Handbolti

You are currently browsing the archive for the Handbolti category.

Ég er búinn að vera duglegur að reyna að hreyfa mig í þessari viku og nú er stefnan að koma sér í almennilegt form. Ég fór að lyfta á mánudag, keppti á miðvikudag í handboltanum við HR, fór svo á handboltaæfingu á fimmtudag, lyfti á föstudag og í dag sunnudag. Þannig að ég er helvíti ánægður með útkomu vikunnar og stefni á að fylgja þessu eftir næstu vikur svo maður komist í almennilegt form. Það er síðan leikur á morgun upp á Laugarvatni kl. 8 á staðartíma svo að það verður nóg að gera á morgun.

Tags: ,

Þetta er nú að verða dáltið þreytt að tapa hverjum leiknum á fætur öðrum í handboltanum. Við í Þreyttum 3 spiluðum við HR í Laugardalshöllinni og biðum lægri hlut eftir að hafa verið undir allan leikinn…það vantaði allan kraft í liðið og menn flestir að spila illa. Það stendur til að spila við Laugarvatn næsta mánudag á Laugarvatni og hvetjum við alla stuðningsmenn sem af einhverjum ástæðum sá sér ekki fært að mæta og fylla höllina í gærkvöldi að mæta líka í útileikina því ekki veitir af hvatningu. Stefnan er að spila leikinn klukkan 20:00 á Laugarvatni á mánudaginn n.k.

Tags:

Í kvöld kl.22:00 munu lið Þreytts og HR etja kappi í sjálfri Laugardalshöllinni. Heyrst hefur að stuðningsmenn beggja liða muni fylla meiri hluta áhorfendastúkkunnar en þó verða örugglega einhver sæti laus fyrir þá sem nenna ekki að mæta mörgum tímum fyrir leik til að tryggja sér sæti. Lið Þreytts hefur fjárfest í nýjum varnarmanni og skyttu fyrir leikinn og mun hann án vafa vera mikið í sviðsljósinu í kvöld.

En meira um úrslit og gang leiksins á morgun…..

Tags:

Þjóðverjar voru að leggja heimamenn í Slóveníu af velli. Þeir áttu þetta bara skilið, voru miklu betri í leiknum, nýttu færin sín og svona. Er búinn að horfa á Evrópumótið í allan dag, Rússland vs. Frakkland, Danmörku vs. Króatía og loks Þýskaland vs. Slóvenía. Er því búinn að horfa á sjónvarp fyrir vikuna og ætla því að reyna breyta kassaaugunum sem eru komin á mig næstu daga og horfa bara á námsbækur.

Kolbrún mín er að fara í fyrsta ökutímann sinn á morgun þannig að ég legg til að allir haldi sig innan dyra : )

Neinei hún á eftir að fara létt með þetta eins og allt sem hún tekur sér fyrir hendur

Tags:

Já nú verður sko mætt á æfingu hjá Þreyttum 3 og tekið á því…ekki veitir af, ef við ætlum að gera einhverja hluti á í næstu leikjum þá verður maður að fara að geta eitthvað. Síðasti leikur var algjört klúður en við hljótum að læra af honum.

Fór í askoti skemmtilega ferð í skólanum í lífmælingum, til stóð að fara upp í Elliðarárdal og mæla tré hátt og látt, nálægt ánni og svo langt frá henni. Við áttum sem sagt að meta hvað hefði áhrif á vöxt trjáa veður og raki. Var nú bara nokkuð spenntur fyrir þessu….en allt kom fyrir ekki við fórum út úr nýja náttúrufræðihúsinu og fórum að telja njóla og endur. Það var reyndar ágætt að sjá endurnar og gæsirnar sem voru ekki langt frá en þetta verður vonandi fyrsta og síðasta skipti sem ég tel njóla í brjáluðum gaddi.

Tags: ,

Nú er bara búið að taka og raskella okkur 3 leiki í röð í Evrópukeppninni og við megum bara gjöra svo vel að halda heim og fara að æfa aðeins betur…ef við ætlum ekki að detta strax út á Ólympíuleikunum í Aþenu.

Maður er alveg ónýtur eftir þessa útreið á landsliðinu og hefur tapað öllu stolti yfir því að vera handboltamaður. Best að snúa sér bara að náminu…þetta er alveg vonlaust.

Tags:

Tap gegn Ungverjum!

Það var ákaflega erfitt að sjá íslenska landsliðið tapa svona gegn Ungverjum…en við verðum bara að bíta á jaxlinn og taka Tékkana á sunnudaginn annars verðum við bara sendir heim með næsta flugi. Við hljótum nú að taka þá í svona pressuleik…en þetta kemur bara ljós.

Tags:

Jæja nú verðum við taka á því á móti Ungverjunum svo að við förum bara ekki heim með sárt ennið. Ég legg til að menn verði skynsamir í sókninni og spili aðeins lengur sín á milli þegar við erum færri…En hvað finnst ykkur?

Tags:

Við töpuðum fyrir Fylki í gær í alveg eitur mögnuðum leik, við komumst í 9:0 og vorum yfir allan leikinn þar til að það voru nokkrar mínútur eftir, en þá komust Fylkismenn yfir og unnu okkur í restina. Þetta er svona í boltanum sigrar og töp og maður verður bara að taka því.

Ég var að horfa á íslenska landsliðið áðan en þeir misstu leikinn úr höndunum í miðjum seinni hálfleik. Þeir gera bara betur á morgun en þá spila þeir á móti Ungverjum sem unnu Tékka sem við spilum við á sunnudaginn.

Nóg af handboltanum að sinni ætla að enda þetta með fyrstu myndinni á blogginu sem er af Ólafi Stefáns sem á eftir að standa sig vel á EM.

Tags:

Jæja það er enginn smá leikur á morgun, við í Þreyttum 3 erum að fara að spila í Fylkisheimilinu sem er einmitt heimavöllur beggja liða. Þetta verður erfitt því að við töpuðum síðasta leik gegn þeim. En ég er að fara að læra…..eða hætta alla vega í tölvunni.

Tags:

« Older entries § Newer entries »