Gleðilegt nýtt ár!! Í gær vorum við Kolla í Espilundinum hjá, þar sem mamma, pabbi, Áki, Anna, Bragi, amma og afi voru með okkur. Við borðuðum alveg geggjaðan mat, humar og risahörpudisk með brauði og hvítlauksmjöri í forrétt, nautalundir og –fíle (akkúrat rétt steikt hjá mömmu, passlega blóðugt). Síðan var heimagerður ís með jarðaberjum. Seinna um kvöldið voru síðan dregnar fram tvær kökur þegar maður hélt að allt væri komið. Þetta var því alveg mögnuð veisla og át maður á sig gat að vanda. Síðan var maður bara rólegur heima þar sem það var einhver kvefpest í mér.
Núna er árið 2004 á enda og gaman að líta til baka og skoða hvað gerðist skemmtilegt á árinu.
Janúar: Ég eyddi áramótunum hjá Bjarna, pabba Kollu, og fjölskyldu og höfðum það gott, borðuðum samt hjá Brynju, mömmu Kollu. Ég strengdi áramótaheit: borða nammi á laugardögum, nota tannþráð daglega, hreyfa mig reglulega og taka mig á í skólanum. Ég held að ég hafi haldið áramótaheitin í mesta lagi 2 vikur og síðan voru bara teknar reglulegar syrpur í öllum heitunum reglulega. Ég var síðan mikið að keppa í handboltanum með Þreyttum, íslenska handboltalandsliðið var laglega rassskellt á EM í handbolta. Ég náði öllum prófunum í HÍ á minni fyrstu önn. Kalli Bjarni sigraði síðan í Idolinu. Við fluttum inn í nýtt rannsóknarhús í Vatnsmýrinni sem fékk síðar nafnið Askja.
Febrúar: Ég var á fullu í boltanum Þreyttum og í ræktinni. Þjóðverjar urðu Evrópumeistarar. Ég, Kolla, Brynja og Tóti fórum norður og urðum vitni að hræðilegu slysi í Borgarfirðinum þar sem tvær 14 stelpur létust. Blessuð sé minning þeirra. Við fengum svakalegar bollur á því bolludagurinn er víst í febrúar. KA vann bikarmeistaratitilinn á móti Fram.
Mars: Margt skemmtilegt gerðist mikil árshátíð var haldin hjá líffræðiskorinni og Kolla mín átti 19 ára afmæli. Hún fékk hjól frá mér og hefur hún notað það töluvert á árinu sem er gott mál
Apríl: Ég lærði og lærði til að vinna upp gamlar syndir, hélt páskana í Reykjavík og var duglegur að vinna í HörpuSjöfn á milli þess sem ég gluggaði í bækurnar. Síðan fékk ég golfsett frá Bjarna, pabba Kollu, og fórum við Björgvin aðeins að prufa það.
Maí: Ég náði öllum prófunum í háskólanum á einhvern furðulegan hátt og það gerði Kolla líka, hreinlega “hamsaði” öll prófin í FB. Við flugum síðan norður og sendum búslóðina með FMN. Fluttum inn í Espilund og fórum í gamla herbergið mitt. Ég byrjaði að vinna alveg á fullu en Kolla fékk enga vinnu í til að byrja með en fór svo að vinna bæði á FSA og á Gallup. Ég varð 21 árs og er því kominn á þrítugsaldurinn. Mamma varð einnig fimmtug og ákvað fjölskyldan að vera í stærðarslotti í Frakklandi, við árbakka Signu, í eina viku í júní að því tilefni.
Júní: Ég vann eins og vitlaus maður í HörpuSjöfn, við hittumst í gríðarlegu Partýi vinirnir hjá Jóni Víði þar sem ég kynntist bjórtrektinni Áshildi Helgadóttur. MA-ingar komu svo saman 16. júní, ég var 1árs stúdent og hitti félaga mína 4.U en mamma og pabbi voru 30 ára stúdentar og Anna og Áki voru 10 ára stúdentar. Það var því margt um manninn og mjög gaman. Ég fór til Frakklands með allri fjölskyldunni og var þar í viku. Ég, Kolla, Stefán, Ólína og Sigurlaug Rán fórum síðan í svaðalega heimferð, þar sem við þurftum að taka taxa í 200km þar sem að við misstum af lest og þ.a.l. af ferjunni sem átti að flytja okkur yfir til Englands. Þetta var vægast sagt langt ferðalag og var gott að koma heim á klakann.
