janúar 2005

You are currently browsing the monthly archive for janúar 2005.

Mætti í skólann á réttum tíma, svona til að gefa tóninn á nýju ári…mætti reyndar heldur snemma því að mér hafði yfirsést tilkynning sem kom á tilkynningarsíðunni í gær sem sagði að ónæmisfræðin sem átti að byrja klukkan átta í morgun byrjar ekki fyrr en í næstu viku ;(

Jæja ég hafði svo sem gott af því að mæta snemma, maður er búinn að liggja í leti fram undir hádegi síðustu daga. Ég tók meira að segja strætó í morgun svo tímalega var ég, þessir djöfuls strætóar eru verri en í Reykjavík ef eitthvað er…ganga bara á klukkutíma fresti og fara þessar líka svaðalegu krókaleiðir til að reyna hirða upp þessa tvo eða þrjá sem slysast til að villast inn í þá. Ég slapp svo sem vel á heimleiðinni því að mér var skutlað heim af Önnu Guðrúnu (Danke schöne Anna!!)

Annars er allt sama og venjulega, Kolla er á fullu í prófum og við fórum okkar vikulegu ferð í Bónus til að geta borðað eins og svín í heila viku ;) Við borðuðum pítsu áðan og bragðasit hún afbragðs vel þótt ég segi sjálfur frá ;)

Ég vona að þið hafið það gott á morgun í því sem þið eruð að gera…ég á að minsta kosti eftir að hafa það gott á morgun því ég er í fríi ;) Þarf reyndar að mæta til tansa þannig að það verður kannski ekki eins frábært og það gæti verið…vonandi verða ekki margar holur.

Tags: ,

Jámm ég dreif mig á bretti um eitt leytið og var alveg þar til það var lokað klukkan fimm. Hlíðarfjall var gott á köflum, en það er allt of lítill snjór og því mun skemmtilegra að renna sér á Dallvík eins og er. Ég gerðist svo djarfur að fara upp í stýtuna þó að það væri ekki búið að opna hana. Troðarinn var að troða fyrir skíðaæfingu og ég fékk far með honum eins hátt og hann fór, eða ca. að fjórða staur og labbaði síðan alveg upp undir klettana í suðurskálinni. Það var svaðalegt púður og enginn búinn að fara þarna í vetur þannig að ég var eins og kóngur í ríki mínu ;) Það var alveg magnað að sjá púðrið þyrlast í stórum strók aftur af mér, það var reyndar ekki alveg nógu gott skyggni þannig að maður fór varlega þar sem ég var einn á ferð og lét sig ekki vaða alveg á fullu bara af öryggi. Tók síðan smá æfingu í að renna mér með hægri fótinn á undir fjarkanum og var það ekki alveg að ganga en hefur þó aldrei gengið betur en nú. Síðan hitti ég Mumma, Anton, Tvíbbana og Börk og renndi mér nokkrum sinnum með þeim og fór í brunkeppni við þá.

Núna erum við Kolla hins vegar að borða lambalæri í Espilundi…skrifa því meira seinna.

Tags: , ,

Við gerðum okkur ferð til Dalvíkur í gær, ég, Anna Guðrún og Inga Lísa, þar sem við hittum Þóru á Sökku og Hannes Inga. Þetta var alveg mögnuð ferð enda nóg af snjó og ekki slæmt að komast í púðrið. Við bjuggum til stökkpall og alles ;)

Síðan fórum í Böggvis til Jóhönnu, Brynjólfs og kó…þar hittum við Brynjólf Mána sem var hinn sprækasti. Ég setti inn myndir úr ferðinni þó þær séu ekki margar og má finna undir myndir hér til vinstri.

Í dag er ég ekki alveg viss hvað ég ætla að gera, það spáir soltið hvössu veðri þannig að maður nennir ekki í fjallið, enda er bara opið í Fjarkanum, Hóla- og Hjallabraut. Mig dauðlangar að komast í Strýtuna þannig að maður ætti kannski bara að drífa sig og labba upp eftir sjálfur.

