» Vinna

Jóln nálgast meir…
Ég held að það sé allt að verða komið og jólin mega bara fara að koma. Ég er búinn að gera allt nema aðalatriðið en það er að kaupa jólagjöf handa elskunni minni. Við höfum þó komist að þeirri niðurstöðu að það sé best að hún velji bara gjöfina sjálf á morgun þar sem hún er með lausann tíma…ekki mjög skemmtilegt en kannski betra þar sem hún fær þá nákvæmlega það sem hana langar í og þarf ekki að skipta því ef ég kaupi eitthvað vitlaust.

Á morgun er Þorláksmessa og við bræðurnir sjáum ekki fram á að það verði nein skata í ár þar sem við erum að vinna og það gengur eitthvað brösulega að fá frí til að fara að borða hana. Við verðum því bara að bíta í það súra…nema eitthvað sérstakt komi upp á og þetta skötumál leysist. Annars er ég að fara að vinna frá 10-22 á morgun og verður það örugglega dáltið erfitt en maður hefur svo sem afrekað annað eins.

Kominn með út úr þremur prófum og er búinn að ná þeim öllum. Það þarf því bara að ná einu enn og þá eru námslánin trygg  Það hlýtur að reddast hjá mér. Jamm það er ekki mikið meira að frétta nema að það kom þetta leiðindaveður í dag og er víst spáin ekki góð, bara stórhríð og læti. það verður fínt að vera heima og horfa á veðrið og er stefnan að liggja upp í rúmi og breiða yfir haus ef að jóladagur mun bjóða upp á þessa spá.

Jólin nálgast…
Ég er farinn að komast í mikið jólaskap, er að verða búinn með allt sem ég þarf að gera. Þó eru nokkir hlutir eftir:

1. Kaupa gjöf handa Kollu minni

2. Klára jólakortin

3. Kaupa jólatré

4. Kaupa gjöf handa ömmu og afa og mömmu og pabba

5. Laga aðeins til

Annað að frétta er að ég var að vinna í dag og var Bragi mættur í vinnu í dag með mér. Það var afskaplega lítið að gera…Akureyringar átta sig örugglega ekki fyrr á Þorláksmessu að þeir eiga eftir að kaupa jólavínið og koma allir á sama tíma og kvarta yfir því að það sé alltaf allt of mikið að gera í ríkinu…þannig að komið bara fyrir hádegi á morgun eða hinn og þið losnið við traffíkina  Þá höfum við líka aðeins meira að gera og dagurinn líður hraðar.

Jæja ætla að klára að skrifa jólakortin núna.

Vinna og meiri vinna…
Maður er ekki fyrr búin að klára prófin að maður fer og hellir sér í jólaösina á vinnumarkaðnum. Ég var að vinna frá 10-19 í gær og voru þó nokkrir sem komu við í vínbúðinni að kaupa sér veigar…það er samt ljóst að álagið á eftir að vera meira þegar nær dregur að jólum.

Vinnuplanið hjá mér er svona:

Laugardagurinn 18. des. (í dag) – 10:45-16:00

Sunnudagurinn 19. des. – FRÍ

Mánudagurinn 20. des. – 10:öö-18:00

Þriðjudagurinn 21. des. – 10:00-18:00

Miðvikudagurinn 22. des. – 10:00-19:00

Fimmtudagurinn 23. des. (Þoláksmessa) – 10:00-22:00

Föstudagurinn 24. des. (Aðfangadagur) – 8:45 – 12:00

Laugardagurinn 25. des. (Jóladagur) – FRÍ

Sunnudagurinn 26. des. (annar í jólum) – FRÍ

Mánudagurinn 27. des. – 10:00-18:00

Þriðjudagurinn 28. des. – 10:00-18:00

Miðvikudagurinn 29. des. – 10:00-18:00

Fimmtudagurinn 30. des. – 10:00-20:00

Föstudagurinn 31. des. – 8:45-13:00

Þetta verður stíft en okkur Kollu vantar pening og því dugar ekkert að kvarta undan þessu. Ég býst ekki við því að vinna eftir áramót þar sem ég þarf að læra undir próf í erfðafræði. En nú þarf ég að drífa mig í vinnuna

