Blóðgjöf er lífgjöf

Ég var að koma úr blóðbankanum, það er alltaf fínt að fara og láta taka úr sér smá slurk. Ég er búinn að gefa 11 sinnum núna, ef ég gef fjórum sinnum á ári þá verð kominn í 100 skipti eftir 22ár og 3mánuði. Þá verð ég 47 ára og árið 2031 og ef ég hef farið akkúrat á 3mánuða fresti og engin töf orðið þá verður maí svo kannski verður þetta á afmælisdaginn minn, svo kannski verð ég 48 ára.

Hvað sem þessum skemmtilegu pælingum líður hvet ég alla til að gefa blóð ef menn mega það á annað borð. Maður veit aldrei nema að maður þurfi að nota þetta blóð sjálfur einn daginn eða einhver nákominn.

Blóðfjölskyldan

Blóðfjölskyldan

Tags: