Ég var í fríi í skólanum í dag, því allir kennararnir voru að reyna að koma sér fyrir í nýja rannsóknarhúsinu. Ég á að mæta í nýja rannsóknarhúsið á morgun klukkan 10. Það verður fróðlegt að sjá hvort maður rati í rétta stofu…það hlýtur að ganga vel (legg bara af stað svona 8 ). En ég er lítið búinn að brasa í dag annað en að laga til í námsgögnunum og prenta út. Það er enn rok og rigning, pollurinn var brúnn og blár í morgun en núna er hann bara brúnn. Við Kolla borðuðum steiktan kjötbúðing og stöppu…ótrúlegt hvað einfaldur réttur getur farið úrskeiðis…þessi réttur getur a.m.k. bara batnað eftir þessa matseld. Ég sem hélt að það væri auðvelt að búa til stöppu…búinn að horfa á pabba búa hana til marg oft…kallinn leinir á sér.
Ég fór í smá göngutúr áðan fyrir matinn, það er ekkert meira hressandi en að fara í labbitúr í rigningu og roki…það léttir alveg yfir manni, sérstaklega ef maður er búinn að sitja við tölvuna allan daginn Best að fara að lesa pínu og fara síðan í háttinn, góða nótt!!
