Vinna

You are currently browsing the archive for the Vinna category.

Já það eru orðnir nokkrir dagar síðan ég skrifaði síðast, maður er búinn að vera gera alveg slatta, aðallega að læra og vinna.

Búinn að vera vinna tvær síðustu helgar og því búinn að reyna vel í vikunni, því maður nennir yfirleitt ekki að læra eftir vinnu. Hún Kolla mín var 19 ára núna síðasta laugardag, ég gaf henni hjól og síðan fékk hún líka síma…segið svo að það sé ekkert merkilegt við það að vera 19 ára ha!! Við getum núna farið að hjóla saman þegar snjórinn sem kom núna um helgina er farinn…ekki langt í það, því borgin er eitt stórt slabb í dag.

Ég er kominn í bókhlöðuna og er að fara að gera örverufræðivinnubók sem ég þarf að skila fyrir páska…síðan fer ég í síðustu efnafræðitilraunina í dag á þessum vetri og fæ glertryggingargjaldið endurgreitt ef ég missi ekki mikið í gólfið í dag. Ég er búinn að brjóta eitt tilraunaglas…en það fer ekkert lengra!

Við fórum í mat til Bjarna (pabba Kollu) og Hrefnu konunnar hans á laugardaginn, þar var eldað grillkjöt ofan í afmælisbarnið og svíkur lambið ekki þegar það er komið á grillið…það er alveg ljóst. Við fórum síðan að sjá Pétur Pan í Smárabíói og notuðum frímiðana sem Brynja (mamma Kollu) gaf okkur. Hún var bara fín…ekta ævintýramynd.

Ég er núna búinn að gera skiptinemasamning við Háskólann á Akureyri, ég verð áfram skráður í HÍ en tek hluta af náminu í HA og fæ vonandi mest af því metið inn í HÍ. Það verður gaman að fara aftur norður…stefnum á að fara eins fljótt eftir próf og hægt er, ég klára 12. maí og mun þ.a.l. ekki vera í prófum á afmælinu mínu í nokkuð mörg ár…hver veit nema að það verði veisla :) sjáum til hvar maður veður búsettur….já veit einhver um lausa tveggja herbergja íbúð til leigu í sumar eða næsta árið?? Endilega hafið augu og eyru opin og láið mig vita ef þið fréttið eitthvað…best ef það væri á Brekkunni en það er svo sem ekkert endilega nauðsynlegt.

Jæja best að halda áfram við lærdóminn…skrifa vonandi fljótt aftur.

Tags: , ,

Já þrátt fyrir einn slakasta leik sem ég hef tekið þátt í handknattleik, þá bárum við í Þreyttum 3 sigur úr bítum er við spiluðum gegn SÁ (Stíflulosun Ásgeirs). Við vorum að reyna að rífa okkur í gang og taka á því en það tókst einhvern veginn aldrei, þrátt fyrir það þá unnum við með 8 mörkum og segir það kannski meira um getu hins liðsins ekki hversu góðir við vorum.

Er í HörpuSjöfn að hala inn peningum…fór í bíó í gær með Kollu á myndina “Uptown Girls” hún var bara góð.

Tags: , ,

Eftir að ég, Kolla og Björgvin höfðum lokið við að borða dýrindis kjúkling sem hún Kolla sá um að matreiða, var hlammað sér fyrir framan sjónvarpið og horft á idol strjörnur.

Anna Katrín var dísæt að vanda og gekk bara nokkuð vel þrátt fyrir að röddin hafi aðeins verið að stríða henni.

Jón Sig var flottur að vanda og sýndi bestu frammistöðu sína til þessa að mínu mati.

Kalli Bjarni tók ekkert feilspor frekar en fyrri daginn og vann þetta með yfirburðum, átti það skilið var búinn að vera með yfirburði eftir að röddin í henni Önnu fór að bresta.

Sit í vinnunni og það er ekkert að gera…ætla kannski að kíkja aðeins í námsbækurnar, það verður samt örugglega ekki mikið.

Tags: ,

Já maður er alltaf á fullu, er að fara að vinna laugardag og sunnudag í HörpuSjöfn. Síðan er mér boðið í partý í kvöld og afmæli á morgun. Síðan er leikur hjá Þreyttum 3 á morgun kl. 19.

Sem sagt það verður ekki lært neitt að viti þessa helgi…en það verður tekið á því í næstu viku. Þá fer ég í fullt af verklegum tímum og verð bara í skólanum og geri lítið annað.

Tags: ,

Sigur KA-manna!

Það gekk vel hjá KA í 2.fl. í gær við (því ég var með) spiluðum við Víkinga í Víkinni og höfðum betur í æsispennandi leik. Það Víkingur sem var yfir mest allan fyrri hálfleikinn en síðan tókum við okkur á eftir leikhlé þegar um 8 mín voru eftir.

Ég kom inn á í vörnina og spilaði mest allan leikinn. Það var ekki leiðinlegt að fara aftur í KA treyju merkta 23.

Ég er núna að skrópa á leik Þreytts 3 sem eru að spila við Fylki í Fylkishöllinni. Ég sendi þeim góða strauma héðan úr HörpuSjöfn þar sem ég er að hala inn peningum fyrir að sitja og búa til heimasíðu…ekki slæmt það.

Það er víst laugardagur = nammidagur í dag, ég er reyndar ekki búinn að fá mér neitt í dag en það verður örugglega í kvöld. Hef enn haldið nýársheitin sem ég setti mér og mér sýnist ég ekkert á leiðinni að falla á þeim.

Er að reyna gera bloggið flottara, gera gestabók og spjallsíðu…gengur nokkuð vel en það gæti verið að síðan verði eitthvað brengluð næstu daga.

Tags: ,

Jæja nú eru tveir dagar síðan ég strengdi formlega áramótaheit og þrátt fyrir margar freystingar hef ég enn haldið þau.

Mikið hefur reynt á mig andlega og ekki vitað hvað taugarnar halda lengi.

Nú er ég búinn að fara í skólann aftur og er ég byrjaður í nýja húsinu Náttúru sem er hin glæsilegasta bygging, húsið er reyndar ekki full klárað en það er vel hægt að flytja þar fyrirlestra.

Það sem er fleira í fréttum er það að Þreyttir 3 eru að fara að spila næsta laugardag, ég kemst því miður ekki þar sem ég er að vinna í HörpuSjöfn frá 10-17. Það verður víst að ganga fyrir að hala inn peningum heldur en að vera að spila handbolta þó að það sé nú ekki eins skemmtilegt.

Ætla að fara að lesa frumulíffræði núna….byrja vorönnina með krafti, það þýðir ekkert annað.

Tags:

Newer entries »