HA

You are currently browsing articles tagged HA.

Þóra Gunnsteindóttir og Sveinn Brynjólfsson voru að eignast lítinn dreng…ég sendi þeim innilegar hamingjuóskir og vona að þau hafi það sem allra best!
Nú er ég loksins vaknaður á sunnudagsmorgni og ætla að gera mig líklegan til að læra í dag…vonandi að það gangi nú eftir. Ég er í fríi í skólanum á morgun því það er verið að taka nýja rannsóknarhúsið í notkun hérna fyrir norðan og því á ég ekki von á að flutningar verði yfirstaðnir. Það kveðja víst allir Glerárgötu með miklum söknuði, sjálfum fannst mér ágætt að vera þar í þennan mánuð sem ég er búinn að vera í HA….en þetta verður öruggleg helvíti gott í nýja húsinu. Vonandi að húsið sé aðeins lengra á veg komið heldur en Askja (nýja húsið í vatnsmýrinni hjá HÍ)…því það var varla hægt að vera þar inni að læra vegna látanna í iðnaðarmönnunum.

Jæja best að fara að standa við stóru orðin….læra og læra og læra

Tags:

Sprellmót HA

Ég tók þátt í stórskemmtilegum degi í gær þar sem allar deildir háskólans kepptu í hinum ýmsu greinum. Byrjað var að keppa niður á torgi inn í miðbæ, síðan lá leiðin að umferðarmiðstöðinni þar sem rútur biðu okkar. Ekið var út úr bænum og stoppað á Þelamörk þar sem allir fóru úr. Keppt var í hinum ýmsu greinum, þ.á.m. fótbolta þar sem keppendur voru afmarkarðir inn í reiti líkt og um fótboltaspil væri að ræða, einnig var keppt í boðhlaupum, reiptogi og kappáti. Mín deild, auðlindadeildin var í fremstu röð í öllum greinum, við unnum reiptogið með miklum látum og kappátið einnig. Við viljum einnig meina að við höfum sigrað boðhlaupin en það má deila um það…hóst…svindlarar..hóst! Eftir keppnina var síðan haldið til baka í bæinn og fylgdi ég tvíbbunum Birgi og Baldvini ásamt Brynjari vini þeirra. Við spiluðum síðan Risk – alveg magnað spil!! Við fórum síðan og fengum okkur að borða í Glerárgötu og síðan lá leiðin í Sjallann. Í Sjallanum var stiginn trylltur dans og kom ég heim um rúmlega fjögur leitið. Þetta var sem sagt alveg magnaður dagur í gær…en núna verður maður aðeins að fara að laga til og fara að læra. Ég komst að því í gær að Romm + kók + sítróna + klakkar = fínasti drykkur. Jæja ég vona að þið eigið góða helgi og KA muni laga stöðu sína í bikarleiknum sem er vægast sagt slæm eins og staðan er núna!!

Tags: ,

Ég vildi bara láta vita af því að ég er á lífi, það var magnað á Portúgal með Kollu minni. Það er núna vika síðan við komum heim og líður okkur mjög vel í Spítalaveginum. Kolla byrjar svo í MA á morgun. Ég ætla að reyna að vera duglegur að skrifa hérna inn í vetur til að láta vita af mér. Við erum að fá ADSL í Spítalaveginn seinna í vikunni, þannig að það ætti ekki að vanta fréttirnar af Norðurlandinu á veraldarvefnum í vetur.

Tags: ,

Já það eru orðnir nokkrir dagar síðan ég skrifaði síðast, maður er búinn að vera gera alveg slatta, aðallega að læra og vinna.

Búinn að vera vinna tvær síðustu helgar og því búinn að reyna vel í vikunni, því maður nennir yfirleitt ekki að læra eftir vinnu. Hún Kolla mín var 19 ára núna síðasta laugardag, ég gaf henni hjól og síðan fékk hún líka síma…segið svo að það sé ekkert merkilegt við það að vera 19 ára ha!! Við getum núna farið að hjóla saman þegar snjórinn sem kom núna um helgina er farinn…ekki langt í það, því borgin er eitt stórt slabb í dag.

Ég er kominn í bókhlöðuna og er að fara að gera örverufræðivinnubók sem ég þarf að skila fyrir páska…síðan fer ég í síðustu efnafræðitilraunina í dag á þessum vetri og fæ glertryggingargjaldið endurgreitt ef ég missi ekki mikið í gólfið í dag. Ég er búinn að brjóta eitt tilraunaglas…en það fer ekkert lengra!

Við fórum í mat til Bjarna (pabba Kollu) og Hrefnu konunnar hans á laugardaginn, þar var eldað grillkjöt ofan í afmælisbarnið og svíkur lambið ekki þegar það er komið á grillið…það er alveg ljóst. Við fórum síðan að sjá Pétur Pan í Smárabíói og notuðum frímiðana sem Brynja (mamma Kollu) gaf okkur. Hún var bara fín…ekta ævintýramynd.

Ég er núna búinn að gera skiptinemasamning við Háskólann á Akureyri, ég verð áfram skráður í HÍ en tek hluta af náminu í HA og fæ vonandi mest af því metið inn í HÍ. Það verður gaman að fara aftur norður…stefnum á að fara eins fljótt eftir próf og hægt er, ég klára 12. maí og mun þ.a.l. ekki vera í prófum á afmælinu mínu í nokkuð mörg ár…hver veit nema að það verði veisla :) sjáum til hvar maður veður búsettur….já veit einhver um lausa tveggja herbergja íbúð til leigu í sumar eða næsta árið?? Endilega hafið augu og eyru opin og láið mig vita ef þið fréttið eitthvað…best ef það væri á Brekkunni en það er svo sem ekkert endilega nauðsynlegt.

Jæja best að halda áfram við lærdóminn…skrifa vonandi fljótt aftur.

Tags: , ,