Búinn með prófin

Já það mátti ekki seinna vera…kláraði erfðafræðina í morgun og er því kominn í frí til 12. janúar 2005

Já það verður gott að geta slappað aðeins af, Kolla greyið er að byrja í prófum og verður nóg að gera hjá henni á næstunni. Er ekki alveg búinn að ákveða hvað ég ætla að gera alla þessa daga, best væri að fara í fjallið og renna sér á bretti en það er svo hvasst núna að það var ekki opið, sjáum til á morgun. Ég fór með ömmu og afa smá rúnt áðan…fórum að reyna að skipta á síma sem þau fengu í jólagjöf en þeir áttu ekkert betra en þau fengu þannig að þau verða að notast við þetta. Afi vildi fá ljós á hann svo hann sæi betur hver væri að hringja og svona en það gekk ekki. Afi er annars alveg í essinu sínu með tölvuna eftir að Bragi lagaði hana og er bara orðinn eins og kókópuffs kynslóðin, alltaf á netinu. Býst við því að hann lesi þetta

Ég ætla að drífa mig í sturtu núna og fara svo að gera ýmislegt sem ég hef ætlað mér að gera lengi, eins og að líma skúffuna í fataskápunum, festa upp klukkuna í eldhúsinu og setja upp ljós í svefnherberginu.

Tags: ,

Gleðilegt ár!!

Gleðilegt nýtt ár!! Í gær vorum við Kolla í Espilundinum hjá, þar sem mamma, pabbi, Áki, Anna, Bragi, amma og afi voru með okkur. Við borðuðum alveg geggjaðan mat, humar og risahörpudisk með brauði og hvítlauksmjöri í forrétt, nautalundir og –fíle (akkúrat rétt steikt hjá mömmu, passlega blóðugt). Síðan var heimagerður ís með jarðaberjum. Seinna um kvöldið voru síðan dregnar fram tvær kökur þegar maður hélt að allt væri komið. Þetta var því alveg mögnuð veisla og át maður á sig gat að vanda. Síðan var maður bara rólegur heima þar sem það var einhver kvefpest í mér.

Núna er árið 2004 á enda og gaman að líta til baka og skoða hvað gerðist skemmtilegt á árinu.

Janúar: Ég eyddi áramótunum hjá Bjarna, pabba Kollu, og fjölskyldu og höfðum það gott, borðuðum samt hjá Brynju, mömmu Kollu. Ég strengdi áramótaheit: borða nammi á laugardögum, nota tannþráð daglega, hreyfa mig reglulega og taka mig á í skólanum. Ég held að ég hafi haldið áramótaheitin í mesta lagi 2 vikur og síðan voru bara teknar reglulegar syrpur í öllum heitunum reglulega. Ég var síðan mikið að keppa í handboltanum með Þreyttum, íslenska handboltalandsliðið var laglega rassskellt á EM í handbolta. Ég náði öllum prófunum í HÍ á minni fyrstu önn. Kalli Bjarni sigraði síðan í Idolinu. Við fluttum inn í nýtt rannsóknarhús í Vatnsmýrinni sem fékk síðar nafnið Askja.

Febrúar: Ég var á fullu í boltanum Þreyttum og í ræktinni. Þjóðverjar urðu Evrópumeistarar. Ég, Kolla, Brynja og Tóti fórum norður og urðum vitni að hræðilegu slysi í Borgarfirðinum þar sem tvær 14 stelpur létust. Blessuð sé minning þeirra. Við fengum svakalegar bollur á því bolludagurinn er víst í febrúar. KA vann bikarmeistaratitilinn á móti Fram.

Mars: Margt skemmtilegt gerðist mikil árshátíð var haldin hjá líffræðiskorinni og Kolla mín átti 19 ára afmæli. Hún fékk hjól frá mér og hefur hún notað það töluvert á árinu sem er gott mál

Apríl: Ég lærði og lærði til að vinna upp gamlar syndir, hélt páskana í Reykjavík og var duglegur að vinna í HörpuSjöfn á milli þess sem ég gluggaði í bækurnar. Síðan fékk ég golfsett frá Bjarna, pabba Kollu, og fórum við Björgvin aðeins að prufa það.

