Handbolti

You are currently browsing articles tagged Handbolti.

Nú eru bara tveir dagar eftir að læra og svo próf á miðvikudaginn. Ætla að vera duglegur til að verða fimm, þá förum við Bragi bróðir í klippingu. Eru að spá í að vera í stíl í þetta skiptið, taka bara allt af en halda síddinni í hnakkanum. Sítt að aftan er alveg að gera sig í dag og ætlum við því að taka þetta alvarlega og safna í stert Það var ekki margt sem að ég gerði um helgina, þurfti að vinna í gær og síðan horfði ég á Haukana taka Valsmenn nokkuð létt í handboltanum í sjónvarpinu. Valur verður að fara að taka sig á svo að skoðannakönnun síðunnar muni koma með rétt úrslit. Allir sem hafa tekið þátt í henni hafa spáð Val sigri, það vona ég líka að þeir geri…en betur má ef duga skal! Ég og flugmaðurinn fórum í golf um daginn í elliðaárdalnum, fundum fínt svæði með gríni, sadngrifju og fínni brekku til að slá niður. Ég var eitthvað hægri sinnaður í sveiflunni því boltarnir fóru flestir í fallegu sveig lengst til hægri. Flugmaðurinn örvhennti var ekkert að hika við þetta og sló allar kúlurnar sínar svona líka mörghundruð metra. Held að hann sé kominn í rétta sportið…getur líka verið að öll þessi prófaþreyta hafi hjálpað honum og hann hafi séð höfuð kennara sinna í stað boltanna og bara látið vaða í þá. Jamm það var fínnt í golfinu en ég verð greinilega að fara að æfa mig betur ef ég ætla að halda í Tiger 2. Best að fara að læra núna, ég verð að skipuleggja tímann vel á lokasprettinum svo að hægt sé að brasa eitthvað í fluttningum með prófalestrinum.

Tags: , , ,

Ég, Birkir og Björgvin fórum á helvíti netta tónleika í gær á Gauknum en þar voru 200.000 naglbítar að spila. Þeir voru bara djöfulli góðir að mínu mati í afbragðs formi þessa dagana. Þeir eru að fara að spila á Samfés í kvöld og vonandi gengur þeim eins vel þar og í gærkvöldi.

Dagurinn í dag hjá mér byrjar annars bara nokkuð rólega, ég ætla að fara í frumulíffræði kl. 9:30 og fara svo í ræktina. Síðan þegar ég er búinn að taka rosalega á því þar þá ætla ég að klára örverufræðiskýrslur og lífefnafræðiskýrslur. Kvöldið verður svo rólegt að ég held…horft á American idol og eitthvað.

Á morgun er svo vinna fram að bikarleiknum þar sem KA spilar við FRAM. Gaman verður að sjá Arnar Þór klást við gömlu félagana á línunni og vonandi eigum við eftir að sjá fjörugan leik þar sem engu verður til sparað. Nú nú…ekki var það mikið fleira í fréttum að sinni, ég vona að þið eigið góðan dag og ljúfa helgi.

ps. þeir sem að vita ekkert um Naglbítana ættu að kíkja á síðuna þeirra, smella hér til þess og ég lofa ykkur að þið finnið eitthvað áhugavert! Þó það væri ekki nema flott föt sem hægt er að panta á síðunni þeirra á vægu verði.

Tags: ,

Ég er búinn að vera duglegur að reyna að hreyfa mig í þessari viku og nú er stefnan að koma sér í almennilegt form. Ég fór að lyfta á mánudag, keppti á miðvikudag í handboltanum við HR, fór svo á handboltaæfingu á fimmtudag, lyfti á föstudag og í dag sunnudag. Þannig að ég er helvíti ánægður með útkomu vikunnar og stefni á að fylgja þessu eftir næstu vikur svo maður komist í almennilegt form. Það er síðan leikur á morgun upp á Laugarvatni kl. 8 á staðartíma svo að það verður nóg að gera á morgun.

Tags: ,

Þjóðverjar voru að leggja heimamenn í Slóveníu af velli. Þeir áttu þetta bara skilið, voru miklu betri í leiknum, nýttu færin sín og svona. Er búinn að horfa á Evrópumótið í allan dag, Rússland vs. Frakkland, Danmörku vs. Króatía og loks Þýskaland vs. Slóvenía. Er því búinn að horfa á sjónvarp fyrir vikuna og ætla því að reyna breyta kassaaugunum sem eru komin á mig næstu daga og horfa bara á námsbækur.

Kolbrún mín er að fara í fyrsta ökutímann sinn á morgun þannig að ég legg til að allir haldi sig innan dyra : )

Neinei hún á eftir að fara létt með þetta eins og allt sem hún tekur sér fyrir hendur

Tags:

Ég var að ryfja það upp að ég hafði búið til blogg hérna fyrr í haust og fannst því tilvalið að fara að láta vita af mér…ég sem ætlaði að hafa allar helstu upplýsingar um mig hérna og láta fólk vita að ég væri á lífi….það er allavega staðfest núna og ef svo ólíklega vildi til að einhver sé búinn að kíkja hingað á síðuna og er farinn að hafa áhyggjur af mér þá leiðréttist það þá hér með.

Það helsta sem ég er að brasa núna þessa dagana er að ég er að fara keppa við Fylki í utandeildinn á miðvikudaginn kl. 18 að ég held og síðan er ég að verða stressaður fyrir prófin því það er bara fjórar kennsluvikur eftir.

En núna ætla ég að fara að kíkja í stærðfræðibækurnar….

ps. kíkti í bíó í gær á Kill Bill….hún var bara nokkuð góð!! Gef henni 3 stjörnur af fimm mögulegum.

Tags: ,