Já þessi dagur var greinilega ekki sá besti hjá mér, því að þó að ég endaði síðasta póst að dagurinn hefði verið ágætur síðan ég komst loksins í skólann þá stóð sá góði hluti ekki lengi.
Ég hélt af stað Norður með Kollu, Brynju mömmu hennar og Tóta sem er kærasti mömmu Kollu, um hálf þrjú leytið. Við vorum kominn heim til Akureyrar um svona hálftólf leytið og vorum því níu tíma á leiðinni. Við lentum í hræðilegum hlutum á leiðinni því við komum að bílslysi í Borgarfirðinum þar sem tvær 14 ára stelpur létust. Blessuð sé minnig þeirra.
Þetta slys gerðist á flughálum kafla á milli Baulu og Hreðavatnsskála. Við komum mjög snemma að slysinu og var fólkið sem kom á undan okkur rétt byrjað að átta sig á aðstæðum og ekki búið að hringja í neyðarlínuna. Tóti hringdi því og bað strax um hjálp en allt kom fyrir ekki, höggið af árekstrinum var svo þungt að stelpurnar létust þó svo að allt væri reynt að gera fyrir þær. Þetta var alveg hörmulegt slys og vil ég biðja alla um að sína varkárni í umferðinni, keyra eftir aðstæðum því mínúturnar skipta ekki svona miklu máli. Það er alveg ótrúlega stutt á milli lífs og dauða og veltir maður því óneitanlega fyrir sér hversu nálægur þessi árekstur var manni. Þetta hefði alveg eins getað verið við.
Eftir þriggja tíma stopp vegna þessa slyss þá var vegurinn opnaður að nýju og við héldum áfram, ömurlegt veður var á leiðinni. Einna verst var það á heiðunum þar sem rétt sást í næstu stykur og þurftum við því að keyra á 20 km hraða á smá kafla þar sem hríðin var dimmust. Fyrir rest komumst við þó til Akureyrar…ég fékk mér slátur sem amma hafði sent mér og stöppu og fór beint að sofa. Þessi dagur var alveg rosalegur og tók mikið á mig.
Hérna á Akureyri er fallegt veður í dag, þó er búið að taka upp næstum allan snjóinn sem kom hér fyrir tveimur vikum þannig að það verður lítið farið á bretti í þessari ferð. Ég er búinn að fara í bollukaffi til ömmu…þær klikka ekki hjá henni, raðaði í mig fjórum stykkjum áðan beint eftir hádegismatinn…hefði borðað meira af þeim ef ég hefði ekki verið búinn að slavra í mig KEA skyri með sláturssneið
Það spurning að fara að lesa smá núna í skólabókunum og fara svo í Sjallann í kvöld á Skímó….