Maí: Ég náði öllum prófunum í háskólanum á einhvern furðulegan hátt og það gerði Kolla líka, hreinlega “hamsaði” öll prófin í FB. Við flugum síðan norður og sendum búslóðina með FMN. Fluttum inn í Espilund og fórum í gamla herbergið mitt. Ég byrjaði að vinna alveg á fullu en Kolla fékk enga vinnu í til að byrja með en fór svo að vinna bæði á FSA og á Gallup. Ég varð 21 árs og er því kominn á þrítugsaldurinn. Mamma varð einnig fimmtug og ákvað fjölskyldan að vera í stærðarslotti í Frakklandi, við árbakka Signu, í eina viku í júní að því tilefni.

Júní: Ég vann eins og vitlaus maður í HörpuSjöfn, við hittumst í gríðarlegu Partýi vinirnir hjá Jóni Víði þar sem ég kynntist bjórtrektinni Áshildi Helgadóttur. MA-ingar komu svo saman 16. júní, ég var 1árs stúdent og hitti félaga mína 4.U en mamma og pabbi voru 30 ára stúdentar og Anna og Áki voru 10 ára stúdentar. Það var því margt um manninn og mjög gaman. Ég fór til Frakklands með allri fjölskyldunni og var þar í viku. Ég, Kolla, Stefán, Ólína og Sigurlaug Rán fórum síðan í svaðalega heimferð, þar sem við þurftum að taka taxa í 200km þar sem að við misstum af lest og þ.a.l. af ferjunni sem átti að flytja okkur yfir til Englands. Þetta var vægast sagt langt ferðalag og var gott að koma heim á klakann.

Júlí: Í júli fluttum við Kolla svo inn í íbúðina hennar Laufeyjar og byrjuðum að leigja hana. Nokkuð erfiðlega gekk að koma draslinu upp þar sem íbúðin er á þriðju hæð og mjög brattir og þröngir stigar útiloka að stórir hlutir komist inn nema að þeir séu teknir í sundur og því frekar seinlegt að koma sér fyrir. Evrópukeppnin í fótbolta var haldin í Portúgal og spiluð Grikkir og heimamenn til úrslita og höfðu Grikkir betur. Ég lenti í bráðum lífsháska þegar að ég sló lóð frænku minnar, ég var að slá undir einum runnanum og þá koma tugir geitunga út úr honum og umkringdu mig og einn stakk mig í nefið.

Ágúst: Við vorum á Akureyri um Verslunarmannahelgina, Kolla var að vinna alla dagana og djammaði því ekki alveg jafn mikið og ég, þó að ég hafi ekki gert mikið af því. Ég vann og vann og Kolla líka þar til að við fórum í sumarfrí til Portúgal í tvær vikur. Við áttum góðar stundir þar og urðum kaffibrún og sæt. Fanney vinkona Kollu og Hákon kærasti hennar komu í seinni vikunni og vorum við talsvert með þeim.

September: Við komum heim frá Portúgal og Háskólinn á Akureyri byrjaður. Ég fór því beint í skólann en Kolla hélt áfram að vinna þar sem MA byrjaði ekki fyrr en um miðjan september. Farið var í Mývatnssveit að safna hitakærum örverum í hveri til að vinna með í líftæknilegri örverufræði.

Október: Mikið sprellmót var haldið á milli deilda í HA og var bara gaman að því. Við í auðlindadeildinni töpuðum naumlega fyrsta sætinu eftir að eitthvað ljósmyndamaraþon var dæmt okkur í óhag. Þóra og Sveinn eignuðust lítinn strák sem fékk seinna nafnið Brynjólfur. Auðlindadeildin flutti í nýtt rannsóknar- og nýsköpunarhús sem fékk nafnið Borgir. Ég fór í löndun hjá Eimskip og landaði 200 tonnum af fiskimjöli úr skipinu Kiel. Ég var eina viku fyrir sunnan, þar sem verkleg kennsla í erfðafræði fór fram í fyrirtækinu Prokaria. Kolla kom svo suður með vinkonum sínum og fékk ég far með þeim til Akureyrar, en þær höfðu brugðið sér suður til að fara á Iclandic Airwaves. Hóf æfingar á Bjargi í nýrri og glæsilegri aðstöðu. Fékk frítt fram að áramótum fyrir að hafa hjálpað aðeins eftir vinnu í sumar. Ég fór tvisvar á sjó sama daginn með skólanum, annars vegar að mæla hita, seltu og eðlismassa sjávar með haf- og veðurfræðinni og síðan að safna lífverum með sjávarlíftækninni.

