Blog

You are currently browsing the archive for the Blog category.

Mettími í vinnuna

Nýr mettími upp í vinnu sem eru 13km. 25mín og 50sek. Meðalhraðinn var 29.6km/klst.

Þetta er slatta langt frá mettímanum heim (23mín) úr vinnunni enda meira niður í móti á leiðinni heim.

Set þetta inn svo ég muni þetta. Hver veit nema aðrir geti kommentað á þetta og deilt hjólasögum með mér ;) .

Hjólreiða átakið er byrjað enn einu sinni og er stefnan að sjálfsögðu sett á það að bæta fyrri árangur. Ég hjólaði 2x í síðustu viku af þremur dögum. Markmiðið er að hjóla a.m.k. 4x í næstu viku og ná 100km.

Scott Speedster 30 er svo væntanlegt í næstu viku.

scott_speedster_s30xl

Læst: Viðburðarík helgi

Þessi færsla er lokuð. Sláðu inn aðgangsorð hér að neðan til að opna færslu.


Haustið er komið, það veit ég því að leikskólinn er kominn á fullt eftir sumarfrí, Kolla er byrjuð í skólanum og púsluspil hversdagsins er hafið.

Í sumar gerðum við margt skemmtilegt og aldrei að vita nema að maður setji inn einhverjar myndir af því. Annars eru nú flestir hættir að lesa blogg síður og láta sér nægja að lesa annarra manna slúður í gegnum facebook.

Ég ætla nú samt að þrjóskast við og reyna að halda þessari síðu eitthvað gangandi. Það styttist alltaf í það að ég klári MS-rigerðina og þá get ég kannski lappað eitthvað upp á þessa síðu.

Þessi póstur var aðallega til brjóa þann þykka ís sem hefur legið á þessari síðu. Sjáum svo til hvernig gengur!

Blóðgjöf er lífgjöf

Ég var að koma úr blóðbankanum, það er alltaf fínt að fara og láta taka úr sér smá slurk. Ég er búinn að gefa 11 sinnum núna, ef ég gef fjórum sinnum á ári þá verð kominn í 100 skipti eftir 22ár og 3mánuði. Þá verð ég 47 ára og árið 2031 og ef ég hef farið akkúrat á 3mánuða fresti og engin töf orðið þá verður maí svo kannski verður þetta á afmælisdaginn minn, svo kannski verð ég 48 ára.

Hvað sem þessum skemmtilegu pælingum líður hvet ég alla til að gefa blóð ef menn mega það á annað borð. Maður veit aldrei nema að maður þurfi að nota þetta blóð sjálfur einn daginn eða einhver nákominn.

Blóðfjölskyldan

Blóðfjölskyldan

Tags:

Læst: Bústaðarferð og 6 vikna skoðun

Þessi færsla er lokuð. Sláðu inn aðgangsorð hér að neðan til að opna færslu.


Tags:

Ný síða

Ég er að leika mér við að setja upp þessa síðu, þetta útlit er nú ekki endanlegt en mér fannst það dáltið svalt.

Ég er að vinna í því að búa til myndasíðu og laga þetta allt til í rólegheitunum. Helgi Hrafn æskuvinur minn er búinn að hjálpa mér mikið og kann ég honum mestu þakkir fyrir. Hann er galdramaður í öllu sem tengist tölvum og tækni svo það er ekki slæmt að þekkja svoleiðis fólk.

Ég keypti mér egillthor.net fyrir nokkru síðan en hef ekkert getað prófað mig áfram fyrr en núna. Nú er bara að sjá hversu langur tími það verður að gera þessa síðu almennilega.

Tags:

Keypti mér egillthor.net áðan svo bíðið þið bara spennt ;)

Tags: ,

Læst: 2 ára afmælisveisla

Þessi færsla er lokuð. Sláðu inn aðgangsorð hér að neðan til að opna færslu.


Tags: ,

Það væri gaman að skella sér á ráðstefnu í Finnlandi í sumar, ef ég fæ ferðastyrkinn sem ég er að sækja um þá læt ég verða af þessu. Ef ykkur langar á norræna hjartaendurhæfingar-ráðstefnu í bænum Hämeenlinna í Finnlandi í júní, klikkið þá hér ;)

Tags:

« Older entries