Mætti í skólann á réttum tíma, svona til að gefa tóninn á nýju ári…mætti reyndar heldur snemma því að mér hafði yfirsést tilkynning sem kom á tilkynningarsíðunni í gær sem sagði að ónæmisfræðin sem átti að byrja klukkan átta í morgun byrjar ekki fyrr en í næstu viku ;(
Jæja ég hafði svo sem gott af því að mæta snemma, maður er búinn að liggja í leti fram undir hádegi síðustu daga. Ég tók meira að segja strætó í morgun svo tímalega var ég, þessir djöfuls strætóar eru verri en í Reykjavík ef eitthvað er…ganga bara á klukkutíma fresti og fara þessar líka svaðalegu krókaleiðir til að reyna hirða upp þessa tvo eða þrjá sem slysast til að villast inn í þá. Ég slapp svo sem vel á heimleiðinni því að mér var skutlað heim af Önnu Guðrúnu (Danke schöne Anna!!)
Annars er allt sama og venjulega, Kolla er á fullu í prófum og við fórum okkar vikulegu ferð í Bónus til að geta borðað eins og svín í heila viku
Við borðuðum pítsu áðan og bragðasit hún afbragðs vel þótt ég segi sjálfur frá
Ég vona að þið hafið það gott á morgun í því sem þið eruð að gera…ég á að minsta kosti eftir að hafa það gott á morgun því ég er í fríi
Þarf reyndar að mæta til tansa þannig að það verður kannski ekki eins frábært og það gæti verið…vonandi verða ekki margar holur.

No comments
Comments feed for this article
Trackback link: http://www.egillthor.net/2005/01/fyrsta-skoladeginum-a-nyja-arinu-lokið/trackback/