Nóvember: Skólinn og Bjarg og meiri skóli og meira Bjarg.

Desember: Fór í 5 próf, skilaði auði í einu og fer í það 5. janúar. Gekk bara nokkuð vel, búinn að ná öllu og var hæstur í haf- og veðurfræði Vann í ríkinu í jólafríinu með Braga og hef verið að læra líka.

Jæja þetta er svona stiklað á stóru á árinu 2004, reyndar svolítið nákvæmur á köflum. Vonandi að árið 2005 verði jafn viðburðaríkt, Kolla mín verður a.m.k. tvítug á árinu og útskrifast væntanlega úr MA og síðan flytjum við líklega suður…annað er óvíst og framtíðin mun bera það í skauti sér.

Tags: ,

Ég og Birkir háður mikla og drengilega keppni á Bjargi áðan, staðið hefur undirbúningur síðast liðinn mánuðinn, aðallega með því að lesa okkur til í bókum. Ég í lífeðlisfræði og sjá hvernig líkaminn tekur á því og Birkir gluggað í verkfræðibækur, pælt í burðarþoli og eðlisfræði hvernig á að vippa stönginni upp. Það mátti ekki miklu muna í þessari keppni. Reglur voru þær að mismunur á kílófjölda í bekkpressu og mismunur í fituprósentu margfaldað með tveimur var borið saman. Hér koma tölurnar:

Bekkpressa: Birkir 100kg og Egill 75kg –> mismunur 100-75 = 25

Fituprósenta Birkir 19,2% og Egill 7,4% –> 2 x mismunur 2 x (19,2-7,4) = 2 x 11,8 = 23,6

Þetta endaði því 25 vs. 23,6 Birki í hag og er hann vel að sigrinum kominn. Það máti þó ekki miklu muna, ég var næstum með 80kg og þá hefði munurinn bara verið 20 í bekknum og ég hefði unnið en Birkir lyfit líka 115kg í nóvember þegar við hittumst síðast í upphitun fyrir þessa keppni og því hefði þetta líka getað verið rúst hjá honum. Það var allavega gaman að þessu og ætti að gera að hefð um hver jól eins og Birkir komst að orði. Spurning hvort við keppum í sömu grein næstu jól eða finnum upp á einhverju nýju?

Tags: , ,

Gleðileg jól

Þetta er búið að vera aldeilis góður dagur, mikið borðað og fullt af pökkum. Er kominn upp í rúm og er að slappa af, Brynja og Kolla eru að spila frammi en ég nenni engu enda vaknaði ég klukkan 8 og er orðinn frekar þreyttur. Við Kolla fengum eftirtaldar jólagjafir:

Tvær pönnur
Pening
Skrautmuni
Mynd
Bækur
Samlokugrill
Vöflujárn
Timbur snakk skál
Jólaskraut
Þrífót undir myndavélina
Jakka
Vettlinga
Boli
og eitthvað fleira sem Kolla veit hvað er

Ég þakka kærlega fyrir mig þetta var alveg frábært og er nokkuð ljóst að við eigum gjafaóða ættingja Jæja þaö er best að fara aö skoða bækurnar sem ég fékk og fara svo að sofa.

Gleöileg jól allir saman og sofiði vel!!

Tags:

Ég held að það sé allt að verða komið og jólin mega bara fara að koma. Ég er búinn að gera allt nema aðalatriðið en það er að kaupa jólagjöf handa elskunni minni. Við höfum þó komist að þeirri niðurstöðu að það sé best að hún velji bara gjöfina sjálf á morgun þar sem hún er með lausann tíma…ekki mjög skemmtilegt en kannski betra þar sem hún fær þá nákvæmlega það sem hana langar í og þarf ekki að skipta því ef ég kaupi eitthvað vitlaust.

Á morgun er Þorláksmessa og við bræðurnir sjáum ekki fram á að það verði nein skata í ár þar sem við erum að vinna og það gengur eitthvað brösulega að fá frí til að fara að borða hana. Við verðum því bara að bíta í það súra…nema eitthvað sérstakt komi upp á og þetta skötumál leysist. Annars er ég að fara að vinna frá 10-22 á morgun og verður það örugglega dáltið erfitt en maður hefur svo sem afrekað annað eins.

