október 2010

You are currently browsing the monthly archive for október 2010.

Haustið er búið að fara vel af stað hvað varðar íþróttaiðkun. Ég og Áki bróðir mætum á morgnana í klassann og hendum upp lóðum af miklum móð. Hjólreiðarnar hafa minnkað mikið síðan í sumar en við Bragi reynum eitthvað að tækla það þegar tími gefst.

Handboltavertíðin fer svo að byrja, ég er búinn að skrá mig í utandeildarlið sem ætlar að vera með í deildinni í vetur. Það verður mjög skemmtilegt að spreyta sig á boltanum í vetur eftir nokkra ára pásu.

Í dag var það svo útihlaup, hringinn í kringum flugvöllinn í fínu veðri, 11°C hita og logni. Ég stefni á að reyna að hlaupa áfram á meðan veðrið helst nokkuð stillt en síðan verða hlaupskórnir settir í pásu þegar það fer að frysta.