Kominn með vinnu í jólafríinu…
Já nú þarf maður ekki að kvíða allra þeirra útgjalda sem fylgja jólunum því það verður ekki bara útstreymi úr peninga buddunni heldur innstreymi eftir hátíðarnar. Það verður fínt að læra í sambland við vinnu og jólaboð…maður hefur gott af því það er eitt sem er víst!

Annars er ég búin að laga alla þá tæknilegu örðugleika sem fylgdi því að skipta yfir í apple og hef ég ekki rekist á notendavænna stýrikerfi…enda ekki prufað neitt nema windows. Það eina sem hefur komið fyrir mig var að allar skrárnar sem ég flutti yfir úr gömlu lifebook urðu að “read only” og því gat ég ekki í fyrstu opnað gamlar skrár, breytt þeim og vistað þær aftur. Með því að breyta þeim öllum í “read and write” á svona 5 sekúndum get ég það. Þetta hefði aldrei gerst svona hratt í PC, hefði örugglega þurft að breyta hverri skrá fryrir sig og verið heila eilífð að því. Síðan passa ég mig á því að senda windows friendly póst og þá er það upptalið sem ég hef lent í vandræðum með í apple.

Úrslit könnunar er komin í ljós og niðurstöðurnar afgerandi, það ætla flestir á sem skoða þessa síðu að fara á Gagga rejúníónið og verður það gaman að sjá gamla félaga sem maður hefur ekki hitt í 5ár.

Á að mæta á 5ára “rejúníón” Gaggans?

Já að sjálfsögðu!! 42%

já ég held það?? 8%

Ég veit ekki 4%

Nei örugglega ekki 17%

Á ekki við um mig 29%

24 greiddu atkvæði…þeir sem lesa þetta og greiddu sitt atkvæði nokkrum sinnum til að skekkja niðurstöður eða bara kanna stöðuna þá vil ég benda ykkur á að það er hægt að kanna úrslit könnunar án þess að greiða fleiri atkvæði en eitt með því að ýta á “sjá niðurstöður” takkann sem er undir könnuninni. Þetta kerfi er gallað að því leyti að maður getur greitt endalaus atkvæði og þá er ekkert að marka könnunina.

Ég er því búinn að skella inn nýrri könnun og hver veit nema að maður skelli inn myndum þegar maður kemst í jólafrí. Jæja best að halda áfram að læra undir síðasta prófið í bili sem er á morgun klukkan 9…tek erfðafræðina 5. janúar.

Búinn að mála
Í gær kláraði ég að mála með góðri hjálp frá Björgvini, síðan fórum við tvær ferðir með drals niður í Spítalaveg 1. Nú fer að styttast í það að maður flytji frá mömmu og pabba. Maður verður nú samt með annan fótinn í Espilundinum þegar maður er svangur og svona .

Það er ekki átakalaust að koma draslinu inn í íbúðina sem við erum að fara leigja því hún er á þriðju í húsinu og þröngir og brattir tréstigar eru ekki til að hjálpa. Við reyndum að fara með bókahilluna mína upp í heilu lagi en hún komst engan veginn sökum þrengsla og því tókum við hana alla í sundur til að þetta gengi.

Í dag erum við að hugsa um að koma með ísskáp frá ömmu hennar Kollu og fylla hann af mat. Við þurfum því að taka vel á því, þar sem annar ísskápur er fyrir upp í eldhúsi en hann er með svo litlu frystihólfi að við erum að hugsa um að skipta honum út.

Það er afskaplega rólegt í vinnunni núna, Einar er í fríi þar sem hann er að keppa á Pollamótinu og Ævar skrapp að ná sér í sólgleraugu í Glerártorg því hann ætlar að fara til Spánar í tvær vikur.