Kominn með út úr þremur prófum og er búinn að ná þeim öllum. Það þarf því bara að ná einu enn og þá eru námslánin trygg Það hlýtur að reddast hjá mér. Jamm það er ekki mikið meira að frétta nema að það kom þetta leiðindaveður í dag og er víst spáin ekki góð, bara stórhríð og læti. það verður fínt að vera heima og horfa á veðrið og er stefnan að liggja upp í rúmi og breiða yfir haus ef að jóladagur mun bjóða upp á þessa spá.

Tags:

Jólin nálgast…

Ég er farinn að komast í mikið jólaskap, er að verða búinn með allt sem ég þarf að gera. Þó eru nokkir hlutir eftir:
1. Kaupa gjöf handa Kollu minni
2. Klára jólakortin
3. Kaupa jólatré
4. Kaupa gjöf handa ömmu og afa og mömmu og pabba
5. Laga aðeins til

Annað að frétta er að ég var að vinna í dag og var Bragi mættur í vinnu í dag með mér. Það var afskaplega lítið að gera…Akureyringar átta sig örugglega ekki fyrr á Þorláksmessu að þeir eiga eftir að kaupa jólavínið og koma allir á sama tíma og kvarta yfir því að það sé alltaf allt of mikið að gera í ríkinu…þannig að komið bara fyrir hádegi á morgun eða hinn og þið losnið við traffíkina Þá höfum við líka aðeins meira að gera og dagurinn líður hraðar.

Jæja ætla að klára að skrifa jólakortin núna.

Tags:

Ég átti ágætis djamm með fullt af fólki, byrjaði á því að fara á Ali og taka nokkra leiki í púl og pýlukasti með Hannes, Unu og Ragnheiði vinkonu hennar. Lánið lék ekki beint við mig þar sem ég var saltaður 4-0 í poolinu og 2-1 í pýlukastinu…Hannes var í gríðarlegu formi og hefur sjaldan sést annað eins norðan heiða…ég gæti komið með ótal afsakanir en held ég sleppi þeim bara, gat bara ekki blautan í púlinu en pýlukastið var grýðarlega spennandi

Eftir þessa rassskellingu fórum við heim til Hannesar, þar sem ég sötraði einhvern jólabjór…og fannst hann vondur…drakk ekki nema 3 bjóra í gær og eina vodka blöndu og var bara temmilegur…þurfit ekki mikið sökum þreytu og lítillar frammistöðu á þessu sviði í langan tíma, sem er náttúrulega bara gott. Guðrún Soffía sótti mig svo til Hannesar og var haldið í Sjallann. Í Sjalanum var alveg stappað af fólki…frekar leiðinlegt að vera á gólfinu þegar það eru svona margir því ef einn hreyfir sig þá þurrfa allir að hreyfa sig í sömu átt og við þetta dettur fólk og meiðir sig. Slíkt kom einmitt fyrir í gær, Kolla steinlá og ég datt ofan á hana…ekki mjög þægilegt fyrir Kollu mína og var hún ekki mjög sátt við þetta fall þar sem það var stigið ofan á puttan á henni og sparkað í hausinn. Hún janfaði sig svo nokkuð vel og þá var sprellað fram undir hálffjögur…þá var maður kominn með alveg nóg af þessu margmenni þó svo að maður hafi sungið sig hásan með Sálinni. Maður hitti líka rosalega marga og spjallaði meiri hlutann af tímanum. Þetta var því í heildina litið bara ágætis djamm og maður ekkert timbraður í dag

Kolla er núna í vinnunni og ég er að hugsa um að fara að skirfa ritgerð.

Tags: ,

Vinna og meiri vinna…

Maður er ekki fyrr búin að klára prófin að maður fer og hellir sér í jólaösina á vinnumarkaðnum. Ég var að vinna frá 10-19 í gær og voru þó nokkrir sem komu við í vínbúðinni að kaupa sér veigar…það er samt ljóst að álagið á eftir að vera meira þegar nær dregur að jólum.

