Leysingar

Já það er búið að vera umhleypingasamt síðustu daga. Allur snjórinn farinn og bleyta og drulla á öllum götum. Ég fór og þvoði bílinn áðan svona til að taka mestu tjöruna af. Það var hvorki meira né minna en 10°C á hitamælinum og greinilega ruglað einhverja í ríminu, a.m.k. fluguna sem flýgur hérna um lesstofuna og heldur að það sé komið vor ;)

Ég er alveg að verða búinn í fæðingarorlofinu og byrja að vinna á mánudaginn, stefnan er því að læra slatta í þessari viku. Stefnan er að klára ritgerðina fyrir páska svo ég geti notið þeyrra að mestu stresslaus. Ég ætla bara eiga eitthvað smotterí eftir þegar ég kem úr páskafríinu. Nú er bara að standa við stóru orðin.

Miðvikudagur fyrir skírdag er 8. APRÍL 2009. Nú er bara að hafa hann sem viðmiðunardag.

Ný síða

Ég er að leika mér við að setja upp þessa síðu, þetta útlit er nú ekki endanlegt en mér fannst það dáltið svalt.

Ég er að vinna í því að búa til myndasíðu og laga þetta allt til í rólegheitunum. Helgi Hrafn æskuvinur minn er búinn að hjálpa mér mikið og kann ég honum mestu þakkir fyrir. Hann er galdramaður í öllu sem tengist tölvum og tækni svo það er ekki slæmt að þekkja svoleiðis fólk.

Ég keypti mér egillthor.net fyrir nokkru síðan en hef ekkert getað prófað mig áfram fyrr en núna. Nú er bara að sjá hversu langur tími það verður að gera þessa síðu almennilega.

Tags:

Jæja loksins er það komið á hreint að ég er að fara til Finnlands í sumar. Ég var svo heppinn að fá þrjá styrki í dag, einn frá rannsóknarnámssjóði, einn frá Hjartaheill og einn frá Félagi íslenskra lífeðlisfræðinga. Ég næ að dekka allan kostnað með þessum styrkjum og get því leyft mér að fara.

Ég mun flytja erindi um verkefnið mitt á Norrænu hjartaendurhæfingar ráðstefnunni sem fer fram í Hämeenlinna sem er 100km frá Helsingi. Ráðstefnan er 12-14. júní og ég ætla mér bara að vera í þrjár nætur í Finnlandi því ég þarf að drífa mig norður á Akureyri að fagna 5 ára reunion frá MA með bekkjarfélögum mínum ;) Það er óvissuferð 15. júní og síðan er 16. júní með öllum afmælisárgöngunum í íþróttahöllinni.

Hjólað í vinnuna átakið er enn í gangi og verður út næstu viku, ég ætla að reyna að halda sama dampi og klára þetta átak með stæl.

Tags: , , ,

Meiri hjólafréttir

Hjólaði 15,5km og svo 13,okm = 28,5km í dag

Samtals eru þá komnir 81,6km síðustu þrjá daga.
Ég bætti tímann í kvöld og var á 27:01 (Elliðaárdalur/Fossvogur/Nauthólsvík/heim)
Vakna eftir 5tíma best að fara að hvíla lúin bein

Tags: ,

Ég hef verið að pína mig að vera með í þessu hreyfinarátaki og gengið bærilega. Þar sem ég er að vinna upp í Grafarholti á kvöldvöktum er þetta ágætis áskorun.

Hér koma því km sem ég hef hjólað síðustu daga:
Mánudagur: 12,9km og 13,0km
Þriðjudagur: 14,2km og 13,0km
- Hjólaði á 28:50mín og meðalhraðinn 26.4km/klst
- Hjólaði auk þess í sund fyrr um daginn sem telst ekki með í keppninni sem voru um 4,6km
Miðvikudagur: (Í dag hjóla ég líklega 14,2 og 13,0)
Að öðru, Kolla er búin í prófum og við mæðgin eru mjög fegin að fá hana aftur. Þær mæðgur skelltu sér á Laugarvatn í gær í afmælisveislu.
Meira síðar, best að fara að læra svo ég klári þessa ritgerð einhverntíman…

Tags:

Keypti mér egillthor.net áðan svo bíðið þið bara spennt ;)

Tags: ,

Læst: 2 ára afmælisveisla

Þessi færsla er lokuð. Sláðu inn aðgangsorð hér að neðan til að opna færslu.


Tags: ,

Það væri gaman að skella sér á ráðstefnu í Finnlandi í sumar, ef ég fæ ferðastyrkinn sem ég er að sækja um þá læt ég verða af þessu. Ef ykkur langar á norræna hjartaendurhæfingar-ráðstefnu í bænum Hämeenlinna í Finnlandi í júní, klikkið þá hér ;)

Tags:

Hljóp og sótti bílinn

Náði helvíti góðu hlaupi áðan, bíllinn var í viðgerð hjá Toyota upp á Nýbílavegi sem ég gerði mér ekki alveg grein fyrir hversu langt var í burtu. En ég lagði af stað 17:30 og þar sem Toyota lokar kl. 18:00 þurfti ég virkilega að hlaupa eins hratt og ég gat (án þess að springa) og vitir menn ég náði því 17:59 með blóðbragð í munninum ;)

Ég keyrði síðan ansi sáttur heim þó ég hafi þurft að borga mörg þúsund fyrir viðgerðina en það er allt annað mál og mun ég skrifa um það síðar þegar þau mál vera komin á hreint.

Við borðuðum síðan Domino’s pizzu í tilefni megaviku.

Tags: ,

Ég á að halda fyrirlestur um verkefnið mitt á málstofu meistara- og doktorsnema við læknadeild HÍ 13. mars næst komandi, svo takið þið daginn frá því öllum er frjálst að mæta. Ég byrja kl. 16:15 en kaffi og smá veitingar byrja kl. 16:00. Þetta er á 3. hæð læknagarðs (Google earth kort, getið náð í forritið hér) í fyrirlestrasalnum þar. Ég veit að það verður troðfullt út úr dyrum ;)

Í fyrirlestrinum mun ég fjalla um það sem ég er að gera í verkefninu mínu þ.e. endurhæfingu sjúklinga á Reykjalundi sem eru með langvinna lungnateppu eða hjartabilun. Þessir tveir sjúkdómar eru gríðarlega algengir og má nefna að lungnateppan er 4. algengasta orsök dauðsfalla í Bandaríkjunum og er því spáð að hún nái þriðja sætinu árið 2020. Hjartabilun er líka mjög algeng og kemur oft í kjölfar kransæðasjúkdóma, meðal fólks yfir 65 ára er hjartabilun orsök 20% af öllum sjúkrahúsinnlögnum.

Ég mun sem sé birta fyrstu niðurstöður um áhrif þeirrar þjálfunar sem sjúklingarnir hafa gengið í gegnum á sex vikna tímabili á Reykjalundi og hvet ég alla áhugasama til að mæta!

Tags:

« Older entries § Newer entries »