Portúgalar spila við Grikki á EM, ég og Kolla erum að fara til Portúgal eftir 55 daga og erum diggir stuðningsmenn Portúgals. Það er alveg á hreinu að ég fæ mér nýja treyju með Figo þegar ég fer út. Keypti mér Zidane-treyju í Frakklandi og get ekki klæðst henni með sóma á næstunni.

Jamm ég er sem sagt á fullu að flytja þessa dagana og hef mjög gaman að því…við Kolla munum örugglega gera lítið annað um helgina en að koma okkur fyrir. Gef skýrlu um gang mála síðar…

Skrapp í golf
Já ég dró Steinþór frænda með mér út í kvöld og við tókum nokkur æfingahögg á golfvellinum á Þverá. Við reyndar vissum ekki alveg hvar völlurinn væri og vorum búnir að keyra dágóðan spöl inn í Eyjafjörðinn. Keyrðum inn að Hrafnagili, fórum yfir brúnna og héldum áfram inn fjörðinn. Þetta hefðum við náttúrulega ekki átt að gera en maður er vitur eftir á og nú vitum við nákæmlega hvar þetta er. Sían fengum við það staðfest að bændur eru byrjaðir á fullu í heyskap og engin lygi að allt sé miklu fyrr á ferðinni heldur en í venjulegu ári. Golfið gekk ágætlega hjá Steinþóri en ekki alveg nógu vel hjá mér. Við hittum samt helvíti fínana kall sem var að sjá um golfvöllinn þarna og saðgði okkur að þeir væru að fara að halda námskeið þarna á næstunni og það er því aldrei að vita nema að maður slái til með það. Verð nú að kunna undirstöðu atríðin svo ég sé nú að æfa mig rétt. Annars er ekki margt að frétta…það var allt á afturfótunum í vinnunni í dag, litavélin bilaði…einhver helvítis dæla gaf sig og við þuftum að skipta um hana og á meðan lak helvítis litarefnið út um allt. Þetta hafðist þó fyrir rest enda einstaklega laghenntir menn sem vinna þarna  Ég er orðinn frekar lúinn núna…ætla að fara að leggja mig.

Mættur í vinnu..
Já maður er mættur til vinnu þrátt fyrir að vera léttur á því í Ýdölum í gær. Við gerum ágætis ferð þangað, fór með Birki, Kollu og Fanneyju. Birkir keyrði því hann var mættur til að ná myndum af íslensku sveitaballi og fór fimlega með nýju myndavélina. Held hann hafi náð nokkrum góðum skorumyndum fyrir séð og heyrt…hann var samt hvergi sjáanlegur þegar roslegur ástaleikur átti sér stað við hliðina á okkur Kollu og vinum hennar. Einn gæji var gjörsamlega að borða eina stúlkuna og mér sýndist hann hafa misst eitthvða ofan í buxurnar hennar því hann var að þreifa eftir einhverju þar.  Við vorum annars komin heim um hálf fjögur og var farið beint að sofa, eftir að maður hafði sent fötin með þessari líka reykingastibbu í sótthví. Það ætti að vera stranglega bannað að reykja á svona skemmtistöðum! Vona að lög um það komi sem fyrst þegar menn eru búnir að fá nóg af fjölmiðlafrumvarpinu. Jæja dagurinn er að verða búinn hérna HörpuSjöfn best að fara að loka þessari búð og halda heim á leið.

Sól í dag og allir að mála
Já það var mikið að gera í dag þar sem sólin lét loksins sjá sig eftir þó nokkra bið. Það gekk allt vel og við selldum alveg fullt. Ég er að fara að vinna aftur á morgun frá 10-14 og fer svo í stúdentsveislu til Árnýar sem var að útskrifast af handmenntabraut úr VMA. Það er aldeilis glæsilegt hjá henni og óska ég henni til hamingju með það. Annars er lítið að frétta engar strætó sögur til að segja frá, maður hjólar alltaf í vinnuna eða tekur Kó-rolluna ef að enginn er á henni. Ég vona að þið njótið kvöldsins, held ég verði bara rólegur.