Júlí: Í júli fluttum við Kolla svo inn í íbúðina hennar Laufeyjar og byrjuðum að leigja hana. Nokkuð erfiðlega gekk að koma draslinu upp þar sem íbúðin er á þriðju hæð og mjög brattir og þröngir stigar útiloka að stórir hlutir komist inn nema að þeir séu teknir í sundur og því frekar seinlegt að koma sér fyrir. Evrópukeppnin í fótbolta var haldin í Portúgal og spiluð Grikkir og heimamenn til úrslita og höfðu Grikkir betur. Ég lenti í bráðum lífsháska þegar að ég sló lóð frænku minnar, ég var að slá undir einum runnanum og þá koma tugir geitunga út úr honum og umkringdu mig og einn stakk mig í nefið.
Ágúst: Við vorum á Akureyri um Verslunarmannahelgina, Kolla var að vinna alla dagana og djammaði því ekki alveg jafn mikið og ég, þó að ég hafi ekki gert mikið af því. Ég vann og vann og Kolla líka þar til að við fórum í sumarfrí til Portúgal í tvær vikur. Við áttum góðar stundir þar og urðum kaffibrún og sæt. Fanney vinkona Kollu og Hákon kærasti hennar komu í seinni vikunni og vorum við talsvert með þeim.
September: Við komum heim frá Portúgal og Háskólinn á Akureyri byrjaður. Ég fór því beint í skólann en Kolla hélt áfram að vinna þar sem MA byrjaði ekki fyrr en um miðjan september. Farið var í Mývatnssveit að safna hitakærum örverum í hveri til að vinna með í líftæknilegri örverufræði.
Október: Mikið sprellmót var haldið á milli deilda í HA og var bara gaman að því. Við í auðlindadeildinni töpuðum naumlega fyrsta sætinu eftir að eitthvað ljósmyndamaraþon var dæmt okkur í óhag. Þóra og Sveinn eignuðust lítinn strák sem fékk seinna nafnið Brynjólfur. Auðlindadeildin flutti í nýtt rannsóknar- og nýsköpunarhús sem fékk nafnið Borgir. Ég fór í löndun hjá Eimskip og landaði 200 tonnum af fiskimjöli úr skipinu Kiel. Ég var eina viku fyrir sunnan, þar sem verkleg kennsla í erfðafræði fór fram í fyrirtækinu Prokaria. Kolla kom svo suður með vinkonum sínum og fékk ég far með þeim til Akureyrar, en þær höfðu brugðið sér suður til að fara á Iclandic Airwaves. Hóf æfingar á Bjargi í nýrri og glæsilegri aðstöðu. Fékk frítt fram að áramótum fyrir að hafa hjálpað aðeins eftir vinnu í sumar. Ég fór tvisvar á sjó sama daginn með skólanum, annars vegar að mæla hita, seltu og eðlismassa sjávar með haf- og veðurfræðinni og síðan að safna lífverum með sjávarlíftækninni.
Nóvember: Skólinn og Bjarg og meiri skóli og meira Bjarg.
Desember: Fór í 5 próf, skilaði auði í einu og fer í það 5. janúar. Gekk bara nokkuð vel, búinn að ná öllu og var hæstur í haf- og veðurfræði Vann í ríkinu í jólafríinu með Braga og hef verið að læra líka.
Jæja þetta er svona stiklað á stóru á árinu 2004, reyndar svolítið nákvæmur á köflum. Vonandi að árið 2005 verði jafn viðburðaríkt, Kolla mín verður a.m.k. tvítug á árinu og útskrifast væntanlega úr MA og síðan flytjum við líklega suður…annað er óvíst og framtíðin mun bera það í skauti sér.
