Geitungar

You are currently browsing articles tagged Geitungar.

Ég er enn á lífi!

Já maður er ekkert búinn skrifa á þetta blogg í háa herrans tíð og á örugglega ekki eftir að breytast fyrr en í haust þegar skólinn byrjar. Ég er bara búinn að hafa það gott í Spítalavegi 1, varð ekkert var við það þegar maður með veiðiriffil gekk um hverfið mitt í miklu hugarangri, var í bíó á irobot með Kollu…alveg mögnuð mynd. En það er ekki að spyrja að því maður er ekki lengi að koma sér í “gettóið” aftur. Breiðholtið var bara upphitun, rifflar sem eru til þess ætlaðir að fella hreindýr er nánast dagleg sýn hérna við Spítalaveginn og menn kalla ekki allt ömmu sína. Verslunarmannahelgin verður ljúf og góð á Akureyri, ég er í fríi laugardag, sunnudag og mánudag en Kolla er að vinna alla dagana svo að það verður sjálfsagt ekki farið neitt nema þá í smá partý og í Sjallann. Í dag er gott veður hérna á Akureyri, bara dáltið hvasst…moldrok í morgun en ég held að það sé hætt núna. Ég lenti í bráðum lífsháska núna á síðasta laugardag. Þegar ég er við það að klára að slá lóðina hjá frænku minni, sem er út í Noregi núna næstu þrjár vikurnar, sé ég hvernig einn runninn vex vel inn á lóðina. Ég ræðst að sjálfsögðu til atlögu og slæ allt grasið undir greinunum á honum með miklum tilburðum því ekki vildi ég slá í runnan sjálfann. Mikið gekk sem sé á…en þá allt í einu finn ég þennan agalega sting í nefið, og hugsa með mér að núna hafi ég sogið brenninetlu upp í nefið eða einhvern fjandann því þetta var rosalegur stingur. Ég hnussa og hnussa og snýti mér af alefli, en þá sé ég að það er allt morandi í geitungum í kringum mig og ég tek til fótana. Þetta var þá geitungur sem stakk mig í nefið eftir allt saman Ég tók mér smá pásu frá slættinum en síðan kláraði ég verkið, greinilega ekki ofnæmur fyrir geitunga stungum því að ég var rétt aðeins aumur í nefinu og síðan var það búið. Maður hefur heyrt þvílíkar sögur um fólk sem hefur bólgnað til helvítis af þessum völdum þannig að maður var óneitalega verulega smeykur þegar þessi sviði kom í fyrstu í nefið. En það fór nú fljótt og ég er enn á lífi…fleiri sögur að sinni, hafið það gott um verslunarmannahelgina!

Tags: , ,