BS-nám

You are currently browsing the archive for the BS-nám category.

Mætti í skólann á réttum tíma, svona til að gefa tóninn á nýju ári…mætti reyndar heldur snemma því að mér hafði yfirsést tilkynning sem kom á tilkynningarsíðunni í gær sem sagði að ónæmisfræðin sem átti að byrja klukkan átta í morgun byrjar ekki fyrr en í næstu viku ;(

Jæja ég hafði svo sem gott af því að mæta snemma, maður er búinn að liggja í leti fram undir hádegi síðustu daga. Ég tók meira að segja strætó í morgun svo tímalega var ég, þessir djöfuls strætóar eru verri en í Reykjavík ef eitthvað er…ganga bara á klukkutíma fresti og fara þessar líka svaðalegu krókaleiðir til að reyna hirða upp þessa tvo eða þrjá sem slysast til að villast inn í þá. Ég slapp svo sem vel á heimleiðinni því að mér var skutlað heim af Önnu Guðrúnu (Danke schöne Anna!!)

Annars er allt sama og venjulega, Kolla er á fullu í prófum og við fórum okkar vikulegu ferð í Bónus til að geta borðað eins og svín í heila viku ;) Við borðuðum pítsu áðan og bragðasit hún afbragðs vel þótt ég segi sjálfur frá ;)

Ég vona að þið hafið það gott á morgun í því sem þið eruð að gera…ég á að minsta kosti eftir að hafa það gott á morgun því ég er í fríi ;) Þarf reyndar að mæta til tansa þannig að það verður kannski ekki eins frábært og það gæti verið…vonandi verða ekki margar holur.

Tags: ,

Ég held að það sé allt að verða komið og jólin mega bara fara að koma. Ég er búinn að gera allt nema aðalatriðið en það er að kaupa jólagjöf handa elskunni minni. Við höfum þó komist að þeirri niðurstöðu að það sé best að hún velji bara gjöfina sjálf á morgun þar sem hún er með lausann tíma…ekki mjög skemmtilegt en kannski betra þar sem hún fær þá nákvæmlega það sem hana langar í og þarf ekki að skipta því ef ég kaupi eitthvað vitlaust.

Á morgun er Þorláksmessa og við bræðurnir sjáum ekki fram á að það verði nein skata í ár þar sem við erum að vinna og það gengur eitthvað brösulega að fá frí til að fara að borða hana. Við verðum því bara að bíta í það súra…nema eitthvað sérstakt komi upp á og þetta skötumál leysist. Annars er ég að fara að vinna frá 10-22 á morgun og verður það örugglega dáltið erfitt en maður hefur svo sem afrekað annað eins.

Kominn með út úr þremur prófum og er búinn að ná þeim öllum. Það þarf því bara að ná einu enn og þá eru námslánin trygg Það hlýtur að reddast hjá mér. Jamm það er ekki mikið meira að frétta nema að það kom þetta leiðindaveður í dag og er víst spáin ekki góð, bara stórhríð og læti. það verður fínt að vera heima og horfa á veðrið og er stefnan að liggja upp í rúmi og breiða yfir haus ef að jóladagur mun bjóða upp á þessa spá.

Tags:

3 búin og 3 eftir

Já nú er þrautargangan hálfnuð, ég var í 3. prófinu mínu í dag og gekk bara bærilega…ætli þetta hangi ekki réttu megin…vona það alla vega. Annars er ég nokkuð montinn með mig fékk mína fyrstu 9 í háskóla nú í 1. prófinu mínu hérna í haf-og veðurfræði..vonandi að restin verði sæmileg þó einkunnirnar þurfi kannski ekki að vera svona háar þó þær megi það alveg . Það er greinilegt að maður hefur horft mikið á veðurfréttirnar með pabba í gegnum tíðina

Núna er hins vegar löng og stöng keyrsla framundan…á að mæta í próf klukkan 9 og þarf að halda vel á spöðunum ef mér á að takast að læra þetta helvíti. Ég held maður komi sér því bara að verki og fari að lesa.

Tags:

Góða nótt!

Búin að vera nokkuð duglegur að læra undirsjávarlíftækni en það þarf mikið ef duga skal…en það verður að bíða fram á mánudag því á morgun þarf ég að læra undir fiskalífeðlisfræði. Kolla er búin að vera að skemmta sér og hefði verið gaman að gera það með henni…en það kemur að því. Jæja þetta er orðið gott í bókalestri í dag…best að fara heim að sofa Góða nótt! kv. Egill með tölvukassa augun

Tags:

Lokaspretturinn..

Lærdómur á föstudagskvöldi klukkan hálf tíu…þýðir ekkert annað á lokasprettinum, fer í próf mánudag, þriðjudag og miðvikudag og svo er komið jólafrí. Best að harka þetta af sér og fara svo í vilt jólaskap

Njótið kvöldsins, þeir sem þurfa ekki að liggja yfir námsbókum! Ég er nú samt með nóg af lakkrís og súkkulaði sem ég ætla að gæða mér á þannig að þetta er ekki sem verst þó maður sé ekki að horfa á video heldur skólabækurnar….jæja nóg af leti…yfir og út!

