» Árshátíð

Helgin var fín
Við líffræðingarnir á 1. ári hittumst í parýi á Arnanesinu fyrir árshátíðina á laugardaginn. Það var bara nokkuð nett því við Ívar Þór fengum að koma nálægt hinni frægu HAXA-bollu sem inniheldur venjulega talvert magn af spíra og síðan hinu og þessu til að reyna að fela spírabragðið. Þetta leit semsagt vel út til að byja með en síðan fengu stelpurnar að koma of mikið með hendurnar í þetta. Spírinn er nítíu og eitthvað prósent þegar við fengum hann. Okkur var ráðlagt að þynna hann til helminga á móti vatni og síðan örlítið meira með ávöxtum og ávaxtasöfum. Við vorum búnir að gera svona helvíti magnaða uppskrift sem var svona 20% að styrkleika en þá var gjörsamlega valtað yfir okkur. Þær bætu a.m.k. tvöföldu ef ekki þreföldu magni af eplasafa útí. Við fórum að gráta í hljóði að horfa á þetta…en það þýðir ekkert að fara að gráta á svona stundu við ákváðum að gera okkur ferð út í ÁTVR og finna okkur vodka til að stykja bolluna án þess að nokkur tæki eftir. Í stuttu máli gekk þetta ekki því að það var búið að loka í Hafnafirðinum kl. 16 á laugardegi og við urðum alveg öskuillir útí þessa andskota sem stjórna því.

Þetta var svo sem í lagi því við fórum að drekka bolluna af miklum krafti þegar við komum aftur í partýið og vorum menn svo ákveðnir að láta bolluna virka að það voru ófá glösin sem runnu niður á mettíma. Hefði verið malt í bolluskálinni hefðum við fundið á okkur slíkt var magnið af bollu sem var innbyrgt.

Við fórum síðan með rútu niður í bæ en tókum þó 3. árið uppí á leiðinni. Ég var að sjálfsögðu kominn í gírinn á þessari stundu og kominn með strengi í brosvöðvana því þeir herpast alveg rosalega þegar alkóhólið nær svona tökum á manni. Kvöldið var mjög fínt á Versölum við fengum góðan mat og plötusnúðarnir voru fínir þetta kvöld.

Birkir og Björgvin komu svo náðu í mig og reyndu að gefa hóstasaft af barnum því hálsinn var eitthvað farinn að angra mig…við fórum síðan á Pravda og hittum gamlan og góðan vin Jón Víði. Eftir það fór ég heim því hálsinn var orðinn helvíti slæmur og hóstasaftin hætt að virka.

Ég mætti síðan í vinnu klukkan eitt á sunnudaginn og var nokkuð góður bara…engin þynnka sem náði tökum á mér þó ég hafi eflaust angað vel. Það er samt allt í lagi því það er svo mikil málningarlykt inn í svona búðum að það finnur enginn muninn. Í dag er heilsan síðan ekki alveg upp á sitt besta og ég fór ekki í skólann vegna hálsbólgu og aumingjaskaps.

Ætla að fara að elda pítsu með Kollu….blessss

Árshátíð í kvöld
Það verður glatt á hjalla í kvöld, fer á árshátíð líffræðiskorarinnar sem verður haldin í Versölum við Hallvarðarstíg…hvar sem hann er nú staddur?? Þetta verður vonandi fínt kvöld, við á 1. árinu byrjum á því að fara í partý til hennar Guðbjargar sem á heima í Garðabæ og síðan mun rúta sækja okkur þangað og keyra okkur í Versali. Það verður þriggja rétta máltíð og tónlist með matnum og ég veit ekki hvað og hvað. Maður er búinn að spara sig og peningabudduna lengi og engu eytt í djamm og fyllerí en það gæti eitthvað breyst í kvöld   Heilsan er reyndar ekki alveg upp á það besta eins og er, en vonandi að maður komist í gegnum helgina án þess að þurfa að leggjast í veikindi. Þarf helst að mæta í vinnu á morgun líka og síðan get ég safnað kröftum fyrir komandi viku í skólanum. En ég segi bara eins og Birkir félagi GÆS (get ætla skal) og þá hlýtur maður að standa uppi fullur (a.m.k. í kvöld   ) af orku á mánudaginn og fer að taka sig á í skólanum. Það er orðið allt of stutt í prófin og maður ekki almennilega byrjaður að lesa.

Þreyttir voru að spila síðasta fimmtudag við Víking 2. Við svöruðum fyrir okkur á heimavelli og unnum þá tiltölulega létt. Kallinn setti 7 slummur og hefur ekki skorað svona mikið í mörg ár örugglega og voru þau í öllum regnbogans litum og ekki furða þó maður sé kallaður kamelljónið á síðu Þreyttara.

Ég er að lesa efnafræði með öðru auganu hérna á milli þess sem ég sel viðskiptavinum magnaða liti á húsin þeirra. Ætla að halda aðeins áfram, á bara klukkutíma eftir af þessum vinnudegi. Yfir og út………