Tags: , ,

Búinn með prófin

Já það mátti ekki seinna vera…kláraði erfðafræðina í morgun og er því kominn í frí til 12. janúar 2005

Já það verður gott að geta slappað aðeins af, Kolla greyið er að byrja í prófum og verður nóg að gera hjá henni á næstunni. Er ekki alveg búinn að ákveða hvað ég ætla að gera alla þessa daga, best væri að fara í fjallið og renna sér á bretti en það er svo hvasst núna að það var ekki opið, sjáum til á morgun. Ég fór með ömmu og afa smá rúnt áðan…fórum að reyna að skipta á síma sem þau fengu í jólagjöf en þeir áttu ekkert betra en þau fengu þannig að þau verða að notast við þetta. Afi vildi fá ljós á hann svo hann sæi betur hver væri að hringja og svona en það gekk ekki. Afi er annars alveg í essinu sínu með tölvuna eftir að Bragi lagaði hana og er bara orðinn eins og kókópuffs kynslóðin, alltaf á netinu. Býst við því að hann lesi þetta

Ég ætla að drífa mig í sturtu núna og fara svo að gera ýmislegt sem ég hef ætlað mér að gera lengi, eins og að líma skúffuna í fataskápunum, festa upp klukkuna í eldhúsinu og setja upp ljós í svefnherberginu.

Tags: ,

Gleðilegt ár!!

Gleðilegt nýtt ár!! Í gær vorum við Kolla í Espilundinum hjá, þar sem mamma, pabbi, Áki, Anna, Bragi, amma og afi voru með okkur. Við borðuðum alveg geggjaðan mat, humar og risahörpudisk með brauði og hvítlauksmjöri í forrétt, nautalundir og –fíle (akkúrat rétt steikt hjá mömmu, passlega blóðugt). Síðan var heimagerður ís með jarðaberjum. Seinna um kvöldið voru síðan dregnar fram tvær kökur þegar maður hélt að allt væri komið. Þetta var því alveg mögnuð veisla og át maður á sig gat að vanda. Síðan var maður bara rólegur heima þar sem það var einhver kvefpest í mér.

Núna er árið 2004 á enda og gaman að líta til baka og skoða hvað gerðist skemmtilegt á árinu.

Janúar: Ég eyddi áramótunum hjá Bjarna, pabba Kollu, og fjölskyldu og höfðum það gott, borðuðum samt hjá Brynju, mömmu Kollu. Ég strengdi áramótaheit: borða nammi á laugardögum, nota tannþráð daglega, hreyfa mig reglulega og taka mig á í skólanum. Ég held að ég hafi haldið áramótaheitin í mesta lagi 2 vikur og síðan voru bara teknar reglulegar syrpur í öllum heitunum reglulega. Ég var síðan mikið að keppa í handboltanum með Þreyttum, íslenska handboltalandsliðið var laglega rassskellt á EM í handbolta. Ég náði öllum prófunum í HÍ á minni fyrstu önn. Kalli Bjarni sigraði síðan í Idolinu. Við fluttum inn í nýtt rannsóknarhús í Vatnsmýrinni sem fékk síðar nafnið Askja.

Febrúar: Ég var á fullu í boltanum Þreyttum og í ræktinni. Þjóðverjar urðu Evrópumeistarar. Ég, Kolla, Brynja og Tóti fórum norður og urðum vitni að hræðilegu slysi í Borgarfirðinum þar sem tvær 14 stelpur létust. Blessuð sé minning þeirra. Við fengum svakalegar bollur á því bolludagurinn er víst í febrúar. KA vann bikarmeistaratitilinn á móti Fram.

Mars: Margt skemmtilegt gerðist mikil árshátíð var haldin hjá líffræðiskorinni og Kolla mín átti 19 ára afmæli. Hún fékk hjól frá mér og hefur hún notað það töluvert á árinu sem er gott mál

Apríl: Ég lærði og lærði til að vinna upp gamlar syndir, hélt páskana í Reykjavík og var duglegur að vinna í HörpuSjöfn á milli þess sem ég gluggaði í bækurnar. Síðan fékk ég golfsett frá Bjarna, pabba Kollu, og fórum við Björgvin aðeins að prufa það.

Maí: Ég náði öllum prófunum í háskólanum á einhvern furðulegan hátt og það gerði Kolla líka, hreinlega “hamsaði” öll prófin í FB. Við flugum síðan norður og sendum búslóðina með FMN. Fluttum inn í Espilund og fórum í gamla herbergið mitt. Ég byrjaði að vinna alveg á fullu en Kolla fékk enga vinnu í til að byrja með en fór svo að vinna bæði á FSA og á Gallup. Ég varð 21 árs og er því kominn á þrítugsaldurinn. Mamma varð einnig fimmtug og ákvað fjölskyldan að vera í stærðarslotti í Frakklandi, við árbakka Signu, í eina viku í júní að því tilefni.

