Ég á að halda fyrirlestur um verkefnið mitt á málstofu meistara- og doktorsnema við læknadeild HÍ 13. mars næst komandi, svo takið þið daginn frá því öllum er frjálst að mæta. Ég byrja kl. 16:15 en kaffi og smá veitingar byrja kl. 16:00. Þetta er á 3. hæð læknagarðs (Google earth kort, getið náð í forritið hér) í fyrirlestrasalnum þar. Ég veit að það verður troðfullt út úr dyrum
Í fyrirlestrinum mun ég fjalla um það sem ég er að gera í verkefninu mínu þ.e. endurhæfingu sjúklinga á Reykjalundi sem eru með langvinna lungnateppu eða hjartabilun. Þessir tveir sjúkdómar eru gríðarlega algengir og má nefna að lungnateppan er 4. algengasta orsök dauðsfalla í Bandaríkjunum og er því spáð að hún nái þriðja sætinu árið 2020. Hjartabilun er líka mjög algeng og kemur oft í kjölfar kransæðasjúkdóma, meðal fólks yfir 65 ára er hjartabilun orsök 20% af öllum sjúkrahúsinnlögnum.
Ég mun sem sé birta fyrstu niðurstöður um áhrif þeirrar þjálfunar sem sjúklingarnir hafa gengið í gegnum á sex vikna tímabili á Reykjalundi og hvet ég alla áhugasama til að mæta!
Tags: Fyrirlestur
-
Helduru að þú verðir ekki stresssed out ef ég mæti?
-
Það held ég ekki, ég verð með allt þetta rannsóknarlið í kringum mig eru tilbúin að rífa mig á hol með spurningum sínum svo það ætti bara vera gott að hafa þig

2 comments
Comments feed for this article
Trackback link: http://www.egillthor.net/2008/02/fyrirlestur-i-læknagarði-13-mars-kl-16/trackback/