Haustið er komið, það veit ég því að leikskólinn er kominn á fullt eftir sumarfrí, Kolla er byrjuð í skólanum og púsluspil hversdagsins er hafið.
Í sumar gerðum við margt skemmtilegt og aldrei að vita nema að maður setji inn einhverjar myndir af því. Annars eru nú flestir hættir að lesa blogg síður og láta sér nægja að lesa annarra manna slúður í gegnum facebook.
Ég ætla nú samt að þrjóskast við og reyna að halda þessari síðu eitthvað gangandi. Það styttist alltaf í það að ég klári MS-rigerðina og þá get ég kannski lappað eitthvað upp á þessa síðu.
Þessi póstur var aðallega til brjóa þann þykka ís sem hefur legið á þessari síðu. Sjáum svo til hvernig gengur!
