki eitthvað um það efni fyrst maður er í þessari ætt …en það er mikill léttir að vera búinn með eitt. Þá eru bara fimm eftir. Núna er það bara vistfræði á fimmtudaginn og því verður tekið á því á morgun í lestrinum. Meira seinna…

Tags:

Newer entries »