Afrek dagsins

  • Læra vel í verkefninu.
  • Hlaupa í Nauthólsvík.
  • Ryksuga og bóna gólfið heima.
  • Þrífa baðherbergið
  • Þvo tvær vélar og þurrka.
  • Borða góðan fiskrétt
  • Byrja að læra aftur eftir mat (mjög erfitt stundum)
  • Blogga um herlegheitin ;)

Tags: , ,

Ákvað að skella þessari skemmtilegu mynd af flugvallarhringnum mér og öðrum til gagns og gamans. Gaman að kortleggja leiðirnar sem maður er búinn að hlaupa og mæla vegalengdina með gervitunglum ;)

Tags: ,

Ákvað að skella mér í hlaupagallann í gær enda milt og fínt veður og ekki of mikið frost. Tók 20 mín skokk og síðan nokkra spretti með Hólmfríði Júlíusdóttur í botni í ipod-inum. Þetta var helvíti hressandi og maður alveg endurnærður.

Brynja Karítas fór svo að sofa um níu og þá hefði ég getað byrjað að læra á fullu en það var einhver leti í gangi.

Ég er upp á Reykjalundi að framkvæma öndunarmælingar og svo er það bara vinna í kvöld.

Tags:

Ég hef verið að mæta í fótbolta síðustu mánudaga með vinnufélögu mínum í Nimblegen. Það er ansi fínt að hreyfa sig svona þó maður sé nú í vægast sagt lélegu formi og getan í fótboltanum er ekki upp á marga fiska ;) En það er félagsskapurinn og hreyfining er góð.

Ég gef mér aldrei tíma í að hreyfa mig því verður að breyta fyrr en síðar.

Tags:

Slabb og meira slabb

Mikið andskoti er leiðinlegt hvað snjórinn stoppar stutt við, í gær var þessi fíni snjór yfir allri borginni, skafrenningur og skemmtilegheit en nú er bara slabb og meira slabb yfir.

Í gær fóru fjórir tímar í að setja saman glerskápinn sem við keyptum í IKEA, var að verða nett pirraður á þessu. Veit ekki hvað þetta er í mörgum bútum og hversu margar skrúfur þurfti að skrúfa :/ Ég var reyndar með augun á sjónvarpinu líka svo ekki flýtti það fyrir.

Meira síðar…best að fara að vinna.

Tags: ,

Jamm sumarið er víst ekki alveg komið þó að hitatölur síðustu vikna hafi bent til annars. Í dag er aftur á móti frost, snjór og norðangarri og kjörið veður til að sitja inni í hlýjunni og þvælast um á netinu Ekki það að ég hafi margt annað að gera, en það er alltaf gott að vera í fríi svona í miðri viku.

Í dag á góður vinur minn til margra ára afmæli. Þetta er fjörkálfurinn sjálfur og massatröllið Hannes Ingi. Vonandi að þú hafir það gott á afmælisdaginn vinur! Orti eina limru handa honum í tilefni dagsins.

Klár ert þú og kaldur,
kostulegur galdur,
gott er þitt skap
og vilt engum tap,
kominn á 22ja’ára aldur.

Tags: ,

Hiti er góður

Já maður kann sko vel að meta að vera í upphituðu húsi þegar maður hefur upplifað það að ofnarnir í húsinu taka allt í einu upp á því að steindrepast. Við vissum ekki hvað var í gangi í fyrradags morgun þegar húsið var alveg eins og snjóhús að innan, lág við að það kæmi móða út úr manni þegar maður andaði ;(

Núna er samt búið að laga þetta og húsið orðið hlýtt og gott að nýju :D . Nágranninn hafði víst skrúfað fyrir einhvern krana þegar hann var að taka og rífa allt út úr íbúðinni sinni sem lá upp til okkar og dreif sig svo bara til Raufarhafnar :/ En nú er a.m.k. orðið hlýtt aftur og allir ánægðir.

Ég er búinn að vera kvefaður eins og lufsa síðan á páskadag og er að skríða saman, þessir tveir köldu sólarhringar voru nú ekki að hjálpa til. Núna er samt best að fara að reyna að gera meira í erfðafræðinni því ég þarf að skila alveg böns af verkefnum næstu daga.