Vinnuplanið hjá mér er svona:

Laugardagurinn 18. des. (í dag) – 10:45-16:00
Sunnudagurinn 19. des. – FRÍ
Mánudagurinn 20. des. – 10:öö-18:00
Þriðjudagurinn 21. des. – 10:00-18:00
Miðvikudagurinn 22. des. – 10:00-19:00
Fimmtudagurinn 23. des. (Þoláksmessa) – 10:00-22:00
Föstudagurinn 24. des. (Aðfangadagur) – 8:45 – 12:00
Laugardagurinn 25. des. (Jóladagur) – FRÍ
Sunnudagurinn 26. des. (annar í jólum) – FRÍ
Mánudagurinn 27. des. – 10:00-18:00
Þriðjudagurinn 28. des. – 10:00-18:00
Miðvikudagurinn 29. des. – 10:00-18:00
Fimmtudagurinn 30. des. – 10:00-20:00
Föstudagurinn 31. des. – 8:45-13:00

Þetta verður stíft en okkur Kollu vantar pening og því dugar ekkert að kvarta undan þessu. Ég býst ekki við því að vinna eftir áramót þar sem ég þarf að læra undir próf í erfðafræði. En nú þarf ég að drífa mig í vinnuna ;)

Tags:

Tók síðasta prófið í bili í morgun (fer í erfðafræðina 5. jan) með svona skítsæmilegum árangri miðað við að vera ólesinn. Er að fara að vinna á morgun rétt fyrir 10 þannig að maður byrjar ekki bara að liggja í leti um leið og maður kemst í jólafrí…neinei það þýðir ekkert! Ég fór með Kollu áðan í búðir og redduðum við 5 jólagjöfum …ekki slæmt það!

Núna er ég hins vega að fara að leggja mig í klukkutíma því ég er vægast sagt þreyttur svaf svona tvo tíma í nótt frekar en þrjá og er mikið að spá í að fara snemma að sofa í kvöld.

Meiri fréttir síðar

Tags:

Já nú þarf maður ekki að kvíða allra þeirra útgjalda sem fylgja jólunum því það verður ekki bara útstreymi úr peninga buddunni heldur innstreymi eftir hátíðarnar. Það verður fínt að læra í sambland við vinnu og jólaboð…maður hefur gott af því það er eitt sem er víst!

Annars er ég búin að laga alla þá tæknilegu örðugleika sem fylgdi því að skipta yfir í apple og hef ég ekki rekist á notendavænna stýrikerfi…enda ekki prufað neitt nema windows. Það eina sem hefur komið fyrir mig var að allar skrárnar sem ég flutti yfir úr gömlu lifebook urðu að “read only” og því gat ég ekki í fyrstu opnað gamlar skrár, breytt þeim og vistað þær aftur. Með því að breyta þeim öllum í “read and write” á svona 5 sekúndum get ég það. Þetta hefði aldrei gerst svona hratt í PC, hefði örugglega þurft að breyta hverri skrá fryrir sig og verið heila eilífð að því. Síðan passa ég mig á því að senda windows friendly póst og þá er það upptalið sem ég hef lent í vandræðum með í apple.

Úrslit könnunar er komin í ljós og niðurstöðurnar afgerandi, það ætla flestir á sem skoða þessa síðu að fara á Gagga rejúníónið og verður það gaman að sjá gamla félaga sem maður hefur ekki hitt í 5ár.

Á að mæta á 5ára “rejúníón” Gaggans?

Já að sjálfsögðu!! 42%
já ég held það?? 8%
Ég veit ekki 4%
Nei örugglega ekki 17%
Á ekki við um mig 29%

24 greiddu atkvæði…þeir sem lesa þetta og greiddu sitt atkvæði nokkrum sinnum til að skekkja niðurstöður eða bara kanna stöðuna þá vil ég benda ykkur á að það er hægt að kanna úrslit könnunar án þess að greiða fleiri atkvæði en eitt með því að ýta á “sjá niðurstöður” takkann sem er undir könnuninni. Þetta kerfi er gallað að því leyti að maður getur greitt endalaus atkvæði og þá er ekkert að marka könnunina.

Ég er því búinn að skella inn nýrri könnun og hver veit nema að maður skelli inn myndum þegar maður kemst í jólafrí. Jæja best að halda áfram að læra undir síðasta prófið í bili sem er á morgun klukkan 9…tek erfðafræðina 5. janúar.

Tags: ,

« Older entries § Newer entries »