Tags:

Lítið að frétta af mér…það er bara endalaus snjókoma og það er bara besta mál…því þá styttist í að ég komist á bretti Ég er búinn að reyna að vera duglegur í lærdómnum í dag en það er eins og ég komist ekki í gang fyrr en svona um miðjan dag og er orðinn góður þegar venjulegt fólk ætti að vera að fara að sofa. Þetta er mesti galli því að það verður oft allt of lítið úr deginum

Það gengur ekkert allt of vel með þessa helvítis ritgerð þannig að ég er búinn að vera að taka pásu á henni og gera önnur verkefni. Vonandi að maður fari langt með helvítið um helgina…þetta er að verða allt of mikill tími sem fer í þetta helvíti. Ég er svo góður í að velja mér einhver viðfangsefni sem að tekur heila eilífð að leysa. Ég er að fara taka smá syrpu í þessu og síðan ætla ég í ræktina klukkan sex og reyna aðeins við bekkinn svo Birkir fari ekki of kátur út úr ræktinni þegar við mætumst um jólin

Tags: , ,

snóar og snjóar…

Það er kominn þessi líka fína snjókoma og er búin að vera síðan í morgun og jörðin orðin hvít aftur. Mér lýst betur á þetta, veðrið var farið að minna meira á apríl eða maí heldur en nóvember. Ég var svo lánsamur að fá far úr skólanum, Hannes og Una sáu um það…þau voru með þessa fínu hjólagrind á bílnum. Ég er sjálfur kominn með bíl til afnota næstu 11 daga því mamma er á leið til Frakklands og pabbi þarf ekki báða bílana á meðan…nema að hann leggi bara krúsanum, hann er nefnilega búinn að láta setja upp þessa líka svakalegu bílskúrshurð og hver veit nema að geymi djásnið bara inn í skúr á meðan mamma er úti.

Annars er allt gott að frétta af mér, var bara í verkefnavinnu í dag í skólanum og síðan er massa föstudagur á morgun, þ.e. erfðafræði og fiskalífeðlisfræði frá 10-18. Ég læt svo hendur standa fram úr ermum um helgina því að ég þarf að byrja á ritgerð sem gildir 30% og fleiri verkefnum. Maður bíður með að djamma með Döllunum og vinunum sem eru fyrir sunnan þar til að þeir koma norður um jólin. Hef enga trú á öðru en að það verði djammað þá líka. Gaman hefði verið að skreppa suður yfir heiðar en þá hefði ég heldur ekki gert neitt í lærdómnum sem ég verð að gera ef ég ætla mér að ná þessum blessuðum prófum.

Eyrún Gígja og Elmar Dan eru búin að eignast litla stelpu og óska ég þeim innilega til hamingju með það. Ég er núna að rústa Kollu í þessum keppnum um kyn á börnum, 2-0 (sagði að Þóra eignaðist strák og Eyrún stelpu en Kolla sagði öfugt við mig), þannig að ég tel mig nokkuð glöggann á þetta og ef þið eruð í vafa og viljið vita svona lagað þá hafið þið bara samband

Jæja ég er kominn með svaðalega strengi í axlirnar og get ekki pikkað mikið lengur….skemmtið ykkur vel um helgina!

Tags: ,

Ég fæ hrós dagsins, fyrir að hjóla í skólann með 20kg af töskum, gera verkefni til að verða 6, hjóla þá í ræktina og taka á því með Hannesi og hjóla svo heim í brjálaðri sunnan átt og komast hvorki lönd né strönd.

Ég var að tala við Thoroddsen-inn í miðið og myndarann og lá vel á þeim við vínsmökkun í Barmahlíðinni. Þeir sögðust vera búnir að smakka hvern einasta millilíter úr 3 flöskum og söðgu að árgangurinn væri góður

Þeir voru að peppa í mig upp í það að koma suður í Dalvíkurfesteval í Reykjavík þar sem margt stórmennið mun koma. Maður er náttúrulega í verkefnavinnu upp fyrir haus og staðann ekki beint þannig að maður hafi efni á pakkanum hvað varðar peninga og lærdóm. Það á samt að vera búið að plögga far fram og til baka og mat ofan í litla labba kútinn. Þannig að þetta er mjög freistandi boð…en við skulum bara sjá hvernig staðan verður á morgun, því þá á ég að gefa lokasvar

Best að fara að skríða í koju og hvíla kjötfjöllin sem eru að safnast utan á skrokknum.

Tags: ,

Góðan daginn…

Maður er snemma að skrifa þennan daginn, ég er mættur í skólann og er að fara í tíma eftir 10 mínútur. Ég vaknaði kl. 6:00 og fór í ræktina með Hannesi Inga fyrir skóla. Við erum búnir að vera helvíti duglegir í þessari viku búnir að fara fjórum sinnum. En ætli maður skrifi ekki meira seinna, ætlaði bara að monta mig yfir allri þessari líkamsrækt. Hafið þið það bara sem best í dag…

Tags:

Ég er búinn að vera latur við að skrifa hér undanfarið, ég er alveg að drukkna í verkefnum og þá þýðir nú lítið að vera eyða púðri í einhverja heimasíðu.

Annars er allt gott að frétta, ég og Hannes Ingi erum búnir að fara þrisvar í ræktina og ég er allur að koma til. Síðan er eitthvað voða ball í Hlíðarbæ á föstudaginn, það er spurning að kíkja á það. Það er víst bjórkynning og partí á undan svo að það er nóg í boði ef mann langar til að vera á eyrunum. Held að ég verði nú bara rólegur í þessu, ef ég fer verð ég stilltur, maður var svo svaðalega fullur síðast með sunnan liðinu að maður er hálf ragur við að endurtaka leikinn

En best að halda áfram með erfðafræðina og fara svo í rúmið og safna kröftum…Gute Nacht!

Tags:

« Older entries