Tags: ,

Mætti í skólann á réttum tíma, svona til að gefa tóninn á nýju ári…mætti reyndar heldur snemma því að mér hafði yfirsést tilkynning sem kom á tilkynningarsíðunni í gær sem sagði að ónæmisfræðin sem átti að byrja klukkan átta í morgun byrjar ekki fyrr en í næstu viku ;(

Jæja ég hafði svo sem gott af því að mæta snemma, maður er búinn að liggja í leti fram undir hádegi síðustu daga. Ég tók meira að segja strætó í morgun svo tímalega var ég, þessir djöfuls strætóar eru verri en í Reykjavík ef eitthvað er…ganga bara á klukkutíma fresti og fara þessar líka svaðalegu krókaleiðir til að reyna hirða upp þessa tvo eða þrjá sem slysast til að villast inn í þá. Ég slapp svo sem vel á heimleiðinni því að mér var skutlað heim af Önnu Guðrúnu (Danke schöne Anna!!)

Annars er allt sama og venjulega, Kolla er á fullu í prófum og við fórum okkar vikulegu ferð í Bónus til að geta borðað eins og svín í heila viku ;) Við borðuðum pítsu áðan og bragðasit hún afbragðs vel þótt ég segi sjálfur frá ;)

Ég vona að þið hafið það gott á morgun í því sem þið eruð að gera…ég á að minsta kosti eftir að hafa það gott á morgun því ég er í fríi ;) Þarf reyndar að mæta til tansa þannig að það verður kannski ekki eins frábært og það gæti verið…vonandi verða ekki margar holur.

Tags: ,

Jámm ég dreif mig á bretti um eitt leytið og var alveg þar til það var lokað klukkan fimm. Hlíðarfjall var gott á köflum, en það er allt of lítill snjór og því mun skemmtilegra að renna sér á Dallvík eins og er. Ég gerðist svo djarfur að fara upp í stýtuna þó að það væri ekki búið að opna hana. Troðarinn var að troða fyrir skíðaæfingu og ég fékk far með honum eins hátt og hann fór, eða ca. að fjórða staur og labbaði síðan alveg upp undir klettana í suðurskálinni. Það var svaðalegt púður og enginn búinn að fara þarna í vetur þannig að ég var eins og kóngur í ríki mínu ;) Það var alveg magnað að sjá púðrið þyrlast í stórum strók aftur af mér, það var reyndar ekki alveg nógu gott skyggni þannig að maður fór varlega þar sem ég var einn á ferð og lét sig ekki vaða alveg á fullu bara af öryggi. Tók síðan smá æfingu í að renna mér með hægri fótinn á undir fjarkanum og var það ekki alveg að ganga en hefur þó aldrei gengið betur en nú. Síðan hitti ég Mumma, Anton, Tvíbbana og Börk og renndi mér nokkrum sinnum með þeim og fór í brunkeppni við þá.

Núna erum við Kolla hins vegar að borða lambalæri í Espilundi…skrifa því meira seinna.

Tags: , ,

Við gerðum okkur ferð til Dalvíkur í gær, ég, Anna Guðrún og Inga Lísa, þar sem við hittum Þóru á Sökku og Hannes Inga. Þetta var alveg mögnuð ferð enda nóg af snjó og ekki slæmt að komast í púðrið. Við bjuggum til stökkpall og alles ;)

Síðan fórum í Böggvis til Jóhönnu, Brynjólfs og kó…þar hittum við Brynjólf Mána sem var hinn sprækasti. Ég setti inn myndir úr ferðinni þó þær séu ekki margar og má finna undir myndir hér til vinstri.

Í dag er ég ekki alveg viss hvað ég ætla að gera, það spáir soltið hvössu veðri þannig að maður nennir ekki í fjallið, enda er bara opið í Fjarkanum, Hóla- og Hjallabraut. Mig dauðlangar að komast í Strýtuna þannig að maður ætti kannski bara að drífa sig og labba upp eftir sjálfur.

Tags: , ,

« Older entries § Newer entries »