Maður er ekki fyrr búin að klára prófin að maður fer og hellir sér í jólaösina á vinnumarkaðnum. Ég var að vinna frá 10-19 í gær og voru þó nokkrir sem komu við í vínbúðinni að kaupa sér veigar…það er samt ljóst að álagið á eftir að vera meira þegar nær dregur að jólum.
Vinnuplanið hjá mér er svona:
Laugardagurinn 18. des. (í dag) – 10:45-16:00
Sunnudagurinn 19. des. – FRÍ
Mánudagurinn 20. des. – 10:öö-18:00
Þriðjudagurinn 21. des. – 10:00-18:00
Miðvikudagurinn 22. des. – 10:00-19:00
Fimmtudagurinn 23. des. (Þoláksmessa) – 10:00-22:00
Föstudagurinn 24. des. (Aðfangadagur) – 8:45 – 12:00
Laugardagurinn 25. des. (Jóladagur) – FRÍ
Sunnudagurinn 26. des. (annar í jólum) – FRÍ
Mánudagurinn 27. des. – 10:00-18:00
Þriðjudagurinn 28. des. – 10:00-18:00
Miðvikudagurinn 29. des. – 10:00-18:00
Fimmtudagurinn 30. des. – 10:00-20:00
Föstudagurinn 31. des. – 8:45-13:00
Þetta verður stíft en okkur Kollu vantar pening og því dugar ekkert að kvarta undan þessu. Ég býst ekki við því að vinna eftir áramót þar sem ég þarf að læra undir próf í erfðafræði. En nú þarf ég að drífa mig í vinnuna
Tags: Vinna

No comments
Comments feed for this article
Trackback link: http://www.egillthor.net/2004/12/vinna-og-meiri-vinna/trackback/