febrúar 2008

You are currently browsing the monthly archive for febrúar 2008.

Það væri gaman að skella sér á ráðstefnu í Finnlandi í sumar, ef ég fæ ferðastyrkinn sem ég er að sækja um þá læt ég verða af þessu. Ef ykkur langar á norræna hjartaendurhæfingar-ráðstefnu í bænum Hämeenlinna í Finnlandi í júní, klikkið þá hér ;)

Tags:

Hljóp og sótti bílinn

Náði helvíti góðu hlaupi áðan, bíllinn var í viðgerð hjá Toyota upp á Nýbílavegi sem ég gerði mér ekki alveg grein fyrir hversu langt var í burtu. En ég lagði af stað 17:30 og þar sem Toyota lokar kl. 18:00 þurfti ég virkilega að hlaupa eins hratt og ég gat (án þess að springa) og vitir menn ég náði því 17:59 með blóðbragð í munninum ;)

Ég keyrði síðan ansi sáttur heim þó ég hafi þurft að borga mörg þúsund fyrir viðgerðina en það er allt annað mál og mun ég skrifa um það síðar þegar þau mál vera komin á hreint.

Við borðuðum síðan Domino’s pizzu í tilefni megaviku.

Tags: ,

Ég á að halda fyrirlestur um verkefnið mitt á málstofu meistara- og doktorsnema við læknadeild HÍ 13. mars næst komandi, svo takið þið daginn frá því öllum er frjálst að mæta. Ég byrja kl. 16:15 en kaffi og smá veitingar byrja kl. 16:00. Þetta er á 3. hæð læknagarðs (Google earth kort, getið náð í forritið hér) í fyrirlestrasalnum þar. Ég veit að það verður troðfullt út úr dyrum ;)

Í fyrirlestrinum mun ég fjalla um það sem ég er að gera í verkefninu mínu þ.e. endurhæfingu sjúklinga á Reykjalundi sem eru með langvinna lungnateppu eða hjartabilun. Þessir tveir sjúkdómar eru gríðarlega algengir og má nefna að lungnateppan er 4. algengasta orsök dauðsfalla í Bandaríkjunum og er því spáð að hún nái þriðja sætinu árið 2020. Hjartabilun er líka mjög algeng og kemur oft í kjölfar kransæðasjúkdóma, meðal fólks yfir 65 ára er hjartabilun orsök 20% af öllum sjúkrahúsinnlögnum.

Ég mun sem sé birta fyrstu niðurstöður um áhrif þeirrar þjálfunar sem sjúklingarnir hafa gengið í gegnum á sex vikna tímabili á Reykjalundi og hvet ég alla áhugasama til að mæta!

Tags:

Afrek dagsins

  • Læra vel í verkefninu.
  • Hlaupa í Nauthólsvík.
  • Ryksuga og bóna gólfið heima.
  • Þrífa baðherbergið
  • Þvo tvær vélar og þurrka.
  • Borða góðan fiskrétt
  • Byrja að læra aftur eftir mat (mjög erfitt stundum)
  • Blogga um herlegheitin ;)

Tags: , ,

Ákvað að skella þessari skemmtilegu mynd af flugvallarhringnum mér og öðrum til gagns og gamans. Gaman að kortleggja leiðirnar sem maður er búinn að hlaupa og mæla vegalengdina með gervitunglum ;)

Tags: ,

Ákvað að skella mér í hlaupagallann í gær enda milt og fínt veður og ekki of mikið frost. Tók 20 mín skokk og síðan nokkra spretti með Hólmfríði Júlíusdóttur í botni í ipod-inum. Þetta var helvíti hressandi og maður alveg endurnærður.

Brynja Karítas fór svo að sofa um níu og þá hefði ég getað byrjað að læra á fullu en það var einhver leti í gangi.

Ég er upp á Reykjalundi að framkvæma öndunarmælingar og svo er það bara vinna í kvöld.

Tags:

Ég hef verið að mæta í fótbolta síðustu mánudaga með vinnufélögu mínum í Nimblegen. Það er ansi fínt að hreyfa sig svona þó maður sé nú í vægast sagt lélegu formi og getan í fótboltanum er ekki upp á marga fiska ;) En það er félagsskapurinn og hreyfining er góð.

Ég gef mér aldrei tíma í að hreyfa mig því verður að breyta fyrr en síðar.

Tags:

Slabb og meira slabb

Mikið andskoti er leiðinlegt hvað snjórinn stoppar stutt við, í gær var þessi fíni snjór yfir allri borginni, skafrenningur og skemmtilegheit en nú er bara slabb og meira slabb yfir.

Í gær fóru fjórir tímar í að setja saman glerskápinn sem við keyptum í IKEA, var að verða nett pirraður á þessu. Veit ekki hvað þetta er í mörgum bútum og hversu margar skrúfur þurfti að skrúfa :/ Ég var reyndar með augun á sjónvarpinu líka svo ekki flýtti það fyrir.

Meira síðar…best að fara að vinna.

Tags: ,