Handbolti

You are currently browsing the archive for the Handbolti category.

Já þrátt fyrir einn slakasta leik sem ég hef tekið þátt í handknattleik, þá bárum við í Þreyttum 3 sigur úr bítum er við spiluðum gegn SÁ (Stíflulosun Ásgeirs). Við vorum að reyna að rífa okkur í gang og taka á því en það tókst einhvern veginn aldrei, þrátt fyrir það þá unnum við með 8 mörkum og segir það kannski meira um getu hins liðsins ekki hversu góðir við vorum.

Er í HörpuSjöfn að hala inn peningum…fór í bíó í gær með Kollu á myndina “Uptown Girls” hún var bara góð.

Tags: , ,

Já maður er alltaf á fullu, er að fara að vinna laugardag og sunnudag í HörpuSjöfn. Síðan er mér boðið í partý í kvöld og afmæli á morgun. Síðan er leikur hjá Þreyttum 3 á morgun kl. 19.

Sem sagt það verður ekki lært neitt að viti þessa helgi…en það verður tekið á því í næstu viku. Þá fer ég í fullt af verklegum tímum og verð bara í skólanum og geri lítið annað.

Tags: ,

Jafntefli hjá KA!

Ég fór og keppti með KA-mönnum aftur í dag í 2.fl. og gerðum við jafntefli við Fram í afar slökum leik. Þetta var þriðji leikurinn á þremur dögum og því var mannskapurinn eitthvað lúinn. Þetta var samt góð ferð suður hjá þeim því að þeir náðu 5 stigum af 6. En þeir spiluðu á laugardaginn við FH og unnu auðveldlega með 9 mörkum. Þá var ég bara að vinna eins og ég er reyndar að gera núna og missti því af þeirri viðureign. Þreyttir 3 voru líka að keppa í gær en þeir töpuðu fyrir Fylki.

Ég hef það ekki lengra að þessu sinni, lítið í fréttum…klára að vinna eftir klukkutíma og fer þá í mat hjá Bjarna og Hrefnu…það verður helvíti fínt eins og alltaf…yfir og út.

Tags: ,

Sigur KA-manna!

Það gekk vel hjá KA í 2.fl. í gær við (því ég var með) spiluðum við Víkinga í Víkinni og höfðum betur í æsispennandi leik. Það Víkingur sem var yfir mest allan fyrri hálfleikinn en síðan tókum við okkur á eftir leikhlé þegar um 8 mín voru eftir.

Ég kom inn á í vörnina og spilaði mest allan leikinn. Það var ekki leiðinlegt að fara aftur í KA treyju merkta 23.

Ég er núna að skrópa á leik Þreytts 3 sem eru að spila við Fylki í Fylkishöllinni. Ég sendi þeim góða strauma héðan úr HörpuSjöfn þar sem ég er að hala inn peningum fyrir að sitja og búa til heimasíðu…ekki slæmt það.

Það er víst laugardagur = nammidagur í dag, ég er reyndar ekki búinn að fá mér neitt í dag en það verður örugglega í kvöld. Hef enn haldið nýársheitin sem ég setti mér og mér sýnist ég ekkert á leiðinni að falla á þeim.

Er að reyna gera bloggið flottara, gera gestabók og spjallsíðu…gengur nokkuð vel en það gæti verið að síðan verði eitthvað brengluð næstu daga.

Tags: ,

Það verður allt brjálað að gera næstu daga, er að fara að vinna um helgina og síðan að keppa í handbolta. Norðanmenn hafa beðið um liðsstyrk og að sjálfsögðu reynir maður að gera allt fyrir sitt gamla og góða félag.

Hérna er planið:

Fimmtudagur (í dag): æfing með Þreyttum 3 kl. 22:20

Föstudagur: leikur með KA í 2.fl á móti Víkingi kl. 21:00

Laugardagur: Vinna frá kl. 10-17 í HörpuSjöfn í Skeifunni (missi af leik hjá Þreyttum 3) og var líka beðinn um að spila með KA, en kemst í hvorugan leikinn ;(

Sunnudagur: leikur með KA 2.fl á móti Fram kl. 11:00 og síðan vinna kl. 13-17

Þetta verður svakapuð fyrir mann sem er ekki alveg búinn að æfa nógu vel í vetur.

En þetta er góð prófraun og gaman að sjá hvernig þetta fer allt saman.

Að lokum er búinn að fá út úr þremur prófum í háskólanum, búinn að ná öllu alveg ótrúlegt en satt. Með hæst í stærðfræði af öllum fögum, það hefur nú ekki gerst síðan ég var í Gagganum eða lengra síðan. Og síðan þarf ég aldrei að fara aftur í Dýrafræði A því ég náði og gott betur, fékk 6.5 sem bjartsýnustu menn hefðu aldrei þorað að spá fyrir um.

Jæja ætla að lesa frumulíffræði til svona fjögur gangi mér vel

Tags: , , ,

Ég var að ryfja það upp að ég hafði búið til blogg hérna fyrr í haust og fannst því tilvalið að fara að láta vita af mér…ég sem ætlaði að hafa allar helstu upplýsingar um mig hérna og láta fólk vita að ég væri á lífi….það er allavega staðfest núna og ef svo ólíklega vildi til að einhver sé búinn að kíkja hingað á síðuna og er farinn að hafa áhyggjur af mér þá leiðréttist það þá hér með.

Það helsta sem ég er að brasa núna þessa dagana er að ég er að fara keppa við Fylki í utandeildinn á miðvikudaginn kl. 18 að ég held og síðan er ég að verða stressaður fyrir prófin því það er bara fjórar kennsluvikur eftir.

En núna ætla ég að fara að kíkja í stærðfræðibækurnar….

ps. kíkti í bíó í gær á Kill Bill….hún var bara nokkuð góð!! Gef henni 3 stjörnur af fimm mögulegum.

Tags: ,

Newer entries »