Veður

You are currently browsing the archive for the Veður category.

Leysingar

Já það er búið að vera umhleypingasamt síðustu daga. Allur snjórinn farinn og bleyta og drulla á öllum götum. Ég fór og þvoði bílinn áðan svona til að taka mestu tjöruna af. Það var hvorki meira né minna en 10°C á hitamælinum og greinilega ruglað einhverja í ríminu, a.m.k. fluguna sem flýgur hérna um lesstofuna og heldur að það sé komið vor ;)

Ég er alveg að verða búinn í fæðingarorlofinu og byrja að vinna á mánudaginn, stefnan er því að læra slatta í þessari viku. Stefnan er að klára ritgerðina fyrir páska svo ég geti notið þeyrra að mestu stresslaus. Ég ætla bara eiga eitthvað smotterí eftir þegar ég kem úr páskafríinu. Nú er bara að standa við stóru orðin.

Miðvikudagur fyrir skírdag er 8. APRÍL 2009. Nú er bara að hafa hann sem viðmiðunardag.

Við gerðum okkur ferð til Dalvíkur í gær, ég, Anna Guðrún og Inga Lísa, þar sem við hittum Þóru á Sökku og Hannes Inga. Þetta var alveg mögnuð ferð enda nóg af snjó og ekki slæmt að komast í púðrið. Við bjuggum til stökkpall og alles ;)

Síðan fórum í Böggvis til Jóhönnu, Brynjólfs og kó…þar hittum við Brynjólf Mána sem var hinn sprækasti. Ég setti inn myndir úr ferðinni þó þær séu ekki margar og má finna undir myndir hér til vinstri.

Í dag er ég ekki alveg viss hvað ég ætla að gera, það spáir soltið hvössu veðri þannig að maður nennir ekki í fjallið, enda er bara opið í Fjarkanum, Hóla- og Hjallabraut. Mig dauðlangar að komast í Strýtuna þannig að maður ætti kannski bara að drífa sig og labba upp eftir sjálfur.

Tags: , ,

Ég held að það sé allt að verða komið og jólin mega bara fara að koma. Ég er búinn að gera allt nema aðalatriðið en það er að kaupa jólagjöf handa elskunni minni. Við höfum þó komist að þeirri niðurstöðu að það sé best að hún velji bara gjöfina sjálf á morgun þar sem hún er með lausann tíma…ekki mjög skemmtilegt en kannski betra þar sem hún fær þá nákvæmlega það sem hana langar í og þarf ekki að skipta því ef ég kaupi eitthvað vitlaust.

Á morgun er Þorláksmessa og við bræðurnir sjáum ekki fram á að það verði nein skata í ár þar sem við erum að vinna og það gengur eitthvað brösulega að fá frí til að fara að borða hana. Við verðum því bara að bíta í það súra…nema eitthvað sérstakt komi upp á og þetta skötumál leysist. Annars er ég að fara að vinna frá 10-22 á morgun og verður það örugglega dáltið erfitt en maður hefur svo sem afrekað annað eins.

Kominn með út úr þremur prófum og er búinn að ná þeim öllum. Það þarf því bara að ná einu enn og þá eru námslánin trygg Það hlýtur að reddast hjá mér. Jamm það er ekki mikið meira að frétta nema að það kom þetta leiðindaveður í dag og er víst spáin ekki góð, bara stórhríð og læti. það verður fínt að vera heima og horfa á veðrið og er stefnan að liggja upp í rúmi og breiða yfir haus ef að jóladagur mun bjóða upp á þessa spá.

Tags:

Lítið að frétta af mér…það er bara endalaus snjókoma og það er bara besta mál…því þá styttist í að ég komist á bretti Ég er búinn að reyna að vera duglegur í lærdómnum í dag en það er eins og ég komist ekki í gang fyrr en svona um miðjan dag og er orðinn góður þegar venjulegt fólk ætti að vera að fara að sofa. Þetta er mesti galli því að það verður oft allt of lítið úr deginum

Það gengur ekkert allt of vel með þessa helvítis ritgerð þannig að ég er búinn að vera að taka pásu á henni og gera önnur verkefni. Vonandi að maður fari langt með helvítið um helgina…þetta er að verða allt of mikill tími sem fer í þetta helvíti. Ég er svo góður í að velja mér einhver viðfangsefni sem að tekur heila eilífð að leysa. Ég er að fara taka smá syrpu í þessu og síðan ætla ég í ræktina klukkan sex og reyna aðeins við bekkinn svo Birkir fari ekki of kátur út úr ræktinni þegar við mætumst um jólin

