Jámm ég dreif mig á bretti um eitt leytið og var alveg þar til það var lokað klukkan fimm. Hlíðarfjall var gott á köflum, en það er allt of lítill snjór og því mun skemmtilegra að renna sér á Dallvík eins og er. Ég gerðist svo djarfur að fara upp í stýtuna þó að það væri ekki búið að opna hana. Troðarinn var að troða fyrir skíðaæfingu og ég fékk far með honum eins hátt og hann fór, eða ca. að fjórða staur og labbaði síðan alveg upp undir klettana í suðurskálinni. Það var svaðalegt púður og enginn búinn að fara þarna í vetur þannig að ég var eins og kóngur í ríki mínu
Það var alveg magnað að sjá púðrið þyrlast í stórum strók aftur af mér, það var reyndar ekki alveg nógu gott skyggni þannig að maður fór varlega þar sem ég var einn á ferð og lét sig ekki vaða alveg á fullu bara af öryggi. Tók síðan smá æfingu í að renna mér með hægri fótinn á undir fjarkanum og var það ekki alveg að ganga en hefur þó aldrei gengið betur en nú. Síðan hitti ég Mumma, Anton, Tvíbbana og Börk og renndi mér nokkrum sinnum með þeim og fór í brunkeppni við þá.
Núna erum við Kolla hins vegar að borða lambalæri í Espilundi…skrifa því meira seinna.
Tags: brún, Hlíðarfjall, púður

No comments
Comments feed for this article
Trackback link: http://www.egillthor.net/2005/01/snjobrettaferð-nr-2/trackback/