Kominn norður og kominn á fullt :)
Jámm maður er ekki búinn að blogga lengi, netið í HörpuSjöfn er ekki í lagi þannig að maður getur ekkert skrifað hér þegar það er ekkert að gera. Þeir fyrir sunnan sögðu að það væri bara frosið í leiðslunum hjá okkur, en það hlýtur að fara að þiðna þar sem það er búið að vera ágætis veður hérna. Það sem hefur drifið á mína daga síðan er að við Kolla fórum og fengum okkur rosalega hamborgara með Brynju mömmu hennar Kollu á American Style, skruppum svo aðeins í kringluna til að drepa tímann og flugum svo norður. Þetta var rosa flugferð, glampandi sól tók á móti þegar við komum inn í Eyjafjörðinn og fengum við smá útsýnisflug því flugstjórinn flaug út fjörðinn og lennti svo í suður átt. Það hafði víst ekki sést til sólar í nokkrar vikur þannig að hún hefur látið sjá sig af þessu tilefni. Ég fór svo að vinna klukkan 8 á fimmtudaginn og vann síðan föstudag og laugardag líka. Í dag er maður búinn að vera á fullu að vinna í garðinum með mömmu, ömmu og síðan þvoðum við Kolla gluggana á húsinu. Síðan fór ég til Trausta, þar sem pabbi var að vinna ásamt Val og Magnúsi. Ég og Valur fórum og henntum tveimur kerrum af rusli, ásamt afa sem stjórnaði þessu öllu saman og síðan fórum við upp á hauga með átta ruslapoka af garðúrgangi.

Í gær fórum við Kolla í Eurovison-partý til Fanneyar og Arnórs. Þetta var ágætis skemmtun og fannst mér Úkraína bara með nokkuð gott atriði. Jónsi stóð sig vel en þetta lag gekk ekki núna, því það voru hressu og fjörugu lögin sem stóðu upp úr. Ég held ég fái mér smá kríu fyrir matinn, það á að grilla…amma og afi koma í mat. Ekkert betra en maturinn hérna í Espilundi 13  Vonandi hafið þið sunnlendingar það jafn gott og ég…maður finnur hvernig slakknar á manni að komast hingað norður stress og annar pirringur flýgur út í hafsauga þegar maður andar hreinu og tæru norðleska loftinu að sér.

Góðan og blessaðan
Ég er kominn í páskafrí…ííííhhhaaaa  Ég er nú samt mættur í bókhlöðuna og er að klára efnafræðiskýrslu og sitthvað fleira. Ég og Kolla verðum að vinna slatta í þessu fríi og er það bara gott mál að vinna og læra á milli þess sem maður úðar í sig páskaeggjum. Ég held við verðum að vinna eitthvað heima líka því nú er verið að taka baðið í gegn og mölva allar flísarnar niður. Brynja ætlar að senda mig í HörpuSjöfn á eftir og ég á að kaupa spartl, kítti, málingu, sandpappír og ef til vill eitthvað fleira. Við vorum vinsamlegast beðin um að gera eitthvað í málunum því það lekur meðfram glugganum og niður á næstu hæð inn í einhverja geymslu þegar við erum í sturtu. Það verður því eitthvað lítið sturtað sig heima á næstunni…það er enn hægt að fara í bað en þeir sem eru um einn og nítíu á hæð skilja þegar ég segi að það er ekki þægilegt að liggja ofan í venjulegri stærð af baðkari. Annað hvort standa lappirnar upp úr eða allur efri hlutinn…þannig að ég kýs frekar heita pottinn í sundlaugunum heldur en baðkarið heima. Ætla að halda áfram með efnafræðina…hafið það sem best í dag!