Tags: , ,

snóar og snjóar…

Það er kominn þessi líka fína snjókoma og er búin að vera síðan í morgun og jörðin orðin hvít aftur. Mér lýst betur á þetta, veðrið var farið að minna meira á apríl eða maí heldur en nóvember. Ég var svo lánsamur að fá far úr skólanum, Hannes og Una sáu um það…þau voru með þessa fínu hjólagrind á bílnum. Ég er sjálfur kominn með bíl til afnota næstu 11 daga því mamma er á leið til Frakklands og pabbi þarf ekki báða bílana á meðan…nema að hann leggi bara krúsanum, hann er nefnilega búinn að láta setja upp þessa líka svakalegu bílskúrshurð og hver veit nema að geymi djásnið bara inn í skúr á meðan mamma er úti.

Annars er allt gott að frétta af mér, var bara í verkefnavinnu í dag í skólanum og síðan er massa föstudagur á morgun, þ.e. erfðafræði og fiskalífeðlisfræði frá 10-18. Ég læt svo hendur standa fram úr ermum um helgina því að ég þarf að byrja á ritgerð sem gildir 30% og fleiri verkefnum. Maður bíður með að djamma með Döllunum og vinunum sem eru fyrir sunnan þar til að þeir koma norður um jólin. Hef enga trú á öðru en að það verði djammað þá líka. Gaman hefði verið að skreppa suður yfir heiðar en þá hefði ég heldur ekki gert neitt í lærdómnum sem ég verð að gera ef ég ætla mér að ná þessum blessuðum prófum.

Eyrún Gígja og Elmar Dan eru búin að eignast litla stelpu og óska ég þeim innilega til hamingju með það. Ég er núna að rústa Kollu í þessum keppnum um kyn á börnum, 2-0 (sagði að Þóra eignaðist strák og Eyrún stelpu en Kolla sagði öfugt við mig), þannig að ég tel mig nokkuð glöggann á þetta og ef þið eruð í vafa og viljið vita svona lagað þá hafið þið bara samband

Jæja ég er kominn með svaðalega strengi í axlirnar og get ekki pikkað mikið lengur….skemmtið ykkur vel um helgina!

Tags: ,

Kveldið…

Það er allt í rólegheitunum hér í Spító, ég er búinn að vera að læra og ákvað að taka smá pásu. Ekki margt að frétta svo sem, nema að það er farið að rigna eins og ég veit ekki hvað hérna fyrir norðan. Núna fer að styttast í suðurferð hjá mér, legg í’ann á sunnudaginn og verð alveg í viku í verklegri erfðafræði hjá Prokaria…hver veit nema að við finnum einhver spennandi gen eða klónum mann :)

Ég fór í skólann um hálfeitt í dag…þar sem verkleg líftæknileg örverufræði fór fram. Það er svo sem ekki frásögu færandi nema hvað að við vorum að sjúga hveraörverurnar sem við söfnuðum í Mývatnssveitinni um daginn upp úr flöskum. Til þess þarf maður að nota sprautur og nálar…það vildi ekki betur til en svo að ein stelpan stakk nálinni í gegnum puttann á sér Við vorum náttúrulega dauðskelkaðir, ég, Frímann og Steinar kennari en stelpan sem heitir Rut var alveg ótrúlega hraust. Maður hefði náttúrulega ælt og látið líða yfir sig ef þetta hefði komið fyrir mann en hún fékk bara bréf og smá spritt. Hún var með blóð sitthvoru megin á puttanum og þá er ég ekkert að tala um rétt í gegnum skinnið…nei nei nálin fór í gegnum miðjan puttann, sennilega rétt undir beinið. Ég var líka smá klaufi í þessum sama tíma því að þegar ég var búinn að ná hveraörverum úr flöskunni þá var nálin svo helvíti föst í að ég náði að stinga mig á henni, loksins þegar ég náði henni út. Nálin hjá Rut var þó dauðhreinsuð! Ég býst því alveg eins við því að ég fái nýja sótt sem verður kölluð hverasýki á íslensku og Basilus thermophilus egilus á latínu. Hún mun lýsa sér með miklum vindgangi með hveralykt og ljótum kýlum sem springa og krauma á líkamanum líkt og leirhverirnir sem örverurnar lifa í.

