BS-nám

You are currently browsing the archive for the BS-nám category.

Ég vaknaði kl. 7 og var kominn út á Bjarg kl. 8 þar sem ég hitti Hannes Inga. Við fórum beint að lyfta því að ég var búinn að hita mig upp á því að hjóla (það var ekki þurr þráður á mér) og Hannes var búinn að hlaupa. Ég byrjaði svo vel…fór í þríhöfðann beint á eftir Hannesi, við lágum á bekk og áttum að sveifla þessu rétt fyrir ofan hausinn og rétta úr höndunum. Það gekk ekki betur en svo að ég hálf missti lóðið beint á ennið á mér því að ég réði engan veginn við þetta….er með smá kúlu núna enda ca. 27kg sem ég skallaði. Þetta var bara til að kveikja í manni og ég tók vel á því með Hannesi sem leyndi gríðarlega á sér og henti hverri þyngdinni á fætur annarri upp í háloftin. Það er fínt að vera með svona kögglum að lyfta, þá hefur maður meira að keppa að.

Eftir þetta fór ég í sturtu og aðeins í pottinn og hélt síðan upp í skóla…var þar í smá stund að læra erfðafræði og fór svo í fyrirlestur frá 12:30-17:00. Þetta hefði getað verið langt og leiðinlegt af því að það er nú einu sinni föstudagur og mann langar ekki mikið til að vera svona lengi í skólanum, en þetta var helvíti fínn fyrirlestur um hormón og áhrif þeirra í líkamanum. Mér finnst lífeðlisfræðin alveg helvíti skemmtileg og væri alveg til í að vinna eitthvað við hana í framtíðinni. En við skulum bara bíða og sjá….
Ég fór í mat í Espilund þar sem Kolla var að vinna…mamma eldaði alveg helv.. góða nautasteik, vel blóðug og fín..

Núna erum við Kolla bara heima í tölvunum og veit ekki hvort við gerum eitthvað í kvöld enda Kolla sjálfsagt bara sátt með rólegheitin búin að vera úti tvö kvöld í vikunni og ætlar kannski út á morgun í afmæli. Ég held maður ætti að vera duglegur og skrifa ritgerð á morgun í lífeðlisfræðinni…var að hugsa um að skrifa um blóðrás fiska hvernig kerfið í þeim virkar þegar þeir eru í ísköldum sjó…það verður að skrifa um einhverja lífeðlisfræði hjá fiskum, sumir ætla að skrifa um sjón fiska og aðrir um smoltun (þegar fiskar fara úr ferskvatni í sjó) svo maður verður að finna eitthvað annað. Hefði verið til í að skrifa um sjónina (var nú einu sinni með 10 fyrir líffræðiritgerðina mína um augað í Gagganum í 10. bekk ). En það er víst til allur andskotinn á netinu og maður verður að skoða vísindagreinar og velja sér eitthvað gott á morgun, einhverjar hugmyndir frá ykkur?

Jæja þetta var þá dagbókin fyrir 29.okt. 2004 best að fara að hætta þessu bulli, hef ekki meira að segja ykkur í fréttum að sinni…

Tags: ,

Æfingar hafnar…

Ég tók mína fyrstu æfingu á Bjargi í dag…hjólaði á negldum Gary Fishernum (dekkin reyndust mjög vel…flaug ekkert á hausinn) um kl. 8:20 og hjólaði út á Bjarg, tók léttar æfingar og dreif mig síðan í skólann. Síðan var ég í líftæknilegri örverufræði fram að hádegi og fór þá og hjólaði aftur á Bjarg (gleymdi veskinu í afgreiðslunni) og hjólaði síðan í póstinn til að sækja kennslubók sem ég var loksins búinn að fá. Þau vildu ekki alveg láta mig bókina í hendurnar því þau voru ekki með það í tölvunni hvað bókar helv. kostaði, svo ég fór því fýluferð þangað. Ég hjólaði síðan upp Borgarbrautina og fór í Vistfræði til ca. fjögur. Þá hjólaði ég í Espilund og tók bílinn og skildi hjólið eftir. Ég hjólaði því bara nokkuð mikið miðað við færð hérna í höfuðstað Norðurlands eða í ca. 50 mín.

Núna er ég því að vona að ég sofni eins og steinn og vakni ekki fyrr en að klukkan hringi, það gerist nú ekki oft…alltaf eitthvað að vakna og bröllta um.

Var annars að fá drög að prófatöflunni, ég er búinn í prófum 16. des og fæ því bara býsna langt jólafrí. Verst er að það er svo stutt á milli prófa að ég væri alveg til í að dreifa þessu á lengri tíma…en ætli maður myndi ekki bara eyða e-m auka dögum í vitleysu (ef ég þekki mig rétt). Best að fara að skríða í bólið…

Tags: ,

Góða kvöldið gott fólk, ég er ekki búinn að skrifa lengi, enda búinn að vera önnum kafinn. Ég keyrði norður í gær með Kollu og vinkonum hennar. Maður var ekki alveg í besta formi til að keyra heim enda var tekið vel á því á laugardagskvödið…! Birkir sagði að ég hefði verið til vandræða í einhverjum stiga því ég hefði flogið á hausinn þar…veit nú ekki alveg hvað er til í því, veit bara að ég marinn á nefinu og man ekki hvenær það högg kom.

Ég vaknaði eldsnemma og fór að þvo þvott sem hafði safnast upp þá viku sem ég var fyrir sunnan, fór svo í skólann og hélt áfram að þvo og ryksugaði síðan íbúiðina á meðan Kolla eldaði. Síðan setti ég nagladekkin á hjólið áðan og er núna að verða klár í hvaða veður sem er á Gary Fisher

Best að fara að læra, ég þarf að gera slatta af verkefnum í þessari viku.

Tags: ,

Reykjavíkur fréttir

Ég er núna búinn að vera hérna í höfuðborginni síðan á sunnudaginn. Ég keyrði með Braga og Möggu á sumardekkjum á Toyota Corolla…hún stóð sig eins og hetja þó að við höfum misst hana í örlítið slæd í Vatnsskarðinu ;)

Ég er búinn að lifa í vellistingum hjá Áka bróður og Önnu. Erfðafræðin er fín, svoltið flókin en prófið sem verklega kennslan byrjaði á gekk vel…fékk 10 í því . Þannig að maður er náttúrulega rígmonntinn yfir því enda langt síðan ég sá einkunina 10 á einhverju prófi sem ég hef tekið…eins og ég er nú ótrúlega gáfaður þá er ég jafn ömurlegur í prófatöku :/

Annars er dvölin í Prokaria alveg mögnuð, þetta er mjög skemmtilegir kennarar og léttur andi yfir öllu. Við fáum að borða þarna allan daginn og ekkert lítið á boðstólnum, þannig að þið sem þekkið mig ættuð að skilja hversu ógurlega vel mér líður :D

Ég er að fara að hitta Birki og Jón Víði núna klukkan hálf sjö þannig að það það er best að fara að gera sig klárann…

Tags: ,

Já það gerðist eitthvað sem enginn veit í nótt, því að um 5 leytið þegar ég ætlaði að brölta á fætur til að klára fyrirlesturinn minn í líftæknilegri örverufræði, þá fann ég þennan skerandi verk í olnboganum. Ég tel mig nú ekki vera mikinn vælukjóa og frekar harður af mér, en þetta helvíti var sko vont. Ég gat ekki gert neitt með hægri hendinni fyrstu tímanna, borðaði, burstaði mig og allt með vinstri…

Ég hef þrjár kenningar um það hvað olli þessum verk:1) Ég hef tekið aðeins of margar armbeygjur í gær og tognað á vöðva. 2) Ég hef sofið ofan á hendinni á mér í alla nótt (maður er nú samt yfirleitt fljótari að jafna sig á því). 3) Ég hef lamið Kollu í svefni og hún hefur sótt hamar og látið mig hafa það (hefði líklega vaknað…og þó ).

Þetta gæti líka verið sambland af 1 og 2 en það er helvíti hart að sjá sig togna í armbeygjum, ég gat gert næstum endalausar armbeygjur í handboltanum og þessir vöðvar ættu nú að kannast við hreyfinguna….en svona er þetta maður er bara í engu formi og byrjar aðeins of geyst.

Já það var víst fleira skemmtilegt sem ég afrekaði í dag…eða ekki! Ég átti að flytja fyrirlestur í 1. tíma í morgun og þar sem þolinmæðin var alveg farin út í hafsauga í gærkvöldi ákvað ég bara að fara að sofa. Ég tók því daginn snemma eins og ég koma að áðan…en þetta var greinilega ekki minn dagur því að ég náði ekki að klára að setja fyrirlesturinn almennilega upp og var að reyna að ljúka því á meðan að hinir nemendurnir 3 í tímanum fluttu sinn (erum bara 5 og ein var víst með ælupest).

Þegar ég átti að byrja þá vildi ekki betur til en svo að helvítis floppy diskurinn virkaði fínt í minni tölvu en engan veginn í kennslutölvunni, ég fékk því lánaðan annan disk en það var sama sagan sá diskur var fullur og því byrjaði ég að tæma hann og setti svo fyrirlesturinn á hann. En tölvan mín gerir greinilega eitthvað slæmt við alla diska eða helvítis kennslutölvan var með ónýtt floppy drif. Nú voru góð ráð dýr og þar sem að fyrirlesturinn var fastur í tölvunni og ekkert þráðlaust netsamband til að reyna að senda kvikindið þá þurfti ég að taka tölvuna úr sambandi og labba með hana niður á næstu hæð þar sem netsamband er. Þetta gekk vel og nú var bara að koma sér upp í stofu og byrja…en nei þá var tölvukvikindið búið með allt rafmagnið (allar þessar 30 sekúndur sem hún getur haldið sér í gangi án þess að vera í sambandi), ég gat því ekki byrjað fyrirlesturinn þar sem ég var ekki búinn að prenta blöðin sem ég ætlaði mér að lesa upp af og ekki var hægt að prenta þau á staðnum þar sem nýja fullkomna rannsóknarhúsið er ekki með neina prentara fyrir nemendur Ég lofaði því kennara og nemendum að hlusta á eina góða sögu um það hvernig maður fer að því að vera 17 tíma frá Frakklandi til Íslands og þegar hún var búin (svona 5-7mín þá var tölvan búin að starta sér og opna wordið) gat ég byrjað á fyrirlestrinum.

Fyrirlesturinn gekk síðan nokkuð vel miðað við að ég hafði ekki hugmynd um hvað þessi vísindagrein fjallaði um og ég bullaði um eitthvað sem tengdist greininni harla lítið…enda kom á daginn að ég hafði valið mér erfiðustu greinina af 10 mögulegum og kennarinn minn sem las yfir 4-5 greinar í gær sagði að hann hefði varið helmingnum af tímanum í mína grein…alveg frábært.

Já kvörtunardeildin er hér með lokuð, alveg með eindæmum hvað maður getur stundum verið óheppinn. Ég er núna að fara að gera haf- og veðurfræðiverkefni og læra undir erfðafræði. Síðan ætlum við að kíkja á Þóru, Svein og litla frænda á Sökku í kvöld þegar Anna Guðrún og Hannes eru búin í skólanum (ca. 7 leytið).

Hafið það sem allra best….!

Tags: ,

Kveldið…

Það er allt í rólegheitunum hér í Spító, ég er búinn að vera að læra og ákvað að taka smá pásu. Ekki margt að frétta svo sem, nema að það er farið að rigna eins og ég veit ekki hvað hérna fyrir norðan. Núna fer að styttast í suðurferð hjá mér, legg í’ann á sunnudaginn og verð alveg í viku í verklegri erfðafræði hjá Prokaria…hver veit nema að við finnum einhver spennandi gen eða klónum mann :)

Ég fór í skólann um hálfeitt í dag…þar sem verkleg líftæknileg örverufræði fór fram. Það er svo sem ekki frásögu færandi nema hvað að við vorum að sjúga hveraörverurnar sem við söfnuðum í Mývatnssveitinni um daginn upp úr flöskum. Til þess þarf maður að nota sprautur og nálar…það vildi ekki betur til en svo að ein stelpan stakk nálinni í gegnum puttann á sér Við vorum náttúrulega dauðskelkaðir, ég, Frímann og Steinar kennari en stelpan sem heitir Rut var alveg ótrúlega hraust. Maður hefði náttúrulega ælt og látið líða yfir sig ef þetta hefði komið fyrir mann en hún fékk bara bréf og smá spritt. Hún var með blóð sitthvoru megin á puttanum og þá er ég ekkert að tala um rétt í gegnum skinnið…nei nei nálin fór í gegnum miðjan puttann, sennilega rétt undir beinið. Ég var líka smá klaufi í þessum sama tíma því að þegar ég var búinn að ná hveraörverum úr flöskunni þá var nálin svo helvíti föst í að ég náði að stinga mig á henni, loksins þegar ég náði henni út. Nálin hjá Rut var þó dauðhreinsuð! Ég býst því alveg eins við því að ég fái nýja sótt sem verður kölluð hverasýki á íslensku og Basilus thermophilus egilus á latínu. Hún mun lýsa sér með miklum vindgangi með hveralykt og ljótum kýlum sem springa og krauma á líkamanum líkt og leirhverirnir sem örverurnar lifa í.

Jámm útlitið er því ekki gott og ef ég skrifa ekki hérna á næstunni þá gæti verið að ég sé í rannsókn á FSA, njótið lífsins ég ætla að fá mér C-vítamín og fara að hvíla mig.

Tags: , , ,

Þetta er búið að vera rólegur dagur hérna í Spítalaveginum. Ég fór seint á fætur og finn vel fyrir átökum gærdagsins. Ég hafði engan kraft í mér til að læra en fór í staðinn í sund og lá í heitu pottunum og undir nuddbununni fyrir ofan buslulaugina…er ekki frá því að ég hafi náð að mýkja mig aðeins upp. Á morgun byrjar skólinn ekki fyrr en 12:30 þannig að maður getur ef til vill lært eitthvað í fyrramálið.

Birkir Bald. skrapp norður um helgina til að halda upp á fimmtugann pabba sinn og bar þess merki að hafa verið að halda vel upp á það í gær
Ég og Kolla fórum í mat í Espilundinn og gæddum okkur á Sökku lambi með bestu lyst. Það er marg sannað að lambakjötið þaðan er langbest enda ekkert slor land sem féinu er beitt á “Lengi lifi Hamarsdalurinn”

Núna er best að fara að taka úr þvottavélinni…

Tags: ,

Veturinn að koma…

Ég hjólaði í nýju rannsóknarbygginguna þar sem auðlindadeildin hefur aðsetur í gær. Það er ekki frásögufarandi nema að á móti mér var þessi líka voða skafrenningur. Á venjulegum degi er ég 4-5 mín að hjóla í Glerárgötuna þar sem kennslan hefur verið til þessa, núna var ég hins vegar 15 mín og veðurbarinn. Það er næsta verkefni að setja nagladekkin undir því að ef maður ætlar að stunda þetta að einhverju ráði í vetur þá verður maður að hafa þau…svo maður spóli ekki bara í Borgarbrautinni.

Nýja húsið er fínt, reyndar ekki alveg tilbúið en alveg kennsluhæft…hún reis á einu ári og mér sýnist hún mjög fín að öllu leyti (þar til annað kemur í ljós a.m.k ).
Núna er ég búinn að prófa eitt nýtt á Akureyri…já ég tók strætó í morgun, alveg mögnuð lífsreynsla en svipuð og í Reykjavík. Ég tók svona hálftíma í að missa af strætóum og læra á kerfið…hefði sennilega verið fljótlegra að labba bara En ég get þó glatt ykkur með því að nú verða ferskar strætósögur annað slagið líkt og síðasta vetur .

Jæja best að hætta þessu bulli, Kolla er komin heim úr vinnunni…best að taka vel á móti henni

Tags: , ,

Þóra Gunnsteindóttir og Sveinn Brynjólfsson voru að eignast lítinn dreng…ég sendi þeim innilegar hamingjuóskir og vona að þau hafi það sem allra best!
Nú er ég loksins vaknaður á sunnudagsmorgni og ætla að gera mig líklegan til að læra í dag…vonandi að það gangi nú eftir. Ég er í fríi í skólanum á morgun því það er verið að taka nýja rannsóknarhúsið í notkun hérna fyrir norðan og því á ég ekki von á að flutningar verði yfirstaðnir. Það kveðja víst allir Glerárgötu með miklum söknuði, sjálfum fannst mér ágætt að vera þar í þennan mánuð sem ég er búinn að vera í HA….en þetta verður öruggleg helvíti gott í nýja húsinu. Vonandi að húsið sé aðeins lengra á veg komið heldur en Askja (nýja húsið í vatnsmýrinni hjá HÍ)…því það var varla hægt að vera þar inni að læra vegna látanna í iðnaðarmönnunum.

Jæja best að fara að standa við stóru orðin….læra og læra og læra

Tags:

Sprellmót HA

Ég tók þátt í stórskemmtilegum degi í gær þar sem allar deildir háskólans kepptu í hinum ýmsu greinum. Byrjað var að keppa niður á torgi inn í miðbæ, síðan lá leiðin að umferðarmiðstöðinni þar sem rútur biðu okkar. Ekið var út úr bænum og stoppað á Þelamörk þar sem allir fóru úr. Keppt var í hinum ýmsu greinum, þ.á.m. fótbolta þar sem keppendur voru afmarkarðir inn í reiti líkt og um fótboltaspil væri að ræða, einnig var keppt í boðhlaupum, reiptogi og kappáti. Mín deild, auðlindadeildin var í fremstu röð í öllum greinum, við unnum reiptogið með miklum látum og kappátið einnig. Við viljum einnig meina að við höfum sigrað boðhlaupin en það má deila um það…hóst…svindlarar..hóst! Eftir keppnina var síðan haldið til baka í bæinn og fylgdi ég tvíbbunum Birgi og Baldvini ásamt Brynjari vini þeirra. Við spiluðum síðan Risk – alveg magnað spil!! Við fórum síðan og fengum okkur að borða í Glerárgötu og síðan lá leiðin í Sjallann. Í Sjallanum var stiginn trylltur dans og kom ég heim um rúmlega fjögur leitið. Þetta var sem sagt alveg magnaður dagur í gær…en núna verður maður aðeins að fara að laga til og fara að læra. Ég komst að því í gær að Romm + kók + sítróna + klakkar = fínasti drykkur. Jæja ég vona að þið eigið góða helgi og KA muni laga stöðu sína í bikarleiknum sem er vægast sagt slæm eins og staðan er núna!!

Tags: ,

« Older entries § Newer entries »