MS-nám

You are currently browsing the archive for the MS-nám category.

Þetta er búið að vera ansi strembin helgi, ég er búinn að vera duglegur í tölfræðinni enda stutt þangað til ég þarf að skila ritgerðinni. Ég er búinn að vera mikið að læra upp í skóla í SPSS. Annars er allt gott að frétta og allir frískir. Vinna á morgun svo ég verð nú ekki eins lengi að í kvöld og síðustu kvöld.

Leysingar

Já það er búið að vera umhleypingasamt síðustu daga. Allur snjórinn farinn og bleyta og drulla á öllum götum. Ég fór og þvoði bílinn áðan svona til að taka mestu tjöruna af. Það var hvorki meira né minna en 10°C á hitamælinum og greinilega ruglað einhverja í ríminu, a.m.k. fluguna sem flýgur hérna um lesstofuna og heldur að það sé komið vor ;)

Ég er alveg að verða búinn í fæðingarorlofinu og byrja að vinna á mánudaginn, stefnan er því að læra slatta í þessari viku. Stefnan er að klára ritgerðina fyrir páska svo ég geti notið þeyrra að mestu stresslaus. Ég ætla bara eiga eitthvað smotterí eftir þegar ég kem úr páskafríinu. Nú er bara að standa við stóru orðin.

Miðvikudagur fyrir skírdag er 8. APRÍL 2009. Nú er bara að hafa hann sem viðmiðunardag.

Jæja loksins er það komið á hreint að ég er að fara til Finnlands í sumar. Ég var svo heppinn að fá þrjá styrki í dag, einn frá rannsóknarnámssjóði, einn frá Hjartaheill og einn frá Félagi íslenskra lífeðlisfræðinga. Ég næ að dekka allan kostnað með þessum styrkjum og get því leyft mér að fara.

Ég mun flytja erindi um verkefnið mitt á Norrænu hjartaendurhæfingar ráðstefnunni sem fer fram í Hämeenlinna sem er 100km frá Helsingi. Ráðstefnan er 12-14. júní og ég ætla mér bara að vera í þrjár nætur í Finnlandi því ég þarf að drífa mig norður á Akureyri að fagna 5 ára reunion frá MA með bekkjarfélögum mínum ;) Það er óvissuferð 15. júní og síðan er 16. júní með öllum afmælisárgöngunum í íþróttahöllinni.

Hjólað í vinnuna átakið er enn í gangi og verður út næstu viku, ég ætla að reyna að halda sama dampi og klára þetta átak með stæl.

Tags: , , ,

Það væri gaman að skella sér á ráðstefnu í Finnlandi í sumar, ef ég fæ ferðastyrkinn sem ég er að sækja um þá læt ég verða af þessu. Ef ykkur langar á norræna hjartaendurhæfingar-ráðstefnu í bænum Hämeenlinna í Finnlandi í júní, klikkið þá hér ;)

Tags:

Ég á að halda fyrirlestur um verkefnið mitt á málstofu meistara- og doktorsnema við læknadeild HÍ 13. mars næst komandi, svo takið þið daginn frá því öllum er frjálst að mæta. Ég byrja kl. 16:15 en kaffi og smá veitingar byrja kl. 16:00. Þetta er á 3. hæð læknagarðs (Google earth kort, getið náð í forritið hér) í fyrirlestrasalnum þar. Ég veit að það verður troðfullt út úr dyrum ;)

Í fyrirlestrinum mun ég fjalla um það sem ég er að gera í verkefninu mínu þ.e. endurhæfingu sjúklinga á Reykjalundi sem eru með langvinna lungnateppu eða hjartabilun. Þessir tveir sjúkdómar eru gríðarlega algengir og má nefna að lungnateppan er 4. algengasta orsök dauðsfalla í Bandaríkjunum og er því spáð að hún nái þriðja sætinu árið 2020. Hjartabilun er líka mjög algeng og kemur oft í kjölfar kransæðasjúkdóma, meðal fólks yfir 65 ára er hjartabilun orsök 20% af öllum sjúkrahúsinnlögnum.

Ég mun sem sé birta fyrstu niðurstöður um áhrif þeirrar þjálfunar sem sjúklingarnir hafa gengið í gegnum á sex vikna tímabili á Reykjalundi og hvet ég alla áhugasama til að mæta!

Tags:

Afrek dagsins

  • Læra vel í verkefninu.
  • Hlaupa í Nauthólsvík.
  • Ryksuga og bóna gólfið heima.
  • Þrífa baðherbergið
  • Þvo tvær vélar og þurrka.
  • Borða góðan fiskrétt
  • Byrja að læra aftur eftir mat (mjög erfitt stundum)
  • Blogga um herlegheitin ;)

Tags: , ,