Júní: Ég vann eins og vitlaus maður í HörpuSjöfn, við hittumst í gríðarlegu Partýi vinirnir hjá Jóni Víði þar sem ég kynntist bjórtrektinni Áshildi Helgadóttur. MA-ingar komu svo saman 16. júní, ég var 1árs stúdent og hitti félaga mína 4.U en mamma og pabbi voru 30 ára stúdentar og Anna og Áki voru 10 ára stúdentar. Það var því margt um manninn og mjög gaman. Ég fór til Frakklands með allri fjölskyldunni og var þar í viku. Ég, Kolla, Stefán, Ólína og Sigurlaug Rán fórum síðan í svaðalega heimferð, þar sem við þurftum að taka taxa í 200km þar sem að við misstum af lest og þ.a.l. af ferjunni sem átti að flytja okkur yfir til Englands. Þetta var vægast sagt langt ferðalag og var gott að koma heim á klakann.

Júlí: Í júli fluttum við Kolla svo inn í íbúðina hennar Laufeyjar og byrjuðum að leigja hana. Nokkuð erfiðlega gekk að koma draslinu upp þar sem íbúðin er á þriðju hæð og mjög brattir og þröngir stigar útiloka að stórir hlutir komist inn nema að þeir séu teknir í sundur og því frekar seinlegt að koma sér fyrir. Evrópukeppnin í fótbolta var haldin í Portúgal og spiluð Grikkir og heimamenn til úrslita og höfðu Grikkir betur. Ég lenti í bráðum lífsháska þegar að ég sló lóð frænku minnar, ég var að slá undir einum runnanum og þá koma tugir geitunga út úr honum og umkringdu mig og einn stakk mig í nefið.

Ágúst: Við vorum á Akureyri um Verslunarmannahelgina, Kolla var að vinna alla dagana og djammaði því ekki alveg jafn mikið og ég, þó að ég hafi ekki gert mikið af því. Ég vann og vann og Kolla líka þar til að við fórum í sumarfrí til Portúgal í tvær vikur. Við áttum góðar stundir þar og urðum kaffibrún og sæt. Fanney vinkona Kollu og Hákon kærasti hennar komu í seinni vikunni og vorum við talsvert með þeim.

September: Við komum heim frá Portúgal og Háskólinn á Akureyri byrjaður. Ég fór því beint í skólann en Kolla hélt áfram að vinna þar sem MA byrjaði ekki fyrr en um miðjan september. Farið var í Mývatnssveit að safna hitakærum örverum í hveri til að vinna með í líftæknilegri örverufræði.

Október: Mikið sprellmót var haldið á milli deilda í HA og var bara gaman að því. Við í auðlindadeildinni töpuðum naumlega fyrsta sætinu eftir að eitthvað ljósmyndamaraþon var dæmt okkur í óhag. Þóra og Sveinn eignuðust lítinn strák sem fékk seinna nafnið Brynjólfur. Auðlindadeildin flutti í nýtt rannsóknar- og nýsköpunarhús sem fékk nafnið Borgir. Ég fór í löndun hjá Eimskip og landaði 200 tonnum af fiskimjöli úr skipinu Kiel. Ég var eina viku fyrir sunnan, þar sem verkleg kennsla í erfðafræði fór fram í fyrirtækinu Prokaria. Kolla kom svo suður með vinkonum sínum og fékk ég far með þeim til Akureyrar, en þær höfðu brugðið sér suður til að fara á Iclandic Airwaves. Hóf æfingar á Bjargi í nýrri og glæsilegri aðstöðu. Fékk frítt fram að áramótum fyrir að hafa hjálpað aðeins eftir vinnu í sumar. Ég fór tvisvar á sjó sama daginn með skólanum, annars vegar að mæla hita, seltu og eðlismassa sjávar með haf- og veðurfræðinni og síðan að safna lífverum með sjávarlíftækninni.

Nóvember: Skólinn og Bjarg og meiri skóli og meira Bjarg.

Desember: Fór í 5 próf, skilaði auði í einu og fer í það 5. janúar. Gekk bara nokkuð vel, búinn að ná öllu og var hæstur í haf- og veðurfræði Vann í ríkinu í jólafríinu með Braga og hef verið að læra líka.

Jæja þetta er svona stiklað á stóru á árinu 2004, reyndar svolítið nákvæmur á köflum. Vonandi að árið 2005 verði jafn viðburðaríkt, Kolla mín verður a.m.k. tvítug á árinu og útskrifast væntanlega úr MA og síðan flytjum við líklega suður…annað er óvíst og framtíðin mun bera það í skauti sér.

Tags: ,