Jámm útlitið er því ekki gott og ef ég skrifa ekki hérna á næstunni þá gæti verið að ég sé í rannsókn á FSA, njótið lífsins ég ætla að fá mér C-vítamín og fara að hvíla mig.

Tags: , , ,

Já nú er páskafríið búið og alltaf styttist í prófin…maður er bara búinn að borða, vinna og sofa. Gott líf en ekki vænlegt til árangurs í skólanum…Ég og Kolla sáum myndina Just maried í gær, hún var bara helv.. góð.

Veðrið í gær var ekta Reykjavíkurveður, fyrst skein sólin í morgunsárið síðan kom þessi svaka snjókoma og jörðin varð hvít á svipstundu. Klukkutíma síðar var allur snjórinn farinn og sólin farin að skína. Stoppaði samt stutt því það kom rigning í smátíma og fór að hvessa aðeins. Alveg ótrúlegt þetta veður fyrir sunnan.

Núna í dag er sól og soltill vindur…veit ekki hvað verður þannig lengi.

Jæja ætla að halda áfram að læra…ekkert meira í fréttum að sinni.

Tags: ,

Sól í Reykjavík

Það er þetta fína veður úti í núna og ætla ég að fara út á eftir og njóta þess. Það er reyndar frekar kalt en það gerir svo sem ekkert til maður klæðir sig bara í eitthvað hlýtt. Ég og Kolla fórum að sjá Sugar Babes í gær, en Styrmir og félagar í Skyttunum voru einmitt að hitta upp með Önnu Katrínu með sér. Kolla vann miða í Visa svart leik á netinu þannig að við sluppum nokkuð ódýrt út úr þessu. Þetta var bara ágætis skemmtun og gaman að horfa á. Meðalaldurinn þarna inni var frekar lítill en mest var um gelgjur úr 7-10. bekk. Þó voru einstaka fólk sem við þekktum eins og Jón Víðir, Baldvin og Heimi Árna. Ég hef það ekki meira að sinni, ætla í bíó í kvöld eftir mat hjá Bjarna og Hrefnu.

Tags: ,

Það er búið að vera djöflus hávaða rok hérna í Breiðholtinu síðan á aðfaranótt sunnudags. Þessi djöflus læti eiga víst að halda áfram út vikuna. Þetta er náttúrulega alveg ömurleg læti þegar veikur maður er að reyna að sofa…en heilsan er svo sem að lagast þannig að maður getur farið að flýja eitthvað vestur í bæ þar sem vindurinn er a.m.k. aðeins rólegri.

Jæja þá er ég búinn að þrasa nóg yfir veðrinu…sem hefur reyndar aldrei verið neitt gagn í því það er bara eins og það er og ég breyti því ekkert þó ég sé að tuða yfir því. Enn þetta hafa menn reyndar gert frá örófi alda þannig að það er ekki ólíklegt að þetta sé í genunum. Kannski framtíðar verkefni fyrir verðandi vísindamenn að finna hvaða gen í genamenginu stjórnar tuði yfir veðrinu…gæti orðið skemmtileg rannsókn. Jæja best að hætta bullinu áður en það nær herljargreipum á mér. Læt eina stöku fylgja svona í restina…

Í Breiðholti er gott að búa

en bara í sól og yl.

Ekki ættirðu þessu að trúa

hér býðst bara stormur með byl.

Tags: ,

Óveður á landinu!!

Það er alveg bandbrjálað veður á mest öllu landinu, fyrir norðan hefur ekki snjóað eins mikið á jafn stuttum tíma lengi lengi…og er víst ófært í þessum töluðu orðum upp í Hlíðarfjall og ruslahauga. Hérna fyrir sunnan er agalega hvasst, maður verður að fara varlega því það getur verið ansi erfitt að fóta sig í svona miklum vindi og hálku.

Ég er búinn að vera að reyna breyta útlitinu á blogginu mínu…hefur ekki gengið nógu vel, er að hugsa um að halda mig bara við þetta þar til ég er búinn læra almennilega á heimasíðu forrit og Photoshop, jæja ekkert meira í fréttum

—yfir og út—

Tags: