19. febrúar 2008

You are currently browsing the daily archive for 19. febrúar 2008.

Hljóp og sótti bílinn

Náði helvíti góðu hlaupi áðan, bíllinn var í viðgerð hjá Toyota upp á Nýbílavegi sem ég gerði mér ekki alveg grein fyrir hversu langt var í burtu. En ég lagði af stað 17:30 og þar sem Toyota lokar kl. 18:00 þurfti ég virkilega að hlaupa eins hratt og ég gat (án þess að springa) og vitir menn ég náði því 17:59 með blóðbragð í munninum ;)

Ég keyrði síðan ansi sáttur heim þó ég hafi þurft að borga mörg þúsund fyrir viðgerðina en það er allt annað mál og mun ég skrifa um það síðar þegar þau mál vera komin á hreint.

Við borðuðum síðan Domino’s pizzu í tilefni megaviku.

Tags: ,

Ég á að halda fyrirlestur um verkefnið mitt á málstofu meistara- og doktorsnema við læknadeild HÍ 13. mars næst komandi, svo takið þið daginn frá því öllum er frjálst að mæta. Ég byrja kl. 16:15 en kaffi og smá veitingar byrja kl. 16:00. Þetta er á 3. hæð læknagarðs (Google earth kort, getið náð í forritið hér) í fyrirlestrasalnum þar. Ég veit að það verður troðfullt út úr dyrum ;)

Í fyrirlestrinum mun ég fjalla um það sem ég er að gera í verkefninu mínu þ.e. endurhæfingu sjúklinga á Reykjalundi sem eru með langvinna lungnateppu eða hjartabilun. Þessir tveir sjúkdómar eru gríðarlega algengir og má nefna að lungnateppan er 4. algengasta orsök dauðsfalla í Bandaríkjunum og er því spáð að hún nái þriðja sætinu árið 2020. Hjartabilun er líka mjög algeng og kemur oft í kjölfar kransæðasjúkdóma, meðal fólks yfir 65 ára er hjartabilun orsök 20% af öllum sjúkrahúsinnlögnum.

Ég mun sem sé birta fyrstu niðurstöður um áhrif þeirrar þjálfunar sem sjúklingarnir hafa gengið í gegnum á sex vikna tímabili á Reykjalundi og hvet ég alla áhugasama til að mæta!

Tags: